Morgunblaðið - 20.12.2008, Side 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2008
Werner Heelfrá Ítalíu
sigraði í risasvigi
á heimsbikarmóti
karla sem fram
fór í Val Gardena
á Ítalíu í gær.
Þetta er besti ár-
angur Heel frá
upphafi í grein-
inni en hann kom í mark á 1.35,04
mín. Heel er 26 ára og hefur hann
einu sinni áður sigrað á heimsbik-
armóti en það var í bruni í Kvitfjell í
Noregi. Didier Defago frá Sviss
varð annar, 0,43 sekúndum á eftir
Heel og Patrik Järbyn frá Svíþjóð
varð þriðji en hann er 39 ára og elsti
verðlaunahafi frá upphafi á heims-
bikarmóti. Hermann Maier frá
Austurríki endaði í 9. sæti en hann
er efstur í samanlögðum árangri í
greininni á heimsbikarmótum tíma-
bilsins.
Anja Pärsonfrá Svíþjóð
sigraði í alpatví-
keppni á heims-
bikarmóti sem
fram fór St. Mo-
ritz í Sviss í gær.
Anja var með
besta tímann í
risasviginu og
tími hennar í sviginu var 44,03 sek-
úndur. Samanlagður tími hennar var
1.41,87 mín. Nicole Hosp frá Aust-
urríki varð í 17. sæti eftir risasvigið
en hún náði að koma sér upp í 2. sæt-
ið eftir svigkeppnina og var hún 1,12
sekúndum á eftir Pärson. Fabienne
Suter frá Sviss varð þriðja. Lindsey
Vonn frá Bandaríkjunum féll úr
keppni í sviginu en hún heldur efsta
sætinu í samanlögðum árangri á
heimsbikarmótum vetrarins. Vonn
er með 438 stig að loknum 9 mótum
og er hún 38 stigum á undan Tanja
Poutiainen frá Finnlandi.
Ramon Calde-ron forseti
spænska liðsins
Real Madrid er
ekki sáttur við
þau ummæli sem
Alex Ferguson
lét falla í Japan í
fyrradag. Fergu-
son var ómyrkur í
máli í garð Real Madrid þegar
fréttamenn spurðu hann út í fregn-
irnar af því að spænsku meistararnir
væru búnir að tryggja sér Cristiano
Ronaldo og semja við Manchester
United um kaup á honum næsta
sumar. „Haldið þið virkilega að ég
myndi semja við þennan lýð? Jesús
Kristur, ekki til í dæminu. Ég myndi
ekki selja þeim vírus!“ sagði Fergu-
son þegar málið bar á góma. „Þetta
þýðir nei,“ bætti hann við til að
árétta orð sín. Calderon segir að
Ferguson hafi farið yfir strikið. Það
sé hefð hjá Real Madrid að bera
virðingu fyrir mótherjunum.
Brandon Roy er ekki þekktastileikmaður NBA-deildarinnar í
körfuknattleik en hann hefur nánast
verið óstöðvandi í síðustu leikjum
Portland Trailblazers. Í fyrrinótt
skoraði hann 52 stig í 124:119-sigri
liðsins gegn Phoenix Suns. Hann
hefur aldrei skorað jafnmörg stig á
ferlinum í deildinni og aðeins einn
leikmaður hefur skorað fleiri stig
fyrir Portland í einum leik. Þetta er
fyrsti sigur Portland gegn Phoenix í
tvö ár.
Norskir knattspyrnudómararhafa samið um launahækkun
fyrir næsta tímabil og er óhætt að
segja að þeir séu með fín laun. Að-
aldómari leiksins fær 12.000 nkr. í
sinn hlut fyrir hvern leik en það eru
tæplega 210.000 ísl. krónur. Aðstoð-
ardómararnir fá tæplega 140.000 kr.
hvor um sig og fjórði dómarinn fær
um 70.000. Kostnaður verður um
560.000 kr. fyrir hvern leik.
Fólk sport@mbl.is
„ÉG er fullur eftirvæntingar að
mæta Jose [Mourinho] á nýjan leik.
Hann er einstakur perónuleiki sem
mér hefur alltaf líkað vel við,“ sagði
Sir Alex Fergsuon, knattspyrnustjóri
Evrópumeistara Manchester United,
eftir að í ljós kom að lið hans dróst á
móti lærisveinum Jose Mourinho í
Inter Mílanó í 16 liða úrslitum meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu.
Ferguson og Mourinho elduðu oft
grátt silfur á þeim tíma sem Mour-
inho var knattspyrnustjóri Chelsea.
„Mourinho sló okkur í Manchester
United úr keppni vorið 2004 þegar
hann var við stjórnvölinn hjá Porto.
Nú vonast ég til að hlutverkaskipti
verði og að við stöðvum Mourinho og
lærisveina,“ sagði Ferguson, en fyrri
viðureignin verður á Ítalíu.
„Ég er ánægður með niðurstöðu
dráttarins. Ég vildi mæta þeim bestu
og nú liggur það fyrir að við mætum
Evrópumeisturunum og því má segja
að ósk okkar hafi ræst,“ sagði Mour-
inho í gær.
„Ég er spenntur að koma á Old
Trafford á nýjan leik. Það hefur ver-
ið rifjað upp að mér hafi vegnað vel
gegn Fergsuon en það var á þeim
tíma sem ég var með Chelsea-liðið.
Nú eru aðrir tímar,“ sagði Mourinho
ennfremur.
Juande Ramos, sem stýrði Totten-
ham þar til fyrir
skömmu, fer með sína
nýju lærisveina í Real
Madrid til Liverpool.
Þá mun reyna mjög á
Rafael Benítez, knatt-
spyrnustjóra Liver-
pool, sem er Real Ma-
drid-maður í hjarta
sínu eftir að hafa ver-
ið tengdur félaginu
um margra ára skeið.
Steve McManaman,
sem lék á sínum tíma
bæði með Liverpool
og Real Madrid, seg-
ist veðja á að Liver-
pool hafi betur í
tveimur hörkuleikjum.
Liverpool og Real Madrid hafa
ekki mæst í stórkeppni í knatt-
spyrnu í 27 ár eða frá því að Liver-
pool vann, 1:0, í úrslitaleik Evr-
ópukeppninnar í París á vordögum
1981.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, sagðist vera sáttur við and-
stæðing síns liðs sem mætir Roma.
„Við eigum sömu möguleika á að
vinna keppnina og önnur lið sem
komin eru í 16 liða úrslit. Keppnin er
hins vegar enn erfiðari en ella þegar
komið er í 16 liða úrslitin því þá
mega menn ekki missa einbeitingu í
nokkrar mínútur í leikj-
unum tveimur. Þá get-
ur fjandinn verið laus.“
Claudio Ranieri, fyrr-
verandi knatt-
spyrnustjóri Chelsea og
núvernandi stjóri Ju-
ventus, fer á sinn
heimavöll í 16 liða úr-
slitum keppninnar.
Ranieri var vinsæll á
Stamford Bridge í þau
tæpu fjögur ár sem
hann var þar við stjórn-
völinn, fram á sumrið
2004. „Við munum gera
okkar besta til þess að
koma í veg fyrir að
Chelsea geri draum Romans
Abramovich að veruleika,“ sagði
Ranieri. „Þetta verður mikil áskorun
fyrir okkur en það væri synd að
segja að ég hafi átt mér þá ósk að
mæta Chelsea. Ég hefði fremur vilj-
að komast hjá því að mæta Chelsea,“
sagði Ranieri ennfremur.
Eiður Smári Guðjohnsen og fé-
lagar í Barcelona mæta franska
meistaraliðinu Lyon. Það var sam-
dóma álit enskra knattspyrnu-
sérfræðinga í gær að forráðamenn
ensku liðanna væru ánægðir með að
sleppa við Katalóníuliðið í þessari
umferð. iben@mbl.is
MEISTARADEILDIN
16. LIÐA ÚRSLIT
Heimild: UEFA
Fyrri leikur: 24. og 25. febrúar, 2009
Síðari leikur: 10. og 11. mars, 2009
Barcelona
Spáni
Man.
United
Englandi
Olympique
Lyon
Frakklandi
Liverpool
Englandi
Inter
Mílanó
Ítalíu
AS Roma
Ítalíu
Real
Madrid
Spáni
Arsenal
Englandi
Chelsea
Englandi
Porto
Portúgal
Juventus
Ítalíu
Villarreal
Spáni
Panathinaikos
Grikklandii
Bayern
München
Þýskaland
Atlético
Madrid
Spáni
Sporting
Portúgal
Spenntur Sir Alex Fergu-
son er ánægður að mæta
Jose Mourinho á ný.
Nær Ferguson fram hefndum?
ingur
urafr-
a
ri og
g leik-
og síð-
ingar
inu.
ur er í
m luku
ar
að
ir og
rás-
með
hefja
þeir leik kl. 5.26 að íslenskum tíma. Frakkinn
Michael Lorenzo-Vera er efstur eftir tvo
hringi en hann er á 132 höggum samtals, eða
12 höggum undir pari vallarins. Ernie Els
kemur næstur á 10 undir ásamt Damien
McGrane, Charl Schwartzel og Lee Westwo-
od.
Svíinn Oskar Henningsson, sem var með
forystu eftir fyrsta dag, náði sér ekki á strik í
gær og lék á 74 höggum, eða tveimur högg-
um yfir pari, en hann var á 65 höggum fyrsta
daginn. Hann hrapaði niður í 27. sæti við
þetta. Bestum leik í gær náðu þeir McGrane
frá Írlandi og heimamaðurinn Thomas Aiken,
en þeir léku báðir á 64 höggum eða átta
höggum undir pari. skuli@mbl.is
omst áfram á pari
VONBRIGÐI ríkja hjá Handknattleikssambandi
Evrópu (EHF) með aðsókn á leiki í nýafstaðinni
Evrópukeppni í handknattleik kvenna í Makedón-
íu. Leikið var í höfuðborginni, Skopje, og í bæn-
um Ohrid þar sem talið var að mikill áhugi væri
fyrir hendi.
Flestir leikirnir fóru fram fyrir hálftómum hús-
um nema þegar lið heimamanna spilaði, þá var
ævinlega fullt út úr dyrum.
Keppnishöllin í Skopje rúmaði 6.000 áhorf-
endur en á mörgum leikjanna sem fram fóru í
henni voru áhorfendur á milli 800 og 1.000.
Þegar ákveðið var að halda keppnina í Make-
dóníu vonuðust forráðamenn EHF eftir að leik-
irnir yrðu vel sóttir þar sem mikill áhugi er á
handknattleik í landinu. En eins og víða annars
staðar þá er sá áhugi eingöngu bundinn við
heimaliðið.
Margir telja að hátt miðaverð, 30 evrur, hafi
hrakið fólk frá. Fyrir 30 evrur getur fjögurra
manna fjölskylda borðað veislumat, drukkið glas
af víni eða gosi með á veitingastað í Skopje.
„Verðlagning og miðasala var í höndum heima-
manna. Ljóst er hins vegar að við verðum að
fylgjast með verðlagningu og öðru slíku í framtíð-
inni,“ sagði Michael Wiederer, framkvæmdastjóri
EHF, við TV2 í Danmörku. „Í okkar augum
skiptir höfuðmáli að aðsókn á alla leiki í keppni
sem þessari sé góð, bæði til þess að tryggja fjár-
hagslega útkomu mótanna og eins að þau veki
sem mesta athygli.“
iben@mbl.is
Vonbrigði með aðsókn á leiki EM
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Það eru Hollendingar sem fara upp-
fyrir Íslendinga og eru í 17.-18. sæti
ásamt Finnum. Holland vann alla
fjóra leiki sína síðan listinn kom síð-
ast út, m.a. Spán tvívegis í umspilinu
fyrir EM og lagði síðan Frakkland í
vináttulandsleik á útivelli. Ísland
mætir einmitt Hollandi í vin-
áttulandsleik í Kórnum í Kópavogi
þann 23. apríl.
Íslenska liðið tapaði fyrir Frakk-
landi, 2:1, í síðasta leik riðlakeppni
EM, gerði jafntefli við Íra, 1:1, í
fyrri leik umspilsins og vann þá síð-
an, 3:0, á Laugardalsvellinum.
Þjóðirnar tólf sem leika til úrslita í
Evrópukeppninni raða sér í efstu tólf
sæti Evrópuþjóða á listanum og Ís-
land er neðst þeirra. Litlar breyt-
ingar eru á listanum, Hollendingar
hækka sig mest, Danir fara uppfyrir
Frakka og í 7. sætið, Englendingar
uppfyrir Kanada og í 10. sætið og
Ítalir uppfyrir Kínverja og í 12. sæt-
ið.
Bandaríkin, Þýskaland, Brasilía,
Svíþjóð, Norður-Kórea og Noregur
sitja í sex efstu sætum listans eins
og áður.
149 þjóðir á listanum
Síðan koma Danmörk, Frakkland,
Japan, England, Kanada, Ítalía,
Kína, Ástralía, Rússland, Úkraína,
Holland, Finnland og Ísland.
Alls eru 149 þjóðir á heimslist-
anum, þar af 47 úr Evrópu. Listinn
er gefinn út á þriggja mánaða fresti
og kemur næst í lok mars.
Morgunblaðið/Golli
Loftbardagi Dóra Stefánsdóttir er lykilmaður í kvennalandsliðinu.
Númer 19 hjá FIFA Tólfta í Evrópu
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu byrjar stærsta ár sitt í sögunni
sem lægst skrifaða liðið af þeim tólf
sem leika til úrslita um Evrópumeist-
aratitilinn í Finnlandi síðsumars. Ís-
land er í 19. sæti á nýjum heimslista
FIFA sem birtur var í gær og hefur fall-
ið um eitt sæti frá því hann var síðast
birtur, í september.
Ísland lægst
skrifaða
liðið á EM