Prentarinn - 01.06.1934, Síða 7

Prentarinn - 01.06.1934, Síða 7
Prentarinn 5 kalladur til Parísar, Lundúna, Vínar og fleiri borga til þess aö sýna prentunaraðferð sína. Hann ferð- aðist víða um lönd til þess að útbreiða uppgötv- un sína og útvega peninga til nýrra ráðagerða, er hann bafði á prjónunum. En hann var, eins og fleiri hugvitsmenn, lítill fjármálamaður. Gróðafíknir menn, sem skildu þýðingu uppgötvunar hans, mis- notuðu góðvild hans og lítillæti. Hann sáði, en aðrir nutu ávaxtanna. Vonsvikinn hélt hann aftur til Miinchen, en þar beiö hans nýtt mótlæti. Bræð- ur hans liöfðu sem sé í fjarveru bans selt einka- leyfið á uppfinningunni svartmunkaskólanum þar. Meðal svartmunka fékkst prófessor Mitterer við steinprentunar-aðferðina, sem hann á ýmsan hátt fullkomnaði. Senefelder nefndi uppgötvun sína »kemiska prentun«, en prófessor Mitterér úefndi prentunaraðferð þessa steinprentun (Lithographie), og því nafni hefir hún lialdið síðan. Nú var ekki um annað að gera fyrir Senéfelder en að setja nýtt steinprentunarverkstæði á laggirn- ar, og jafnframt höfðaði liann mál gegn svart- munkaskólanum út af einkaleyfinu. J7etta inál stóð yfir í mörg ár. 1805 steinprentaði Senefelder fyrsta landabréfið, er vakti geysimikla athygli. Skömmu seinna setti nemandi hans einn, Engelmanny fvrsta steinprent- unarverkstæðið á fót í París. Senefelder tók sér þá ferð á hendur þangað, og var þar í hávegum hafður. Engelmann fullkomnaði mjög steinprent- unina. Hann fann upp lita-steinprentun (Chromo- lithographie) og fékk einkaleyfi á henni 1837. í Míinchen börðust tveir keppinautar um völdin í iðnaðinum: Steinprentunarverkstæði Senéfelders og svartmunka meö prófessor Mitterer í broddi fylkingar. Hvort um sig reyndi að franlleiða feg- urri vinnu. Svartmunkar framleiddu ])ó einungis nauðsynleg verk fyrir skóla sinn, en Senefelder fékkst aftur á móti við fleira, svo sem nótnáprent- un, töflur, flugrit o. m. fl. Auk þess steinprentaði hann 1807—1808 hina frægu »Bænabók« Albréchts Diirers. Senefelder var frámunalega mikill starfsmáður. Steinprentunin breiddist út hröðum skrefum. Jafn- vel meðlimir konungsfjölskyldunnar komu á vinnu- stofu hans. Þó var hann mjög illa stæður fjárhags- lega. Málaferlin héldu áfram, og af tilefni þeirra sneri hann sér til konuiigsins, sem tók máli hans vel og veitti honum étöðu í þjónustu ríkisins sem »konunglegum umsjónármanni steinprentunarinnar«. Utnefning þessi losaði Senefelder ekki einungis Fyrsta pressa Senefelders. Siníduð 1797. við inálaferlin, heldur einnig við fjárhagslegar áhyggjur. Framtíð hans var nú tryggð, og í stein- prentunarverkstæöi skattstofu ríkisins varði hann tíma sínurn til nýrra tilrauna. A næstu árum fann hann upp blæprent, tígla- prent, málmritun og olíúlitaprent og útbjó sjálflit- unar- og vætingaráhald. Skömniu fyrir dauða sinn gerði hann tilraunir með að þrenta Olíumálverk á léreft, með sæmilega góðum árahgri. Einnig fékkst liann við að endurbæta fastaletrun. Arið 1827 fékk hann lausn frá emhætti með 1200 króna eftirlaunum En hann gát ekki óstarfandi verið, og koni sér enn á fót vinnustofu, þar sem liann liélt áfram tilraunum sinum." En heilsu hans fór nú síhnignandi, þar til hinni starfsöinu og við- burðaríku æfi lians lauk árið 1834, sem fyr er getiö. Til heiðurs minningu háns lét Bayerns-kon- ungur reisa honum veglegan legsiein úr bergtegund þeirri, er hann hafði valið til áð prenta á, og sem notuð er til þess enn í dag. Næsta blað Prentarans keniur út í september.

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.