Prentarinn


Prentarinn - 01.06.1934, Qupperneq 8

Prentarinn - 01.06.1934, Qupperneq 8
6 Prentarinn FASISMINN í PKENTARAFÉLAGINU Frh. «f bu. 3. um seinan að vígbúast gegn þessum voðalega vá- gesti verkalýðsins. Okkar verkefni bíða úrlausnar í Prentarafélaginu og krefjast þess, að við beitum kröftum okkar óskiftum að því, að sósíalfasistum þar takist ekki að bægja prenturum frá virkilegri byltingarsinnaðri baráttu, sem ein er fær um að kæfa fasismann í fæðingunni og leiða verkalýðinn í valdasessinn. Við mótmælum allir slíkri fram- komu, er Magnús Jónsson lýsir því yfir, er hann tekur við formannssæti í félaginu, að hann muni virða að vettugi samþvkktir félagsins, ef þær falli bonuin ekki í geð, við stimplum það sem brot á öllum þeim lýðræðisreglum, sem H. I. P. hefir sett sér og starfað eftir. Við mótmælum því ennfrem- ur, að bann taki sér það vald, að banna fræðslu- klúbb um sósíalisma að halda fundi á skrifstofu félagsins. Við stimplum það sem bindrun þeirra áforma félagsheildarinnar, að gera skrifstofuna, með stofn- un bókasafns og fleira, að nokkurs konar miðstöð alls félagslífs í H. í P„ og aðeins eitt dæmi enn um fjandskap sósíalfasistanna við sósíalismann. Þessar opinberu ofsóknir Magnúsar á liendur kommúnistum og liinum róttækari prenturum eru aðeins undirbúningur þess, að beita sömu aðferð- um í H. I. P. og sósíalfasistarnir bafa framkvæmt í fjölda verklýðsfélaga um allt land — að reka öt- ulustu og beztu verkamennina, til þess að viðbalda aðstöðu sinni sem flugumenn auðvaldsins innan verklýðssamtakanna. Félagar! Það þarf enginn okkar að efast um það, að nú er sá tími á enda, að unnt sé að standa álengdar og horfa á. Þrátt fyrir svefnþornin, sem kratarnir hafa stungið félagi okkar með þriggja ára saniningi við atvinnurekendur, er okkur mögulegt að vaka og vinna að hagSmunamáluin okkar. Og leiðin, sem við verðum að fara, er að gera prent- smiðjurnar að vígi samfylkingar verkalýðsins gegn auðvaldi og fasisma, vígi, sem hvorki verður unnið með árásum atvinnurekendanna á lífskjör prentara eða með fasistiskum ofbeldisráðstöfunum krata- broddanna. Þessi vígi samfylkingarinnar þurfa að eflast svo, að unnt sé hvenær sem er að svara of- beldisráðstöfunum yfirstéttarinnar með öflugu verk- falli í öllnm prentsmiðjuin. Þegar félagslegum ábuga okkar prentara er þannig komið, höfum við rekið af okkur sliðruorðið og þá stendur Hið íslenzka prentarafélag aftur meðal framsæknasta liluta íslenzks verkalýðs. S. Ö. Aths. Ritstj. Prentarans virðist framanskráð ádeila okkar áhugasama félaga vera að mestu leyti vind- högg og sízt til þess fallin, að efla bróðurhug og sambeldni meðal prentara. Aftur á móti er ekki nema sjálfsagt, að prentarar ræði áhugamál sín í blaði sínu, þau, er félagið snerta sérstaklega. Þó væri æskilegra, sökum smæðar blaðsins og þess, bversu sjaldan það kemur út, að mál, slík sem greinin fjallar um, væru einkum rædd á félags- fundum. Það hefir og verið gert, og var þá meiri hluti fumlarmanna andvígur skoðunum þeim, er frani koma í ofanritaðri grein. E. S. Þrátt fyrir það, þótt ritstj. virðist grein þessi vindhögg, eftir að hafa borið liana undir for- mann félagsins og sett mér skilyrði að ganga inn á útstrikanir lians, ella fengist greinin ekki liirt, hefi ég ákveðið að gefa prenturum kost á, að dæma um það sjálfum. Það, sem form. bér hefir tekið sér vald til að framkvæma, er aðeins til að undir- strika efni greinarinnar um sósíalfasistiskar ofsóknir bans á liendur róttækum prenturum. Hann vill láta líta svo út, að sökum drengskapar síns og mann- kosta láti liann öll ummælin um sig óhreyfð, en tilgangurinn er aðeins sá, að treysta til þess ítr- asta á brjóstgæði og meðaumkun prentara með sér, í stað þess að standa sjálfur fvrir máli sínu. Hygg ég, að prentarar séu þess yfirleitt ekki fýs- andi, að félagslegur bróðurandi með þeim sé gruiul- vallaður með tröðkun einstakra manna á sjálfsögð- ustu lýðræðisreglum félagsins. Og þegar um slík meginatriði er deilt, er Prentarinn vitanlega sjálf- sagðasti vettvangurinn. S. Ö. AFMÆLI. Þorvarður Þorvarðsson, heiðursfélagi H. í. P., varð 65 ára 23. maí síðastl. Jón Jónsson frá Hvoli varð 75 ára 4. marz síðastliðinn. HVAÐA EFNI í DAGBLÖÐUM ER MEST LESIÐ? "Berliner Tageblatt* lagði þessa spurn- ingu fyrir lesendur sína. Um 10000 svör bárust, frá fólki úr öllum stéttum. Það koin 1 ljós, að flestir vildu lesa um stjórnmál, þar næst verzlun, síðan neðanmálssögurnar, almennar fréttir, einkum með myndum, bæjarfréttir og íþróttir. Mikill hluti lesenda hafði mestan áhuga fyrir auglýsingum, en spurningin náði ekki til þeirra.

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.