Nýja konan - 01.12.1934, Page 6

Nýja konan - 01.12.1934, Page 6
6 Nýja konan laug heilsaði honum með því að rétta honum loppna hend- ina. Prestur tók kveðju hennar virðulega og bauð henni sæti. Geirlaug settist, en prestur lagfærði sig í stólnum og tók upp neftóbaksdósirnar og ræskti sig. Síðan spurði liann frétta, en Geirlaug sagði ekkert í frétt- um. Hún herti sig upp. — Ég ætlaði að fara fram á, að fá svo sem 15 kr. úr sveitarsjóði. Hún var fastmælt. Prestur sló á lokið á dóstmum og ræskti sig enn. — Nú? Eruð þér orðnar uppi- skroppa með mat eða hvað? Það kenndi undrunar í rómn- um. — Onei, það er ég nú reynd- ar ekki — — Nú —? — En það voru skór handa Dísu litlu. — Skór? Ég man ekki bet- ur en að þið fengjuð öll nýja gúmmískó í haust. -— Það er rétt, en mig vant- ar spariskó handa Dísu litlu. Prestinn rak auðsjáanlega í rogastans yfir þessari frekju, en liann stillti sig þó. Hann hafði tóbakið inilli fingurgóm- anna og lokaði dósunum. — Það hefi ég ekki leyfi til að skaffa yður, kona góð. Róm- urinn var djúpur og virðuleg- ur. Þér gleymið því víst, að ég er með annara fé. — Nei, sagði Geirlaug með áherzlu. Það er einmitt það, sem ég man. Mér hefði aldrei komið til hugar að koma hing- að annars. Eg hið um það af sveitinni. Þaðan á ég rétt á að fá það. Málrómur Geirlaugar var harður af niðurhældri geðs- hræringu. — Nú, finnst yður það, kona góð? Prestur var þungur í mál- róm. Ég skal segja yður það, bætti liann svo við, í mínu ungdæmi hefði mér þótt það hátíðaskófatnaður skórnir, sem þér og börnin fengu í liaust. Þó voru mínir foreldrar aldrei upp á aðra komin. Geirlaug var nú staðin upp og komin fram að hurðinni. — Þér ætlið þá að neita mér um þetta? Geirlaug var föl og stirð í andlitinu, en augun brunnu. — Ég get ekki annað. Ég Jiefi ekki leyfi til að kasta op- inberu fé, sem mér er trúað fyrir, í það, sem hægt er að kalla beinan óþarfa. — Já, einmitt það. Og mynd- uð þér líka kalla það óþarfa, ef yðar hörn ættu í hlut? Geir- laug skiidi tæplega sjálf, hvað gaf henni kjark til þess að segja þetta. En hún var 1 baráttuhug og fann sig í fullum rétti. — Já, ef ég hefði ekki ráð á því, þá myndi ég liiklaust telja slíkt hégóma. — Já, ef þér heíðuð ekki ráð á því. En það er það, sem þið vitið, að þið Iiafið ráð á hlutunum. Geirlaug var nú skjálfrödduð. Það er þess vegna, að þið þorið að hrekja og hrjá okkur smælingjana. Prestur stóð upp og gekk um gólf sem ákaíast. Geirlaug stóð í hálfopnum dyrunum. Ég vildi óska yður þess, að þér ættuð eftir að standa í svipuðum spor- um og ég stend í lcvöld. Það yrði yður meiri sálubót en all- ar yðar bænir samanlagðar, og verið þær sælir. Daginn eftir, þegar Geirlaug hafði lokið morgunverkunum, settist hún við að spinna, eins og liún var vön. Minnstu börn- in léku sér á gólfinu. En Dísa stóð við gluggann hálf-ólundar- leg á svij). Allt í einu rak Halla gamla Ilildihrandsdóttir höfuð- ið inn úr gættinni. Halla var þvottakona hjá heldra fólkinu í þorpinu. Sérstaklega var hún inn undir í konsúlshúsinu. Ekki þótti fólki laust við, að Iiún væri ekki ofurlítið upp með sér af því, hvað hún var handgengin í fínu húsunum. En aldrei þóttist hún þó of góð til þess að koma í kotin. Þar var hún tíður gestur og alltaf velkomin, því hún sagði oft eitthvað í fréttum. — Hvaða ósköp liggur illa á Dísu minni í dag, sagði hún, þegar liún sá svipinn á Dísu. Ætlarðu ekki á skemmtunina í kvöld? — Nei, sagði Dísa lágt og ólundarlega. — Ætlarðu ekki að lofa henni að fara, Geirlaug mín? — Ég veit það ekki, sagði Geirlaug stuttaralega og spann áfram. — Langar þig ekki að fara, Dísa mín? Dísa sagði ekkert, en horfði ofan á tærnar á gúmmískónum sínum. — Yantar þig skó, rýjan? Dísa þagði, en Halla gamla hætti ekki fyr en hún hafði allt upp úr Dísu. — Hún má til að fara, bless- að barnið. Ég ætla að skreppa í hurtu. Það getur vel skeð, að ég komi bráðum aftur. Halla fór, en ofurlítill von- arneisti kviknaði í hrjósti Dísu. Það leið ekki á mjög löngu þangað til Halla kom aftur og liafði nú böggul meðferðis. — Hana, þetta sendir kon- súlsfrúin þér, Dísa mín, svo þú getir larið í kvöld. IJún sagði, að mamma þín gæti þrætt inn af kjólnum að neðan, cf hann yrði ol' síður. Dídí er auðvitað stærri en þú. IJún er líka orð- in 13 ára. Dísa leysti utan af högglin- um full af eftirvæntingu. I högglinum voru kjóll úr grænleitu flaueli og skór. Hvort- tveggja var gamalt og kjóllinn var dálítið upplitaður. En fyrir Dísu voru þetta þvílílcir kjör- gri[)ir, að hún þorði varla að snerta það. Mamma hennar sagði eklcert, en spann ál'ram og var hörð á svip. — Má ég máta? spurðiDísa. — Blessuð mátaðu það, sagði Halla. Kjóllinn var allur of stór og magur kroppur Dísu varð

x

Nýja konan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja konan
https://timarit.is/publication/716

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.