Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Blaðsíða 4
miiiimiimiiiiiiiiiiniimiiiiiiifiMttdi
ar, og röbbum við Björn um starf hans.
Er hann hinn yfirlætislausasti maður
og þægilegur í viðræðu.
— Aðalstarf mitt, segir Björn, er við
Tónlistarskólann. Nemendur skólans
eru um 80 og af þeim leggja 25 stund
á fiðluleik. Kenni ég sjálfur 20 þcirra,
en Þorvaldur Steingrímsson kennir hin-
um 5, sem ég kemst ekki yfir að sinna.
Þar eru margir efnilegir nemendur, og
hafa sumir þeirra komið fram á nem-
endahljómleikum skólans. Ég veiti einn-
ig forstöðu Nemcndahljómsveit Tón-
listarskólans, en hún var stofnuð í
fyrrahaust. í henni eru 20 beztu
strengjahljóðfæraleikendurnir meðal
nemenda og fjölga í henni eftir því sem
fieiri ná leikni og þroska. Er hún ætluð
til þess að þjálfa nemendur í samspili,
og venja þá við að starfa í hljómsveit.
Annar þátturinn í starfi mínu á veg-
um Tónlistarfélagsins er sá, að ég er
konsertmeistari í Hljómsveit Heykjavík-
ur, sem lýtur stjórn dr. Urbantschitsch.
Ennfremur önnumst við kennarar
Tónlistiirskólans útvarpshljómleika
skólans á þriðjudagskvöldum. Komum
við þá fram til skiptis eða saman, þann-
ig að eitt kvöldið leikur strengjahljóm-
sveitin undir stjórn dr. Urbantschitseh,
annað kvöldið er tríó Tónlistarskólans,
hið þriðja tvíleikur, hið fjórða einleikur.
Það væri kannski rétt að nota tæki-
færið að leiðrétta misskilning, sem við
verðum oft varir við í sambandi við
þessa hljómleika. Margir halda að þeg-
ar t. d. eru leiknar sónötur fyrir fiðlu
og píanó sé annað hljóðfærið, og þó
einkum fiðlan, rétthærra en hitt og
eigi að gnæfa yfir — píanóið sé aðeins
til aðstoðar. En þetta er ekki rétt. Bæði
hljóðfærin hafa sitt hlutverk að inna
Framh. á bls. 278.
RÍKISÚTVARPIÐ
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunarverk er að ná
til allra þegna landsins með hverakonar fræðalu
og skemmtun, sem því er unnt að veita.
AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS
annaat um afgreiðslu, fjárhald, útborganir, samn-
ingagerðir o. s. frv. Útvarpsstjúri er venjulega til
viðtals kl. 2—4 síðdegis. Sími skrífstofunnar w
4993. Sími útvarpsstjúra 4990.
INNHEIMTU AFNOTAGJALDA
annast sérstök skrifstofa. Simi 4998.
ÚTVARPSRÁÐIÐ
(Dagskrárstjórnin) hefur yfirstjórn hinnar menn-
ingarlegu starfsemi og velur útvarpaefni. Skrif-
stofan er opin til viðtals og afgreiðslu frá kl. 2—4
síðd. Sími 4991.
FRÉTT ASTOF AN
annast um fréttasöfnun innanlands og frá útlönd-
um. Fréttaritarar eru i hverju héraði og kaupstað
landsins. Simi fréttastofu 4994. Simi fréttastjóra:
4843.
AUGLÝSINGAR
Útvarpið fjytur auglýsingar og tilkynningar ti*
landsmanna með skjótum áhrifamiklura hætti.
Þeir, sem reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar
áhrifamestar allra auglýsinga. — Auglýsingasimi
1095.
VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS
hefur daglega umsjón með útvarpsstöðinni,
magnarasal og viðgerðastofu. Simi verkfneðings
4992.
dÐGERÐARSTOFAN
annast um hverskon-r viðgerðir og breytir,ga>
viðtækja, veitir leiðbeiningar og fræðslu urn not
og viðgerðir viðtækja. Simi viðgerðarstofunnar
4995.
TAKMARKIÐ ER:
Utvarpið inn á hvert heimili! Allir landsmenn
burfa að eign kost á þvi, að hlusta á æðaslög
þjóðlffsins; hjartaslög heimsins.
Rikuátvmrp*.
IMIIIIIIIIIIIttlllll^llllllllllimillllllllllllllllMllltstMlllllltttllllllllltllllllM'
260
ÚTVARPSTÍÐINDI