Prentarinn


Prentarinn - 01.12.1911, Blaðsíða 2

Prentarinn - 01.12.1911, Blaðsíða 2
P R E N T AR 1 N N 30 Nú í ár hefir Bókmentafélagið samþykt að flytja sig lieim —- alfarið frá Danmörku. Og vonandi þrífst það eigi siður eftir að hafa sett háða fætur á íslenzka jörð. En þessi breyting, að það getur flutt heim, og að það flytur lieim, er ekki sízti vottur þess, hverjum framförum ísland hefir tekið í þá átlina aö verða sjálfhjarga. Og sennilega á landið cngu fremur að þakka framförina, en einmitt Bókmenta- félagin u. Guðbr. Magnússon. AÐ VERA PRENTARI. Eg hefi einatt hugsað um lilulskiftið, sem eg valdi mér, þegar eg varð þrentari. Maður liugsar hvað mest um það, sem manni er leiðnst. Ætli nokkurntima ha(i uppi verið mað- ur, sem hefir verið f æ d d u r prentari? Eg lield ekki. Það er vist einhvernveginn þannig mcð listina þá — að minsta kosti eins og hún er hér á landi—, að hún er sjaldnast fyrir ofan, oftasl fyrir neðan þær eðlisgáfur, sem enn hetir vcrið veitt eftirtekt, og það af sjálfum uppeldisfræðingunum. Hún er eitt af því sem allir gætu gert — nauðugir auðvitað, og ekki einu sinni þarf ómentaðan mann til, því að þá vinnu þarf ekki að vinna á al- mannafæri. Hún cr að nokkru leyti myrkra- verk, og myrkraverk geta allir unnið. — Enda veit fólkið ekki hvað það er, blandar iðulega saman þeim sem prenta, og hinum, sem semja það, sem prentað er. Sumum prenturum er þelta ef til vill nokkur )>ót. Annars þekkjum við kostina allir — og eg líka — og óneitanlega höfum við dálitið liækkað þá i verði sjálfir. Það liefir komið fyrir, að mér liefir þótt vænt um að vera prentari. En sjaldan. Helzt hefir það verið þá, er einhver mér nýr sannleikur liefir verið á ferðinni, ogefliann liefir lagl leið sína um minar hendur, og þá um leið liinkrað einhverja ögn við í heilan- um — meira en þurfti og meira en átti að vera. Og lika hefir mér stundum þólt gaman að vera prentari, þegar svo vitlaust handrit hefir verið á leiðinni, að það hefir mátt lag- færa, og það eftir eigin vild. Hitt er miklu tíðara, aö vinnan gefur tilefni til hugleiðinga um kvölina við að vera prentari, sem sé, að láta nota sig til að koma á pappírinn heimsku, illgirni, brauð- níði, rógi, svikum og lj'gi — stundum vís- vitandi — og þetta í þúsundum eintaka og flest eða alt á afskræmdu og bjöguðu móð- urmálinu, vitandi það, að fjöldi þeirra manna sem les, reisir ekki rönd við, en trúir og tekur alt fyrir góða og gilda vöru — spillist og endurómar alt þetta um alt land, í skoð- unum sjálfs sín og viðskiftum við aðra. Eg vildi að prentarar væru ekki til á Islandi nú sem stendur og aldrei fleiri en tíu. Eina sjálfsvörnin sem prentarar hafa búið sig undir að geta beitt, er — v c r k f a 11. En líkurnar eru svo litlar til þess, að þeirr- ar sjálfsvarnar njóti við í þessu efni. Þvi hver á að dæma? Og hvenær mundu prent- arar vera á eitt sáttir um að lygi væri lygi? En þá er verkfall eina leiðin, eina vonin. Og verkfall ætla eg sjálfur að gera svo fljótt sem eg get. En nú hefi eg sagt svo ljótt um það, hvað það er að vera prentari, að eg þori ekki að láta nafnið mitt undir. Ef eg gerði það, yrði þetta afsakað með því, að skella skuldinni á það, sem prentað er í þeirri prentsmiðju sem eg er í. F.n það væri rangt. — S v o n a er það að vera prentari í hverri prentsmiðju sem er — á öllu landinu. Hálfur. FRÁ FÉLAGINU. 200 fmidi hafði Prentarafélagið haldið 4. des. þ. á., og er það síðasti fundur á árinu. I ritnefnd hefir verið kosinn i stað Ein- ars Hermannssonar, sem er erlendis, Hall- björn Halldórsson, og hefir hann verið rið- inn við 3 síðustu blöðin. Abyrgöarniaður fyrir liönd Prentarafélagsins: Ágúst Jósefsson. Prentsmiðjan (lutenberg.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.