Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Page 12

Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Page 12
Og ráðsmaðurinn rétti fram harða hönd sína. Sultarkvalirnar gerðu vart við sig og Morten stundi. Pétur stökk af sleðanum og reisti Morten upp. — Þvílík beinagrind sem þú ert orðinn, Morten, — svei mér, ef þú ert ekki orðinn svo langur og mjór, að það mætti nota þig fyrir hrífuskaft, sagði hann í léttum tóni, — finndu kjöt- bita fyrir náungann, kona! Konan flýtti sér að opna malpokann, skar væna kjötsneið og rétti Morten. Hann hrifsaði kjötið eins og dýr og fór að tyggja muldrandi og sagðist aldrei á sinni lífsfæddri ævi hafa bragðað því- líkt góðgæti. Honum lá við gráti. Hann kvaðst hafa ekið bæ frá bæ um alla byggðina og beðið um mjölhnefa, en enginn var aflögufær. Hvar sem hann kom var sultur í búi. Pétur ók áfram norður yfir með konu sinni. Um tíuleytið voru þau komin í Moingdalinn. Hér skildust leiðir. Áður en hann hélt áfram sungu þau saman eitt vers úr næfurkvæðinu, — þau stóðu í snjónum og sungu, — hann með húf- una í hendinni, — hún með spenntar greipar. í skógarjaðrinum stóð refur og ýlfr- aði, — hesturinn ætlaði að taka á rás, en Pétur náði í tauminn og hélt takinu meðan hann söng versið. Svo hóaði hann og rebbi snautaði til fjalls smá- ýlandi. Og svo lagði Hauga-Pétur af stað á skíðunum upp úr Molingdalnum. Hann nam staðar uppi á hæðardragi og veif- aði húfunni til konu sinnar. Ilún veifaði á móti. Sólin blikaði á sverði hans, — það var hið síðasta, sem hún sá til Pét- urs, því að hann hvarf sjónum hennar inn í birkiskóginn. í þrjú dægur samfleytt gekk Pétur án svefns og hvíldar. Skíðin sín skildi hann eftir á bæ einum við Melhús. Það- an hélt hann íótgangandi eftir þjóðveg- inum til Þrándheims. Fólk, sem mætti honum, sneri sér við og starði á eftir honum. Og það undraðist hver þessi stóri, stæðilegi dáti væri. Hann hlaut að vera ofan úr fjöllunum, — hann var sólbrenndur í framan, og síðhærður var hann líka. Á þriðja degi stóð hann í verzlunar- búð G. Andreasens ekkju í Þránd- heimi og spurði hvort nokkur tök væru að fá eina mjöltunnu; hann hefði gjald- genga mjmt á reiðum höndum. G. Andreasens ekkja hristi höfuðið áhyggjufull. — Mél, sagði hún, — guð lijálpi okk- ur öllum; — við, sem sjálf eigum ekki í sunnudagsgrautinn. Hún sat á stól innan við búðarborðið og starði á Pétur. í tuttugu löng ár hafði hún verið ekkja, og á þeim tíma hafði hún aldrei fundið kvikna í brjósti sínu ástarneista til nokkurs manns. Iljarta hennar sló rólega — — en nú — — það var einkennilegt, að það skyldi fara að slá ótt og títt,------því að þessi ungi fjallabúi var eins og dá- samlegt undur fyrir augum hennar. Hún spurði hvaðan hann væri. Hann sagði, sem satt var, að hann væri ofan frá fjallsbyggðinni, frá Aursundsvatn- inu, og hann ætti konu og barn og aldr- aðan föður, sem sæti uppi í birkiskóg- inum. Hann væri hræddur um líf þeirra, ef hann fengi ekki korn. — Hvað? Ertu kvæntur! hrópaði hún. Og hjarta hennar þvínær stöðvað- ist. — Ertu með hest? — Nei, ég verð sjálfur hestur, svar- aði Pétur. 268 ÚTVARFSTÍBíNDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.