Nýja konan - 01.11.1935, Blaðsíða 11

Nýja konan - 01.11.1935, Blaðsíða 11
Nýja konan 11 bærilegt við önnur störí. Þá er eg viss um að stúlkur vilja vinna liúsverk eins og liver önnur verk. En hamingjan góða livaðskyldi klukkan vera orðin? Eg lít á klukkuna og sé að hana vantar 15 mín. í 7. — O, eg verð að flýta mér, eg þarf að vera komin heim til að taka til kvöldmatinn. — Núna á liídegi? — já, Já. — Og getur þú ekki farið meira út í dag? — Jú, þegar eg er búin að ganga frá eftir matinn. Oti á götunni kveð eg Ingu og óska lienni og stallsystrum hennar til hamingju með félag- ið og óska J)ess í huganum, að allar vinnustúlkur í Reykjavík væru eins áhugasamar og Inga, ])á mundi þeim fljótlega takast að bæta kjör sín og auka menn- ingu sína. Iðja, félag verksmiðjufólks, hefir nýlega gert samninga við at- vinnurekendur, sem feia í sér stórkostlegar kjarabætur fyrir það fólk, sem vinnnur í verk- smiðjum. Að vísu eru ýmsir gallar á þessum fyrstu samning- um, sem fólkið verður síðar meir að laga, svo sem að kvenna- kaup er altof lágt í samanburði við kaup karl í sama iðnaði. En þó skal J)ess getið að kaup stúlkna heíir hækkað mjög mikið yfirleitt og sýnir það hvernig atvinnurekendur nota sér |>að J>egar verkafólkið hefir engin stéttarsaintök. Höldum fast um Iðju og eflum hana. lðnkona. 3. þing Kommúnistaflokks íslands er nýafstaðið í Reykjavík. Meðal annara ákvarðana, sem þetta ])ing tók, var sú, að allar deildir flokksins geri nú J)egar sér- stakt áhlaup í starfinu meðal kvenfólksins, sem fram að þessu hefir verið mjög vanrækt. Matar- uppskriftii*. Haframjöl er talið mjög hollt og nærandi og J)ví sjálfsagt að nota ])að eftir föngum. Ilér fer á eftir uppskrift af smákökum úr haframjöli, sem geta verið bæði skrautleg- ar og góðar ef baksturinn tekst vel. Haframjöls- * m<ikronur-. 100 gr. sykur, 100 gr. smjör- líki, eitt egg, (möndludropar) 200 gr. liaframjöl. Sykurinn og smjörið er hrært með eggja- rauðunni, síðan er liaframjölið látið í og svo þeytt hvítan. Sett- ar með teskeið á smurða plöt.u og bakaðar ljósbrúnar. Hafra-kex. Flestir kannast við hafrakex, það er ágætt með smjöri og einnig með allskonar áleggi, svo sem osti, kæfu og marme- lade. % kg. hafragrj ón, 250 gr. hveiti, 250 gr. smjörlíki, 125 gr. sykur (má vera minni eða jafnvel sleppa honum), 250 gr. mjólk, háll' teskeið hjartasalt. Hnoðað deig, flatt út, skorið í ferhyrnd- ar kökur, sem eru stungnar með gafli og bakaðar ljósbrúnar á smurðri plötu. Smábrauð (muffins). Ef til vill líkar ykkur ekki haframjölsbragðið og ætla ég þá til vonar og vara að gefa ykkur uppskril't af litlum hveitikökum, sem eru ágætar til morgunverðar og einnig með miðdegiskaffinu á daginn. Va úr bolla af bræddu (ó- bræddu) smjörliki, xk úr bolla af sykri, (má vera minna), % pela af mjólk, 1 egg, IV2 bolli hveiti ásamt 3 tesk. af lyfti- dufti. Hnoðað deig flatt þykkt út, skorið í kringlóttar kökur, sem eru bakaðar ljósbrúnar á smurðri plötu (ca. 20 mín.). Marmelade. Ræði á liafrakex og smá- brauð er fyrirtak að smyrja marmelade, auk þess sem það er ómissandi með ristuðu brauði. 3 appelsínur og 1 sítróna eru þvegnar úr köldu vatni og þurkaðar, síðan liakkaðar sam- an, látnar standa í 11 bollum af köldu vatni í 24 klst. Því næst soðnar í IV2 klst., Þá er þeim hellt í ílát ásamt 2 kg. af sykri. — Þetta á síðan að standa í 24 klst., soðið aftur í IV2 klst. við vægan liita. Sett í heilar krukkur. Þegar maukið er orðið kalt er pappír vættur í vínanda, lagður ofan á það og yfir krukkurnar er bundinn loftþéttur pappír. Húsmóðir. Starfsstúlknafclagið Sókn hefir nú undirskrifað samninga við ríkisspítalana liér í Reykja- vík og Yífilsstaði, sem fela í sér all-verulegar bætur á kjör- um stúlknanna. Eftir samn- ingum þessum styttist vinnu- tíminn niður í 10 stundir án launalækkunar. — Yfirvinna greiðist með 1 kr. á kl.st. — Sjúkratrygging er allt upp í 6 vikur auk fleiri hlunninda. Þessir samningar eru stærsta sporið, sem starfsstúlkurnar ennþá hafa stigið í baráttunni fyrir réttindum sínum. Starfsstúlka. Skálinn. Hafnarstræti 17. Sími 1454. 1. flokks smjörbrauð sendist heim. Pantanir teknar með litlum fyrirvara.

x

Nýja konan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja konan
https://timarit.is/publication/716

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.