Prentarinn


Prentarinn - 01.01.1955, Síða 6

Prentarinn - 01.01.1955, Síða 6
beiningar hans kæmu að sem mestu gagni. Vilhelm var mjög vandlátur um frágang á þeim verkum, er hann leysti af hendi og einkar sýnt um að halda vélum og verkefni hreinum og í reglu; hann var stjórnsamur og smekkvís fagmaður. Þótt Vilhelm ynni að „listinni" næstum allan sinn „starfsdag", má óhætt telja, að hugur hans og hneigðir sveigðust mjög að öðru listsviði, nefnilega tónlistinni. Hann var mjög söngelskur og lék nokkuð á hljóðfæri, aðallega píanó, eftir eyranu. Um alllangt áraskeið var hann starfandi meðlimur í Lúðrasveit Reykjavíkur og einnig í hljóðfærasveit er Oscar Johansson, hinn kunni fiðluleikari, veitti forstöðu hér í bænurn á 2. tug aldarinnar. Aður en hann fór í mútur, hafði Vilhelm bjarta og skæra söngrödd, en hún kom ekki aftur eftir múturnar, honum og okkur vin- um hans til mikilla vonbrigða. Ef Vilhelm hefði fengið góða menntun í hljóðfæraleik, einkanlega á hinu léttara sviði, er víst, að hann hefði „fundið sjálfan sig“ enn betur en i hinni svörtu list og orðið eftirsóttur skemmtikraftur á því sviði. Vilhelm Stefánsson var tvíkvæntur. Fyrri kona hans hét Jóhanna Ingólfsdóttir, héðan úr bænum; giftust þau 1920. Sambúð þeirra var stutt. Síðari konu sinni, Jóhönnu Indriðadóttur, frá Fáskrúðs- firði, kvæntist hann 1926. Með henni eignaðist hann tvo mannvænlega syni, Stefán, flugvélavirkja, og Kristinn, verzlunarmann, og stjúpdóttur, Fanney, er frú Jóhanna átti frá fyrra hjónabandi. Reyndist frú Jóhanna honum holl og ástrík eiginkona og var hjónaband þeirra í öllu hið farsælasta. Það var frú Fanney, stjúpdóttir hans, sem gift er Mr. Jaek Peacock, tryggingasala í London, af skozkum ætt- um, sem Vilhelm var á leið til, er dauða hans bar að. Vilhelm heitinn var tilfinningamaður, góðgjarn og drengur hinn bezti, og vildi öllurn vel gera. Ég sem þetta rita, á honurn ótalmargt gott upp að ynna á hinni löngu samleið okkar, bæði í starfi og utan þess. Fyrir það a'llt færi ég honurn inni- legar þakkir og óska honum náðar og blessunar í guðs friði. Bálför Vilhelms heitins fór fram í London, en minningarathöfn yfir dufti hans fór fram í Dóm- kirkjunni í janúar. ó. Sr. Ólafur J. Hvanndal. Minningarorð. Olafur J. Hvanndal prent- myndasmiður lézt 11. nóv- 1954. Hann var fæddur að Þaravöllum í Innri-Akranes- hreppi 14. marz 1879. Þann vetur hafði verið hin versta tíð og aldrei gefið á sjó í marga mánuði, en að kvöldi 13. marz brá til bata, og allir bátar af Akranesi fóru á sjó og fiskuðu vel. A afmælisdegi Olafs mun alltaf hafa verið gott veður, þótt illa hafi viðrað á undan og eftir, en oft hefir verið stormasamt um hann á lífsleiðinni, eins og vænta má um mann, sem var jafnmikill framkvæmda- maður og lét sig mörg mál skipta. Olafur var Borgfirðingur að ætt. Faðir hans var Jón Olafs- son, lengst bóndi í Galtarvík, Magnússonar á Litlu-Fellsöxl og konu hans Halldóru Jónsdóttur. Móðir Olafs var Sesselja Þórðardóttir, Steinþórs- sonar og konu hans, Halldóru Böðvarsdóttur frá Skáney. A seytjánda ári fór Olafur að róa á sexmannafari og þótti fiskinn vel, og svo á skútu og var á ýmsum skipum um skeið, og var eftirsóttur sjó- maður. En listhneigð Olafs sagði fljótt ti! sín. Tómstundir sínar notaði hann til að skera út ýmsa hluti, m. a. nafnspjald á skipsbátinn á skipi því, sem hann var á, og var síðan fenginn til að gera nafnspjöld á öll skip og skipsbáta útvegs Asgeirs Sigurðssonar í Sjávarborg, og er leitt að ekkert af því skuli vera til, en það hefði átt heima á Sjó- minjasafninu. 1903 hafði Olafur hug á að fara á stýrimanna- skólann, en fjárhagur hans leyfði það ekki, en í þess stað réðzt hann til trésmíðanáms hjá Samúel Jónssyni, föður Guðjóns Samúelssonar húsameist- ara, og mun það hafa verið bezta og skemmtileg- asta æviskeið Olafs. Lauk hann námi með ágætis vitnisburði. Samtímis trésmíðinni stundaði Olafur skiltagerð, sem hann lærði tilsagnarlaust, en studd- ist við bækur, sem Olafur Sigurðsson steinsnriður lánaði honum. 1907 sigldi hann til Danmerkur til þess að fullkomna sig í þessari iðn, kom síðan heim um vorið og vann jöfnum höndum að skilta- gerð og trésmíði. Þegar Olafur var barn, lærði hann að lesa ! 38 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.