Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Síða 3

Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Síða 3
BJÖRN ÓLAFSSON fiðluleikari. Við birtum nú forsíðumynd af Birni Olafssyni fiðluleikara og hér verður með nokkrum orðum skýrt frá námsferli hans og störfum. Er þetta gert vonum séinna, því Björn Ólafsson má ótvírætt telja meðal fremstu tónlistarmanna þjóðarinnar, þó ungur sé hann að árum, og er hann útvarpshlustendum að góðu kunnur. Hann hefur oft kohiið fram á hljóm- leikum í höfiiðstaðnum á vegum Tón- listarfélgasins, bæði með einleik og í hljómsveit og undanfarna vetur hefur hann haldið Háskólahljómleika ásamt Arna Kristjánssyni píanóleikara. Njóta fáir almennari og einlægari viðurkenn- ingar og aðdáunar en hann. Fiðlutónn Björns er mjög viðfeldinn, þægilega mjúkur og hreinn. Hann var ekki ýkja mikill í fyrstu, en hefur breikkað óg stækkað með vaxandi þroska listamannsins. Um leið hefur komið meiri dirfska og kraftur í alla túlkun lians. Birni bregzt sjaldnast bogalistjn. allur leikur hans er ætíð virðulegur og samboðinn menntuðum og listrænum tónlistarmanni. Björn Ólafsson er fæddur í Reykja- vík 2ö. febrúar 1917, sonur Ölafs Björns- sonar ritstjóra og Borghildar konu hans. Það fór mjög snemma að bera á tón- listarhæfileikum hans og hóf lumn nám í fiðluleik lijá Þórarni Guðmundssyni fiðluleikara er hann var 8 ára að aldri, og var undir hans handleiðslu í þrjú næstu ár. Þá hóf hann nám í Tónlist- arskólanum, en jafnframt var halin í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga og tók gagnfræðapróf 1933. Ári síðar lauk hann fullnaðarprófi í Tónlistarskólanum og var einn af þrem fyrstu nemendum, sem útskrifuðust þaðan. Um haustið 1934 sigldi Björn til Vín- arborgar og hóf nám við Tónlistarhá- skólann í Vín. Aðalkennari hans var pró- fessor Ernst Moravec. Þar dvaldi liann í 5 ár og lauk prófi 15. júní 1933 með liinum prýðilegustu einkunnum. Þá bauðst honum staða við Philharmoni- umhljómsveitina í Vín, en' það er ein fremsta ldjómsveit í heimi og þvkir það liinn mesti frami ungum tónlistarmanni að fá þar stöðu. En Björn langaði til að skreppa heim og gerði það. En við- dvölin heima varð lengri en ætlað hafði verið. Þegar stríðið brauzt út um haust- ið 1939. var óhugsandi að hæ'gt væri að liverfa til Vínarborgar aftur. Var Björn þá ráðinn kennari í fiðluleik x ið Tón- listarskólann og hefur gegnt því starfi síðan. Við bregðum okkur nú í skyndiheim- sókn til Björns Ólafssonar og Kolbrún- ar konu hans, Jónasdóttur Þorbergsson- ÚTVARPSTÍÐINDI 259

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.