Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Page 13

Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Page 13
— Ætlarðu að bera korntuunu alla þessa leið. Ertu frávitaP — Ég myndi bera tvær tunnur, svar- aði Pétur þá. — Ertu genginn af göflunum, hróp- aði hún aftur, — tvær tunnur! — Tvær tunnur af rúgi! Alveg leik- andi! sagði Pétur hlæjandi, — Farðu út úr mínum húsum. Þú ærir mig, sagði hún og' grfeip fyrir and- litið. — Fæ ég þá keypt rúg eða ekki, sagði Pétur. Hann horfði á hana nærri biðjandi. — Rúg. — Varstu að tala um rúg? — Hún stóð upp, sneri baki að hon- um, álút, eins og hún biði eftir svari. Iiún hélt vinstri hendi í hjartastað, nú barðist hjartað aftur ofboðslega, — Jú, rúg skaltu fá .... en ekki meira en eina tunnu .... tvær tunnur yrðu þinn bráður bani, fjallamaður. Ilún greip stóru lyklákippuna sína og benti honum að koma með sér. Þau konin í geymsluhús og þar gat að líta tíu tunnur af rúgmjöli. Pétur grcip eina tunnu undir hvora hönd. — Þvílík ósköp, sagði hún og kastaði sér niður á mjölpoka. En Hauga-Pétur hló. — Hvað ertu búinn að ganga langa leið? spurði hún. — Fimmtán mílur. — Þvílík ósköp, sagði hún og leið út af pokanum og féll á gólfið. — Hvað verðurðu lcngi heim með korntunnu á bakinu. — Þrjú dægur. — Æ, æ, þetta gcrir út af við mig, hljóðaði hún. — Ónei. Pétur sleppti kornsekkjunum og lyfti G. Andreasens ekkju upp af gólfinu. ÚTVARPSTÍÐINDI Hann hélt henni eins og smátelpu í fanginu. Hún bað hann með veikri rödd að bera sig inn í stofu. Hann hljóp með hana inn og lagði hana frá sér. — Taktu korntunnurnar og farðu! Og komdu hér aldrei framar, stundi hún. — En borgunin? spurði hann. Hún hristi höfuðið. 'Hún vildi enga borgun. — Gjaldið keisaranum það sem keis- arans er, sagði Pétur og Iagði tuttugu silfurdali á borðið og fór. Eftir skamma stund sást hann leggja af stað með tvær rúgtunnur á bakinu. Hann liélt eftir veginum upp dalinn. Ilann lagðist niður og drakk xir lækj- unum, hélt svo áfram. Næturnar voru bjartar og skógurinn í dalnum var tek- inn að bruma. En efra lá snjórinn yfir öllu. Þar tók hann aftur skíðin og hélt yfir Molingdalsfjöllin. í Molingdalnum var ennþá vetrar- legt. Og nú lenti Pétur í kafaldsbyl. Hann skreið inn í kofa á leiðinni og lá þar veðurtepptur í tvö dægur. En skapið var gott. Hann söng sálma og kvæði meðan óveðrið hamaðist úti. Á sjöunda dægri stóð Hauga-Pétur heirna í stofu sinni. Næstu nótt malaði gamli Kláus rúg í görnlu kvörninni við Haugalækinn. Og nú kom leysingin og þytur í birkihlíðinni og vöxtur hljóp í lækina. Og hann var svo glaður, að hann gat ekki slitið sig frá kvörninni og um miðnætti stóð hann úti fyrir kvarnar- húsdyrunum og raulaði gamla þjóðvísu. Vornóttin var björt. Úti á vatninu opn- uðust vakir og þar synti lómur milli ís- spanganna. Og kvörnin liélt áfram að mala. Á aðfangadaginn þetta sama ár kom Gauldælingur akandi eftir vatninu. Hann hafði kafald á móti sér. Hár hans 269

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.