Morgunblaðið - 20.12.2008, Side 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2008
HANDKNATTLEIKUR
N1-deild karla
Víkingur – Fram ...................................25:26
Staðan:
Fram 11 7 2 2 307:292 16
Valur 11 6 3 2 307:263 15
Haukar 11 7 0 4 319:287 14
HK 11 5 2 4 292:299 12
Akureyri 11 6 0 5 288:299 12
FH 11 5 2 4 322:322 12
Stjarnan 11 2 2 7 274:295 6
Víkingur R. 11 0 1 10 282:334 1
Markahæstir:
Valdimar Þórsson, HK ............................. 98
Aron Pálmarsson, FH .............................. 87
Rúnar Kárason, Fram .............................. 80
Arnór Þór Gunnarsson, Val ..................... 70
Sverrir Hermannsson, Víkingi ................ 68
Ólafur Guðmundsson, FH........................ 63
Sigurbergur Sveinsson, Haukum............ 61
Jónatan Magnússon, Akureyri ................ 60
Andri Berg Haraldsson, Fram ................ 58
Árni Þór Sigtryggsson, Akureyri............ 54
Baldvin Þorsteinsson, Val ........................ 54
Fannar Þór Friðgeirsson, Stjörnunni..... 50
Andri Snær Stefánsson, Akureyri........... 48
Andri Stefan, Haukum ............................. 44
KNATTSPYRNA
England
2. deild:
Hartlepool – Southend .............................3:0
Staða efstu liða:
Staðan:
Leicester 20 13 5 2 36:17 44
Millwall 20 13 3 4 32:24 42
MK Dons 20 13 1 6 41:21 40
Peterborough 20 10 7 3 38:23 37
Scunthorpe 20 11 4 5 39:28 37
Oldham 20 10 6 4 37:25 36
Stockport 20 9 7 4 29:19 34
Leeds 20 10 2 8 34:26 32
Tranmere 20 9 3 8 28:26 30
Hartlepool 21 8 5 8 33:31 29
Huddersfield 20 8 5 7 28:31 29
Walsall 20 8 3 9 31:32 27
Southend 21 7 6 8 28:35 27
Bristol R. 20 6 7 7 38:33 25
Northampton 20 6 7 7 30:29 25
Colchester 20 7 3 10 32:35 24
Carlisle 20 6 3 11 26:34 21
Orient 20 5 6 9 16:25 21
Swindon 20 4 8 8 30:36 20
Brighton 20 4 8 8 24:31 20
Yeovil 20 4 7 9 17:29 19
Cheltenham 20 5 3 12 22:42 18
Hereford 20 4 4 12 14:30 16
Crewe 20 3 3 14 22:43 12
Holland
AZ Alkmaar – Utrecht .............................2:0
AZ Alkmaar er á toppnum með 38 stig,
Ajax er með 32 stig og Twente 30 stig.
Belgía
Anderlecht – Genk ....................................2:0
Anderlecht er á toppnum með 38 stig,
Standard Liege er með 31, Club Brugge 31
og Genk 30 stig.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Orlando – San Antonio ........................ 90:78
Portland – Phoenix........................... 124:119
Staðan í Austurdeild:
Boston Celtics 26 24 2 92,3%
Cleveland Cavs 25 21 4 84,0%
Orlando Magic 26 20 6 76,9%
Detroit Pistons 23 14 9 60,9%
Atlanta Hawks 25 15 10 60,0%
Miami Heat 24 12 12 50,0%
New Jersey Nets 24 12 12 50,0%
Chicago Bulls 25 12 13 48,0%
Philadelphia 76ers 25 11 14 44,0%
New York Knicks 25 11 14 44,0%
Milwaukee Bucks 27 11 16 40,7%
Toronto Raptors 25 10 15 40,0%
Indiana Pacers 25 9 16 36,0%
Charlotte Bobcats 26 8 18 30,8%
Washington Wizards 23 4 19 17,4%
Staðan í Vesturdeild:
Los Angeles Lakers 24 21 3 87,5%
New Orl. Hornets 22 15 7 68,2%
Denver Nuggets 25 17 8 68,0%
Houston Rockets 25 16 9 64,0%
Portland T-Blazers 27 17 10 63,0%
San Antonio Spurs 25 15 10 60,0%
Utah Jazz 27 16 11 59,3%
Dallas Mavericks 24 14 10 58,3%
Phoenix Suns 26 15 11 57,7%
Memphis Grizzlies 25 9 16 36,0%
Los Angeles Clippers 25 7 18 28,0%
Sacramento Kings 26 7 19 26,9%
Golden St. Warriors 26 7 19 26,9%
Minnesota T’wolves 25 4 21 16,0%
Oklahoma Thunder 26 2 24 7,7%
Um helgina
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Bikarkeppni karla, Subwaybikarinn:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Stjarnan ........... 13
SKÍÐI
Dagnýjarmótið, alþjóðlegt FIS-mót í
svigi:
Keppt er í Hlíðarfjalli í dag kl. 11.30, fyrri
ferð, og 13.30, síðari ferð, og á morgun kl.
10.30, fyrri ferð, og kl. 12.30, síðari ferð.
SKVASS
Átta sterkustu skvassarar landsins mætast
í Veggsporti við Stórhöfða í dag og keppa
um titilinn „stigameistari ársins“. Keppni
hefst kl. 11.
DREGIÐ var í 32 og 16 liða úrslit í
UEFA-bikarnum í í knattspyrnu Nyon
í Sviss í gær. Meðal helstu leikja má
nefna að ítölsku risarnir í AC Milan
mæta þýska liðinu Werder Bremen, en
Milanliðið verður að teljast ansi sig-
urstranglegt í keppninni. Bjarni Þór
Viðarsson og félagar í Twente eiga
verðugt verkefni fyrir höndum, en þeir
fara til Frakklands og spila gegn Mar-
seille. Manchester City fer til Dan-
merkur og spilar gegn FC Köbenhavn,
Aston Villa fær erfiðan heimaleik gegn CSKA Moskvu og
Tottenham fer til Úkraínu og spilar gegn Shakhtar Do-
netsk. Aðrar áhugaverðar rimmur eru Fiorentina gegn
Ajax og Dinamo Kiev gegn Valencia, en núverandi meist-
arar í Zenit frá Sankti Pétursborg fá Stuttgart í heimsókn.
Þá tekur Bordeaux á móti Galatasaray, AaB fær Depor-
tivo La Coruna í heimsókn, Olympiacos spilar gegn St.
Etienne, Udinese fer til Lech í Póllandi, Braga tekur á
móti Standard Liege, Sampdoria fær Metalist í heimsókn,
Nijmegen tekur á móti Hamburger SV og París St.
Germain tekur á móti Wolfsburg. Leikið er heima og
heiman.
Dregið var til 16-liða úrslita í leiðinni og þar má nefna að
Aston Villa gæti mætt Tottenham, Manchester City gæti
mætt Deportivo La Coruna og sigurliðið í viðureign AC
Milan og Bremen leikur við Olympiacos eða St. Etienne.
Fyrri leikirnir fara fram 18. og 19. febrúar en 16-liða úr-
slitin hefjast 12. mars. Sjálfur úrslitaleikurinn fer síðan
fram á Sükrü Saracoglu leikvanginum í Istanbúl í Tyrk-
landi, þann 20. maí næstkomandi. trausti@mbl.is
Aston Villa gæti mætt Tottenham
Bjarni Þór
Viðarsson
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@mbl.is
Leikur Víkings og Fram í Víkinni í
gær var aldrei mikið fyrir augað.
Fyrstu mínúturnar einkenndust af
mistökum beggja liða í sókninni. Það
lagaðist þó eftir um tíu mínútna leik
og Framarar tóku forystuna í leikn-
um. Hafði Fram tveggja til þriggja
marka forystu þar til um miðjan síð-
ari hálfleik þegar Víkingar jöfnuðu
metin í 20:20.
Var spennan því geysileg og réðust
úrslitin ekki fyrr en á lokamínútunni
þegar Halldór Jóhann Sigfússon
skoraði gríðarlega mikilvægt mark
fyrir Fram og breytti stöðunni í
24:26. Halldór skoraði mest allra hjá
Fram, alls 9 mörk, þar af 4 mörk úr
vítum.
„Það er auðvitað frábært að vera á
toppi deildarinnar fyrir jólafrí. Sér-
staklega í ljósi þess að það átti eng-
inn von á því að það yrði. Flestir
reiknuðu með FH, Akureyri eða Val í
þessari stöðu þegar törnin fyrir ára-
mót var um það bil hálfnuð.
Við höfum síðan verið óheppnir
með meiðsli og oft þunnskipaðir.
Þannig að það er ótrúlegt að vera á
toppnum. Hins vegar breytir það svo
sem ekki öllu, því við viljum heldur
enda tímabilið á toppnum. Þetta gild-
ir ekkert,“ sagði Halldór við Morg-
unblaðið eftir leikinn í gærkvöldi.
„Þetta var erfiður leikur og við
hefðum átt að standa mun betur í
vörninni og nýta okkar færi betur,“
sagði Halldór ennfremur.
Styttist í fyrsta sigurinn
Róbert Sighvatsson, þjálfari Vík-
ings, var ánægður með frammistöðu
sinna manna þrátt fyrir tapið. „Við
vorum óheppnir að fá ekkert stig úr
þessum leik. Það er mikil stígandi í
leik liðsins og þetta er allt að koma
hjá okkur. Ég hef fulla trú á því að
við munum vinna sigra á næsta ári.
Það styttist í fyrsta sigurleikinn hjá
okkur,“ sagði Róbert.
Dómararnir úti á túni
Eins og áður segir var leikurinn
sjálfur ekki sérlega mikið fyrir aug-
að, jafnvel þótt spennan hafi verið
mikil. Þeir menn sem mest voru í
sviðsljósinu í Víkinni í gær voru ekki
leikmenn liðanna heldur fyrst og
fremst dómarar leiksins. Gerðu þeir
hver mistökin á fætur öðrum og virt-
ist ekki heil brú í dómgæslunni, leik-
mönnum, þjálfurum og stuðnings-
mönnum liðanna til mikils ama.
Seint í fyrri hálfleik varð mikil
rekistefna við ritaraborðið sem tók
alltof langan tíma og hefði verið leyst
mun fyrr hefði eftirlitsdómari verið á
leiknum. Verður að teljast mjög
furðulegt að HSÍ lagði ekki til eft-
irlitsmann á leikinn, þar sem enginn
annar leikur var í gangi þetta kvöld.
Þetta var alls ekki besta frammistaða
dómara leiksins og létu leikmenn og
þjálfarar það fara alltof mikið í taug-
arnar á sér, sem skemmdi leikinn enn
frekar.
En hvað sem því líður þá er Fram
komið í efsta sætið með 16 stig eftir
ellefu umferðir. Víkingur situr hins
vegar á botninum með 1 stig.
Morgunblaðið/Ómar
Erfiður Rúnar Kárason kominn í skotstöðu. Hann reyndist leikmönnum Víkings erfiður í gær og skoraði m.a. átta mörk
ÞAÐ var nokkuð skemmtilegt að síð-
asti deildarleikur ársins í N1-deild
karla í handknattleik skyldi vera við-
ureign Víkings og Fram, sem fagna
bæði 100 ára afmæli á þessu ári. Það
voru þó Framarar sem fögnuðu sigri í
lok leiks og unnu 26:25, eftir æsi-
spennandi lokamínútur. Með sigri Fram
komst liðið á topp deildarinnar og hef-
ur þar 16 stig.
Framarar á toppnum
Fram hafði betur gegn Víkingi Framarar ljúka því 100 ára afmælisári sínu
á toppi N1-deildarinnar Víkingar enn án sigurs á botni deildarinnar
BIRGIR Leifur Hafþórsson, atvinnukylfi
úr GKG, lék annan hringinn á Opna suðu
íska meistaramótinu í golfi á pari. Fyrsta
hringinn lék hann á einu höggi undir par
komst hann með þessu áfram í mótinu og
ur þriðja hringinn í dag og þann fjórða o
asta á sunnudaginn. Alls komust 76 kylfi
áfram, eða allir þeir sem léku undir pari
Það má alveg geta þess að Birgir Leifu
góðum hópi þeirra þrettán kylfinga sem
leik á einu höggi undir pari og sluppu þa
með áfram í mótinu. Meðal þeirra sem þa
gerðu er Justin Rose frá Englandi. Birgi
Rose verða þrátt fyrir það ekki saman í r
hóp á þriðja keppnisdegi. Birgir leikur m
Christiaan Basson frá Suður-Afríku og h
Birgir Leifur ko
Sundsamband Íslands hefur út-nefnt Örn Arnarson úr Sund-
félagi Hafnarfjarðar og Ragn-
heiði
Ragnarsdóttur
úr KR sund-
mann og sund-
konu ársins
2008. Örn setti
tvö Norð-
urlandamet á
árinu, í 50 metra
baksundi, og
auk þess eitt Ís-
landsmet. Ragnheiður setti Ís-
landsmet í 50 metra skriðsundi á
Ólympíuleikunum í Peking þar
sem hún hafnaði í 36. sæti, en hún
varð í 35. sæti í 100 metra skrið-
sundi á leikunum.
Fernando Torres verður ekkimeð Liverpool gegn Arsenal
á Emirates Stadium á morgun í
stórleik umferðarinnar í ensku úr-
valsdeildinni. Spænski framherj-
inn er ekki búinn að jafna sig af
meiðslum í læri en hann tognaði
enn og aftur í síðasta mánuði.
„Hann er byrjaður að æfa og far-
inn að hlaupa en hann er ekki klár
í slaginn á móti Arsenal. Við vilj-
um að hann verði búinn að ná sér
alveg 100% áður en hann snýr til
baka inn á völlinn,“ segir Sammy
Lee, aðstoðarstjóri Liverpool, á
vef félagsins.
Fólk sport@mbl.is
Víkingur – Fram 25:26
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 3:4, 4:7, 6:7, 7:10,
9:11, 11:11, 11:13, 12:13, 13:14, 13:17, 15:17,
18:19, 20:20, 22:22, 24:24, 24:26, 25:26.
Mörk Víkings: Sverrir Hermannsson 9/3,
Einar Örn Guðmundsson 6, Hreiðar Har-
aldsson 4, Þröstur Þráinsson 3, Davíð
Georgsson 1, Sigurður Örn Karlsson 1,
Hjálmar Þór Arnarson 1.
Varin skot: Árni Gíslason 5 (þar af 1 aftur til
mótherja), Björn Viðar Björnsson 2.
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk Fram: Halldór Jóhann Sigfússon 9/4,
Rúnar Kárason 8, Guðjón Finnur Drengsson
3, Haraldur Þorvarðarson 2, Brjánn Guðni
Bjarnason 1, Andri Berg Haraldsson 1,
Magnús Einarsson 1, Jóhann Gunnar Ein-
arsson 1.
Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 17
(þar af 5 aftur til mótherja), Davíð Hlíðdal
Svansson 3 (þar af 1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 14 mínútur (þar af fékk Brjánn
Guðni Bjarnason að líta rauða spjaldið á 48.
mínútu).
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar
Pétursson höfðu aldrei nein tök á leiknum og
áttu virkilega dapran leik.
Áhorfendur: Um 250.