Morgunblaðið - 15.12.2008, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 15.12.2008, Qupperneq 3
Notalegt Húsið er vel skipulagt. Fyrir þremur árum var settur upp nýr þakkantur og rennur. Reykjavík | Hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs er til sölu þetta 149 fm endaraðhús á tveimur hæðum með bílastæði í geymslu við Flúðasel. Eignin er til sölu á lækkuðu verði. Ásett verð er nú 31 millj. en var áður 36,9 milljónir. Er mikið áhvíl- andi á eigninni og koma skipti á minni eign til greina. Húsið er vel skipulagt og bjart. Komið er inn í forstofu með nátt- úrustein á gólfi og góðan fataskáp. Inn af forstofu er gestasalerni með hvítum tækjum og náttúrustein á gólfi. Úr holi er opið inn í rúmgóða og bjarta stofu, borðstofu og eld- hús. Á gólfum eru fallegar flísar og er innrétting í eldhúsi hvít með við- arköntum og gegnheilli viðarborð- plötu. Góð tæki eru í eldhúsi og er tengt fyrir uppþvottavél. Flísar eru á milli skápa í eldhúsi og er út- gangur út í bakgarð úr borðstofu. Inn af eldhúsi er þvottahús og geymsla, gólf er málað og eru hill- ur, borð og skápur, útgangur er í bakgarð úr þvottahúsi. Bjartur stigagangur Stigi upp á aðra hæð er flísalagð- ur og er stór gluggi í stigagangi. Á 2. hæð er komið í gott sjónvarpshol með flísum og parketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi eru á hæð- inni, stórt hjónaherbergi með stórum hvítum skápum, parket á gólfi og góðum suðaustursvölum, stórt tvískipt barnaherbergi (teikn- að sem tvö herbergi auðvelt að skipta upp aftur) og annað barna- herbergi, parket á báðum, skápur í öðru þeirra. Baðherbergi er rúmgott, flísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting yf- ir og við vask, sturtuklefi og bað- kar. Sturtuklefi þarfnast lagfær- inga. Við húsið að framanverðu er hellulögn, tröppur og pallur er flísalagður með hita undir. Í bak- garði hússins eru hellur og gras- flöt. Markísa er yfir hellulögn að hluta og í garði er áhaldaskúr. Húsið er í góðu ásigkomulagi, var málað fyrir u.þ.b 3 árum og einnig var settur upp nýr þakkantur og rennur. Flúðasel MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2008 F 3 SKÚLAGATA 51- TIL LEIGU EÐA SÖLU • Húsið er á fjórum hæðum með tveimur lyftuhúsum, þar af inndregin efsta hæð með glæsilegum útsýnissvölum. Samtals 5.015 m2 sem skiptist þannig: Kjallari: 705 m2 1. hæð: 710 m2 2. hæð: 1.033 m2 3. hæð: 1.033 m2 4. hæð: 797 m2 Bílastæðahús: 737 m2 • Fjölbreyttir notkunarmöguleikar svo sem fyrir heilbrigðisþjónustu, skrifstofur, hótelrekstur eða höfuðstöðvar fyrirtækis/stofnunar. • Næg bílastæði. • Húsið afhendist strax tilbúið til innréttinga eða eftir óskum leigutaka. • Frábær staðsetning með glæsilegu útsýni og með miklu auglýsingargildi. • Hagstæð langtímaleiga. • Leigist í heilu lagi eða í smærri einingum. • Eignaskipti möguleg. • Seljandi er tilbúinn að lána allt að 80% kaupverðs til 30 ára með 6,8% vöxtum. Vel staðsett atvinnuhúsnæði neðst í Borgartúni við sjávarsíðuna Til afhendingar strax Upplýsingar veitir Aron Pétur Karlsson í síma 861 3889, netfang aron@kirkjuhvoll.com Berjavellir - glæsileg 2ja herb. íbúð Nýkomin í einkas. mjög falleg og björt 69 fm íbúð á þriðju hæð í nýlegu lyftufjölbýli á góðum stað á Völlunum. Falleg gólfefni og innréttingar og gott útsýni úr íbúð. Stutt í alla þjónustu, skóla, verslun, sund og íþróttahús. Getur verið laus fljótlega. Verð kr. 16,7 millj. Til Sölu eða leigu á Akureyri iðnaðarhúsnæði að Njarðarnesi 1. Stærð er 320-790 fm. Hátt til lofts, 6 innkeyrsluhurðir, flísar á 320 fm. Uppl. Vilhelm S. 461 2010 Gellir fasteignasala

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.