Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Qupperneq 20

Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Qupperneq 20
Vestan Þistilfjarðar er fjallgarður mikill, og skerast inn í hann nokkur gil djúp og löng. Þeirra mest er gil það, er skerst inn í fjöllin norður við bæinn Hermundarfell og nefnist það Frahlca- gil. Neðan til í gili þessu standa klettar tveir með stuttu millibili. Nefnast þcir Þjójaklettar. — Mörgum þykir örnefni þessi allfurðuleg, og benda til þess að hér hafi gerzt saga, er skapað hafi ör- nefnin, þó hún sé nú hvergi í letur færð. Ekki fyrirfinnast heldur neinar skráðar frásagnir, cr geta gefið bendingu um hvernig örnefni þessi eru til komin. En þjóðtrúin og sagnarandi þjóðar- innar hefur ekki verið í vandræðum með að gefa skýringu, því til er saga, er gömul kona, er eitt sinn dvaldi í Þistil- firði fyrir mörgum árum, sagði mér. Kona þessi var Þóra Bjarnadóttir frá Fossi á Búrfellsheiði (móðir Vigfúsar Grænlandsfara og þeirra systkina). Hún er nú látin fyrir allmörgum árum. En sagan var á þessa leið: „Það var einu sinni í fyrndinni, að Fi'akkar, sem fiskiveiðar stunduðu hér við land, kornu á duggti sinni upp að landi, nálægt þeim stað, þar sem mi stendur bærinn Vellir í Þistilfirði. Þar var engin byggð í þá daga. Sáu þeir sauðfé margt þar á nesinu, en hvergi bæ eða nokkrar mannaferðir, svo þeir skutu báti í land, og tóku að smala saman fénu. Voru þeir allmargir í hóp. En þar Benjamín Sigvaldason frá Gilsbakka í Oxarfirði hefur unnið að söfnun og skrásetningu ýmiskonar þjóðlegra fræða í nálega aldarfjórðung. Hafa komið út eftir hann 3 bækur og auk þess fjöldi smærri sagnaþátta í bliiðum og ritum. Nú er hann að vinna undirbúningi nýrr- ar bókar og eru það ýmsir sagnaþættir og ævisögur. Þar verður m. a. saga sú, er hér birtist. sem féð var styggt, en þeir óvanir hlaup- unum, gekk þeim lengi afar illa að koma fénu saman og reka það ofan í fjöruna þar sem báturinn stóð. En þar kom að ■ lokum, að þeim tókst að umkringja all- stóran hóp, og var tilgangurinn að hand- sama féð, sauðbinda það og flytja um borð í dugguna, því Frakkar þóttu ætíð hinir mestu skaðræðismenn i þessu efni. þegar þeir gátu komið því við, þó hitt væri algengara, að þeir hefðu vinsam- leg viðskipti við landsmenn. En eins og að líkindum lætur tók þetta langan tíma, og var ekki alveg fyrirhafnarlaust. En þó mun þeim hafa þótt þetta til- 276 ÖTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.