Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Page 17

Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Page 17
með söng og hljóðfæraslætti. Einnig verður skemmtiþáttur o. fl. * Menntaskólanemendur settu hér áð- ur fyrr svip sinn á bæinn, og hefur það verið haft fyrir satt, „að þá vildu allar meyjar með skólapiltum ganga“. Síðan Reykjavík stækkaði hafa skóla- nemendur cðlilega horfið í múginn. En á næstunni munu þeir, auk . útvarps- kvöldsins halda hér hlutaveltu, gefa út prentað blað, scm selt verður á götum bæjarins og sýna hinn árlega skólaleik, sem að þessu sinni er „Hviklynda ekkj- aii“ eftir Ludvig Holberg. ★ Hin svokölluðu skólakvöld í útvarp- inu hafa að mestu fallið niður hin síð- ari ár. Má vcra að margt á þessum kvöldum hafi ekki haft mikið gildi, en þó var þar um að ræða samband skóla- æskunnar við landslýðinn, sem var nokkurs virði. Það vcrður til dæmis garnan að veita því athygli á þessu væntanlcga útvarpskvöldi Menntaskóla- nemenda, hvernig hinir verðandi menntamenn þjóðarinnar eru máli farn- ir, hversu snjallir þoir eru í ræðu, riti og list. Að vísu ber ekki að dæma nem- endur ðlenntaskólans scm fullveðja fólk á þessum sviðum, þar scm fæstir munu hafa uáð tvítugsaldri, en af þeim verður að væ'nta nökkurs og vonandi veita þeii’ hlustcndum minnistæða og skemmtilega vöku. ★ Myndin, sem hér fylgir, er tekin af einum enmenda, Jóni Sen, handa Skóla- blaðinu, og mun hún birtast þar ásamt nokkrum fleiri myndum úr skólalífinu. 273

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.