Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 1
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is TEITUR Örlygsson var í gær ráð- inn nýr þjálfari úrvalsdeildarliðs Stjörnunnar og tekur hann við starfi Braga Magnússonar sem á dögunum var sagt upp hjá Garða- bæjarliðinu. Teitur, sem stýrði liði Njarðvíkur á síðustu leiktíð, var mættur til að fylgjast með læri- sveinum sínum í Garðabænum í gær og sá þá leggja FSu að velli. Teitur stjórnaði ekki liðinu í gær en var þó engu að síður beðinn um að vera á varamannabekknum og segja má að reynslan hafi lekið af bekk Garðbæ- inga því Jón Kr. Gíslason var við inn að undirbúa strákana vel fyrir leikinn og maður sá það greinilega,“ sagði Teitur við Morgunblaðið í gær. Teitur segist afar spenntur að hella sér út í þjálfun á nýjan leik en þessi margreyndi landsliðsmaður og leikmaður Njarðvíkur stýrir liðinu í fyrsta sinn á laugardaginn þegar Stjarnan mætir ÍBV í bikarnum. ,,Þetta verkefni leggst bara ágæt- lega í mig og enn betur eftir að hafa séð liðið spila. Ég hafði ekkert séð það spila í vetur. Auðvitað eru nokkrir hlutir sem hægt er að laga en mér fannst strákarnir gera margt mjög gott í þessum leik og ég hlakka til að vinna með þeim. Ég tel að liðið eigi mikið inni en ég sá að það skortir sjálfstraust en það kem- ur. Maður sá að þeir voru hræddir við að tapa en þeir náðu að snúa leiknum sér í hag og vinna mjög mikilvægan sigur. Það eru margir góðir leikmenn í liðinu og ég ætla að vona að strákarnir hafi ekki bara verið að sýna mér í þessum eina leik hvað í þá er spunnið,“ sagði Teitur. Teitur segist ekki hafa þurft að hugsa sig lengi um þegar for- ráðamenn Stjörnunnar settu sig í samband við hann. ,,Ég gat ekki neitað þessu. Það er erfitt að slíta sig frá körfuboltanum og ég held að ég hafi gott af því að komast í nýtt umhverfi,“ sagði Teitur. Teitur aftur í slaginn  Er tekinn við liði Stjörnunnar  Þurfti ekki að hugsa mig lengi um sagði Teitur stjórnvölinn. ,,Ég ætlaði að vera meðal áhorfenda en þeir vildu hafa mig á bekknum og þar með komst ég enn betur inn í leik liðsins. Ég lagði aðeins í púkkið með nokkrum góðum ráðleggingum en Jón var bú- Teitur Örlygsson Jón Kr. Gíslason FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 íþróttir Karfan Sigurganga KR-inga í Iceland Express-deild karla heldur áfram. Nú voru leikmenn Þórs engin fyrirstaða. Stjarnan náði að leggja FSu í framlengdum leik í Garðabæ 4 Íþróttir mbl.is ÞÓRUNN Helga Jónsdóttir, knatt- spyrnukona úr KR, varð í fyrra- kvöld bikarmeist- ari í Brasilíu, en þar hefur hún leikið síðustu vik- urnar með San- tos. Þórunn og félagar sigruðu 3:0 í síðari leik liðsins við Sport Recife og unnu því samtals 6:1 því þær unnu fyrri leik- inn 3:1 á útivelli síðasta sunnudag. Santos var 2:0 yfir í hálfleik í fyrra- kvöld og hafði góð tök á leiknum. Þórunn Helga lék allan leikinn og var á miðjunni að þessu sinni en hún hefur ýmist leikið á miðjunni hjá lið- inu eða í vörninni. Þetta er annar bikarmeistaratit- illinn sem Þórunn Helga fagnar á þessu ári því hún var í liði KR sem varð bikarmeistari hér heima í haust þegar liðið lagði Val 4:0 í úr- slitaleik. Þórunn Helga, sem er 24 ára, var fengin til liðs við Santos þegar sjö leikmenn liðsins þurftu að taka þátt í HM liða 21 árs leikmanna og yngri sem fram fór í Chile. Eftir að leik- mennirnir komu til baka vildi þjálf- arinn halda henni og var ákveðið að hún héldi áfram með liðinu fram yf- ir bikarúrslitin, en hún hélt heim- leiðis frá Brasilíu í gær. skuli@mbl.is Þórunn bikarmeistari í Brasilíu Þórunn Helga Jónsdóttir GUÐJÓN Þórð- arson er enn inni í myndinni sem næsti knatt- spyrnustjóri enska 2. deild- arliðsins Crewe Alexandra. Að því er heimildir BBC herma koma tveir þjálf- ara til greina í starfið – Guðjón Þórðarson og John Ward. Þeir Guðjón og Ward eiga það sameiginlegt að hafa fengið reisu- passann á þessu ári. Guðjón var rekinn úr starfi sem þjálfari úrvals- deildarliðs ÍA á miðju sumri og Ward fékk að taka poka sinn hjá Carlisle í síðasta mánuði. Stjórn Crewe hefur rætt við þá báða og mun á næstu dögum gera upp hug sinn hver verður fyrir val- inu en Dario Gradi hefur stýrt lið- inu tímabundið eftir að Steve Hol- land var sagt upp. Hvort sem það verður Guðjón eða Ward sem tekur við liði Crewe bíður þeirra erfitt starf. Liðið situr á botni 2. deildarinnar og hefur að- eins náð að innbyrða 12 stig í 20 leikjum. gummih@mbl.is Guðjón er inni í myndinni Guðjón Þórðarson Reuters Dýrmætt Sampdoria tryggði sér sæti 32-liða úrslitum UEFA bikarsins í knattspyrnu í gærkvöldi með því að vinna Sveilla, 1:0, á Luigi Ferraris leikvangi í Genoa. Jonathan Bottinelli skoraði eina markið og er það í uppsiglingu á myndinni hér að ofan. Leikmenn Sevilla sitja eftir með sárt ennið, eru úr leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.