Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Side 2
Margir vísnavinir lialda enn þeim góða sið, að
safna ferskeytlum og lausavisum. Einn þeirra er
Sigurður Jónsson frá Haukagili. Ilann hefur
nú sýnt Utvarpstíðindum þá velvild, að leyfa
þeim að skyggnast i syrpu sína. Kennir þar
margra grasa, og skulu hér nokkur fram tínd:
Margir hafa hagyrðingar okkar og vísnaskáld
ort um ástandsmálin. Erlingur Jóhannesson frá
Hallkelsstöðum orti:
I ástands gaufið allir skunda,
er það geta.
Þykir fremd að fá að dunda
fyrir Brcta.
Þar má feikna fúlgu afla
á fáum stundum.
Margir eignast stóra stafla
af sterlingspundum.
Það er talin auðveld iðja,
og ágæt lötum,
verkfærin að vakta og styðja
í vinnufötum.
Ef menn vita af verkstjórunum
vera á svingli,
reglan er að áhöldunum
allir dingli.
Sumum auðnast oft að finna
einhvern skúta,
ÚTVARPSTÍÐINDI
koma út hálfsmánaðarlega aUt árið, 14 og
20 síður í senn, rúmar 400 afður ybt árið.
Árgangurinn koatar kr. 15.00 og greiðrit
fyrirfram. Afgraiðsla Hverfiagötu 4. Simi
5046. Otgefandi h.f. Hluetaadinn. Prantnð
( Vfkingsprant U.f. Ritstjórar og ábjrrgðar-
■«aa: Gunaar M. Maguúas og Jóu úr Vör.
eða skríða í skugga hinna
og skera hrúta.
Fróni á svo fákænn maður
finnst nú tæpast,
að ekki sé hann enskmenntaður
í að slæpast.
Karlakórinn „Heimir" hafði eitt sinn söng-
skemmtun á Stóru-Okrum á þrettándanum. Þá
orti Magnús Gíslason á Vöglum:
Eftir gengin glöpin stór
gleði þrengist skima,
láir enginn karlakór
þó kumri um fengitíma.
Olína Jónasdóttir gekk einhv.erju sinni spöl-
korn á götu með Stefáni Vagnssyni á Hjalta-
stöðum, er var gestkomandi að Sauðárkróki.
Munu þeim hafa farið ýmsar vísur á milli. Olína
kvað að skilnaði:
Ljóð að þylja um ljós og vor
löngum viljann seiðir,
þau hafa yljað ]>cssi spor
þó nú skilji leiðir.
ViS böftt m ivdllt mikít úrval af
éllskonar skófatnaSi.
LÁRUS C. LUÐVIGSS0N
SKÓVKHZL.UN
258
ÚTVAKPSTÍÐITfDI