Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Síða 18

Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Síða 18
BREIÐFIRÐINGA VARA Félag Brciðfirðinga í Ileykjavík er rúmlega 5 ára, það var stofnað 17. nóv- ember 1938. Félagar, um 600 að lölu, eru úr Barðastr'anda-, Dala- og Snæfclls- ncsssýslu. Það mun því vera eitt fjol- mennasta fjórðunga- eða sýslufélag, sem nú er starfandi í höfuðstaðnum. Svo sem kunnugt er hafa þessi félög tekið ýmis nytjamál á stefnuskrá sina, og má með sanni segja, að Breiðfirðingafélag- ið standi þar sízt að baki öðrum. Eftir upplýsingum frá núverandi formanni fé- lagsins, Jóni Emil Guðjónssyni, hefur starfið beinst einkum að eftirtöldum verkefnum: Reykhólamálið á að vissu leyti upptök sín í félaginu, þar sem rætt hefur verið um rannsókn á skilyrðum á Reykhólum í því augnamiði, að þar verði stofnaður vinnuskóli og jörðin nytjuð á hagkvæman hátt. Breiðfirð- ingafélagið átti mann í nefnd, sem skip- uð var til þess að vinna að málinu á þess- um grundvelli. — Þá hefur félagið á- kveðið útgáfu á Héraðssögu Dalasýslu; verður það mikið rit, áætlað 6 bindi, með héraðslýsingu til 1918. Ólafur Lárusson Jón Emil Guðjóiisson. prófessor ritar fyrsta bindið og Jón Jóhannesson prófessor annað. Onnur fé- lög munu annast útgáfu á sögu Snæfell- inga og Barðstrendinga. — Þá gefur félagið út ársritið Breiðfirðing og eru komnir út tveir árgangar. Það er mjög myndarlegt að frágangi og skemmtilegt að efni. Málfundadeild starfar í félag- inu og í vetur er unnið að stofnun leik- flokks; Breiðfirðingamót eru haldin ár- lega, hópferðir farnar að sumrinu og stundum hafa verið hafðar kvöldvökur i útvarpinu. Ein slík vaka fer fram þ. 16. apríl. Verður dagskráin fjölbreytt. Breiðfirðingakórinn syngur undir stjórn GOÐRA TONVERKA njótið þér ekki án þess uð kynnast þeim vel núið. Yður nægir sjaldnast að lieyra þau aðeins eitt skipti. GÓÐRA MÁLVERKA njótið þér heldur ekki nema kynnast ]>eim vel. Nútima myndlist gerir alveg sérstakar kröfur lil áhorfandans. AugaS Jtarj að vcnjast hinni myndrænu túlkun. Athugun á myndum af góðum málverkum er ein bezla leiðin lil að ná þessari þjálfun. Eignist því bókina ÍSLENZK MYNDLIST, ])ar birtast myndir af verkum 20 íslenzkra list- málara, sumar í litum. — Þessi bók er líka ein hin bezta gjöf til vina yðar bæði heima og erlendis. 274 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.