Útvarpstíðindi - 27.03.1944, Page 23
1 tjá þot . . .
Hjá þér liði svo ljúft sem í söng
líf mitt fagurt seni vorkvöldin löng,
er sólargeislarnir glitra’ á gluggann minn,
glettinn mér finnst að heyri ég hlátur þinn,
mánans silfur ef sindrar um heim,
síkvik norðurljós. titra um geim,
dularfullt augnaráð þitt ég eygi( þá,
svo indælt finnst mér þér hjá.
Hari.
Jljá þcr .. . verður sungið
með Danshljómsveit I*. J.
Vorvísa með Danshljóm-
sveit Bj. Böðv.
^Votvíoa
(„When it’s springtime
Yfir dali, höf og heiðar
líður heitur sunnanblær.
II iminleiðir bláar, breiðar,
roðar bjarmi fagurskær.
Víkur sorgarrökkrið svarta
fyrir sindri geislabáls.
Nú er sól í hcimi og hjarta.
Nú er hátíð vorsins sjálf!
in thc rockics“)
Þegar aftangeislar glitra,
þegar glampinn sólar dvín,
þegar kveldsins tónar titra,
kem ég til þín, vina mín,
sver þær einni helga eiða,
býð þér ást og vinarhönd,
meðan fagran faðminn breiða
vorsins fögru draumalönd!
Jón frá Ljárslcógiim.
Samkór Reykjavíkur
fjölmennasti kór
landsins, syngur
í útvarpið annan
páskadag undir
stjórn Jóhanns
Tryggvasonar,
Samkór Rcykjavíkur mun syngja í
útvarpið á annan páskadag. Samkórinn
er mjög ungur kór, og er þetta í annað
sinn, scm liann kemur fram í útvarpi.
Kórinn liélt samsöng í vetur. Unnnæli
söngdómara um söng hans voru mjög
vinsamleg og töldu þeir að hér væri í
uppsiglingu kór, sem mætti vænta mik-
ils af í framtiðinni. Gengi sitt mun kór-
inn eiga fyrst og fremst að þakka hin-
um unga og ötula söngstjóra, Jóhanni
Tryggvasyni, en hann hefur æft kórinn
frá byrjun. Tónlistarunnendur munu
ekki sitja af sér það tækifæri, sem nú
býðst, til að hlusta á lcórinn í útvarp-
inu.
ÚTVARPSTÍÐINDI
279