Prentarinn


Prentarinn - 01.01.1955, Qupperneq 7

Prentarinn - 01.01.1955, Qupperneq 7
Sunnanfara, undir leiðsögn móður sinnar. Er hann sá mynd af manni í blaðinu, vaknaði spurning í huga hans: Hvernig var hægt að gera mynd af manni í blað? Honum var sagt að þær væru búnar til erlendis; fór hann nú að hugleiða, hve garnan væri að læra þessa list, sem enginn kynni á Islandi og sú löngun vildi ekki yfirgefa hann. Sá maður, sem Olafur skýrði fyrstum frá þessu áhugamáli sínu, var Olafur Sigurðsson steinsmiður, en hann hafði lánað nafna sínum bók um skiltagerð eins og áður er sagt. Haustið 1908 fór Olafur aftur til Danmerkur. Stundaði nám í teikniskóla um vetur- inn, en leitaðist jafnframt eftir að komast að prent- myndasmíðanámi. En námið var langt, 10—15 ár að læra ætingu, myndatöku og fleira, en Olafur vildi læra þetta á skemmri tíma. F.n að lokum komst hann að námi hjá Hjalmar Carlson, með þvi skil- yrði, að hann greiddi honum ákveðið fé f)'rir, ásamt kennslugjaldi til þeirra fagmanna, sem hjá honurn unnu. Aleiga Olafs voru 70 kr., sem hann þurfti að nota sér til lífsframfæris og var nú uggandi um sinn hag. En þegar „neyðin er stærst er hjálpin næst“. Dag einn, er hann gekk að heiman í þungum þönkum, mætti hann íslenzkum hjónum frá Reykjavík, voru það Halldór Jónsson bankagjaldkeri og kona hans. Olafur tjáði honum vandræði sín. Halldór hlustaði á Olaf með athygli og sagði síðan: „Það er einmitt þetta, sem okkur vantar heima," og bauðst til að lána Olafi nokkur hundruð krónur til greiðslu á fyrsta kennslugjald- inu, lét hann þegar af hendi rakna 300 kr. og síð- sumars sendi hann honum 400 kr. Mjög sparlega þurfti Olafur að fara með fé — borðaði aðeins einu sinni á dag og kostaði máltíðin 50 aura, svo einn bolla af kaffi með brauðsneið að kvöldi á 10 aura. Hann fékk loforð fyrir iðnaðarmannastyrk. — Þegar hann hafði lokið námi hjá Carlson leitaði hugur hans til Þýzkalands. Fór því á stúfana og hugðist að fá 150 kr. hjá einhverjum íslenzka „grósseranum" i Höfn út á iðnaðarmannastyrkinn, sem greiðast átti 1910, en allir neituðu nema Ditlev Thomsen, sem lánaði Olafi 150 kr., og Jón Krabbe, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu, lánaði 20 kr. Fór Olafur fyrst tíl Berlínar og siðar til Leipzig og komst í vinnu hjá firmanu Brockhaus, sem þekkt er m. a. af Brockhaus Lexikon. Þar var hann í eitt ár og undi hag sínum hið bezta. 1911 fór hann til Islands. Þá stóð yfir iðnsýning í Reykjavík. Setti hann myndamót á sýninguna og fékk 1. verðlaun fyrir. — Næstu ár, eftír að hann kom heim, gekk á ýmsu fyrir Olafi. Hann gerðist leiðsögumaður ferðamanna á sumrin, fékkst við uppfyndingar, t. d. kosningavél og áhald til að rétta kreppta limi. Auk þess var hann ekki heill heilsu á þeim árum, dvaldist t. d. á Vífilsstöðum. A stríðsárunum fyrri stundaði hann ýmiss konar störf: heildsölu, búskap o. fl. En er tók að líða á styrjöldina hafði fjárhagur hans batnað, og réð hann því af að hefjast handa um stofnun prentmynda- gerðar. Vorið 1919 fékk hann, eftir mikla erfiðleika, vélar og önnur áhöld og húsnæði á efsta lofti í Gutenberg. Ekkert rafmagn var og vatnsleysi og varð að framkalla allar myndir við sólarljósið og var því oft seinlegt verk. 1930 flytur hann í Mjó- stræti 6, 1937 á Laugaveg 1 og var þar til 1949 að hann flyzt til Akureyrar, en var kominn hingað til Reykjavíkur er hann lézt. Olafur taldi sig hafa unnið á undanförnum 30 árum 150 þúsund klukkustundir eða 14 klst. á dag til jafnaðar, að undanteknum stórhátíðum, og er ekki að furða, þó að hann væri orðinn þreyttur og heilsan farin að bila. Einhverju sinni kvað Sig. Arngrímsson, kunningi Olafs: „Olafur á enga nótt, alltaf sama daginn, engan blund hann blundar rótt bætir allra haginn." Olafur bætti margra hag, hann var vinur allra smælingja, manna og málleysingja, og mátti aldrei aumt sjá, án þess að bæta úr. Þegar Olafur flutti til Akureyrar gaf hann Lands- bókasafninu „afþrykk" af flestum myndamótum, sem hann hafði búið til. Munu þessi myndamót vera um 100—150 þúsund. I tilefni af sjötíu ára afmæli Olafs kom önnur útgáfa af fyrstu sálma- bókinni, sem prentuð var á Islandi, að Hólum i Hjaltadal 1589. Gerði Olafur prentmyndamót af öllu lesmálinu, 500 síðum. Margir eru þeir orðnir nemendur Olafs, bæði skiltagerðarmenn og prentmyndasmiðir, og marga átti hann vini, sem sýndu honum sóma við ýmis tækifæri og tímamót i lífi hans, en það fór lítið fyrir viðurkenningu á starfi hans frá því opinbera. En hann var merkur brautryðjandi og góður drengur. Bcnediklsson. Bókasafn H. í. P. er, eins og undanfarna vetur, opið alla mánudaga frá klukkan fimm til sex síðdegis. PRENTARINN 39

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.