Prentarinn - 01.12.1910, Blaðsíða 1
PRENTARINN
I. AR
D E S E M B E RlÖlOj í 8. B L. ^
—-— --------' 1 '-----' ,
PRENTLISTIN.
(Niðurl.)
Saga prentlistarinnar eftir dauða Guten-
bergs verður ekki sögð hér i blaðinu að
þessu sinni, en að eins bætt við nokkrum
almennum athugasemdum.
Menn hafa gerl sér far um að grenslast
eftir, hvað pað hafi verið, sem mest var um
vert í uppgötvun Gutenbergs, en mestar og
beztar rannsóknir pvi viðvíkjandi hefir gert
ameriskur prentsmiðjueigandi, Th. L. de
Vinne að nafni. Hann ferðaðist til Evrópu
árið 1875 til pess að rannsaka sögu Gulen-
bergs og uppgötvun hans. Að pví loknu
ritaði hann bók um petta efni, og segir par,
að kjarninn i uppgötvun Gutenbergs sé
steypu-mótið, eða verkfæri pað, sem staf-
irnir eru steyptir í. Verkfæri petta er svo
fulíkomið frá Gutenbergs hendi, að enn pann
dag í dag er pað notað óbreytt að mestu
leyti i hinum miklu stýlsteypu-verksmiðjum
heimsins og eins i setningarvélunum. Gizka
menn á, að Gutenberg hafi varið miklu af
fé sinu lil pessarar uppgötvunar cinnar, pví
að til hennar hefir hann líklega purft að
kaupa aðstoð dráttlistarmanna við gerð staf-
anna, og einnig peirra manna, sem grófu
stálmótin eftir hinum afarnákvæmu upp-
dráttum. Stálmót pessi voru prykt í kopar-
stykki, og síðan stevptir í peim stafir eftir
pörfum. Þó getur verið, að Gutenberg hafi
gert petta sjálfur, en með vissu vita menn
pað ekki. En að liugmyndin sé hans, pykir
fullsannaö.
Mörg minnismerki hafa Gutenberg verið
reist, en frægast peirra er hið fyrsta, sem
reist var í borginni Mainz árið 1837, og gert
hefir Albert Thorvaldsen. í Strassburg
er likneski af Gutenberg eftir franskan mann,
David d’Angers, og heldur hann par á blaði,
sem á er lelrað: »Og pá varð fjós«.
Árið 1900 var haldin 500 ára minningar-
hátíð Gutenbergs um allan hinn mentaða
heim, og gefin út mörg minningarrit um hann
og starfsemi hans. I Mainz var pá stofnað
»Gutenberg-safn«, og, í sambandi við bóka-
safn bæjarins, komið á fót safni, sem nefnt
er: »Gutenberg-bókasafn«.
Viða um heim eru prentsmiðjur, sem bera
nafn Gutenbergs, og par á meðal stærsta
prentsmiðja pessa lands.
Margar myndir eru til af Gutenberg, eða
eru sagðar vera pað, en pó leikur vafi á um,
hvorl nokkur peirra sé hin rétta. — »Prent-
arinn« getur pví miður ekki að pessu sinni
ílutt neina peirra, en gerir pað vonancii áður
langt um liður.
Eg hefi nú í sluttu máli dregið saman hið
helzta viðvíkjandi Gutenberg og uppgötvun
hans, til pess að prentarar, og aðrir, sem
petta blað lesa, fengju pó nokkur kynni af
peim manni, sem Iagt hefir grundvöllinn undir
pá atvinnu, sem vér höfum lifsuppeldi af.
Vonandi liður ekki á löngu, par til ein-
hver af visindamönnum pjóðar vorrar ritar
rækilega um Gutenberg og starf hans og
pýðingu pess fyrir mannkynið, pví vér ís-
lendingar erum bókavinir miklir, bæði að
fornu og nýju, og víst mundi íslenzk alpýða
fagna peim fróðleik ekki síður en öðrum.
Áíjúsl Jósefsson.