Pöntunarfélagsblaðið - 01.03.1936, Page 9
9
)
handa föstum viðskiftamönnum, en
þó ekki nema tekið sé talsvert í einu.
Tilgangur P. V. var lieldur ekki sá
að keppa eingöngu við kaupmenn þessa,
enda búðin ekki stofnuð með það
fyrir augum, að hafa alla verzlun fé-
lagsmanna. Sá þáttur verzlunarinnar,
sem er aðal kostur við félagið fyrir
meðlimina, er pöntunarstarfsemin. Þar
er selt á heildsöluverði, og aðeins lagt
á fyrir nauðsynlegum kostnaði, svo
sem vinnulaunum, húsnæði, sundur-
vigt o. fl. Reynsla er fengin fyrir því,
að nauðsynleg álagning, til þess að
hera þennan kostnað, er 5°/0 í viðhót
við hluta af heildsöluágóðanum, sem
félagið er nauðbeigt til þess að taka
til sín, hinn helmingur, álagningarinn-
ar, eða 5°/0, hefir verið endurgreiddur
félagsmönnum, sem arður af pöntunar-
viðskiptum.
Þá vil ég skýra mismun þessa tvenns-
konar verðlags, sem hér liefir verið
drepið á. Taki maður pöntunarlista,
reikni út með pöntunarverði, miðað
við eina einingu af hverri tegund,
verður það alls kr. 72,04. Síðan leggst
á þetta 5%, sem er hin raunverulega
álagning, og verður þá upphæðiu kr.
75,64. Þetta er pöntunarverðið. —
Reikni maður aftur á inóti sömu
vöru út með búðarverðinu, miðað eins
og áður við eina einingu af hverri
tegund, verður útkoman kr. 93,86.
Mismunur þá kr. 18,22 eða 24,% sem
er hreinn ágóði fyrir þann, sem pant-
ar, fram ylir þann, sem kaupir á al-
mennu búðarverði, en félagsmaður,
sem fær 10% afslátt, borgar kr. 8,84
eða 12% meira en liann myndi horga
fvrir sömu vöru í pöntun.
Sá, sem verzlar við Pöntunarafgreiðsl-
una greiðir kr. 75,64 fyrir sönu vöru
og hann kaupir af kaupmanni fyrir
kr. 93,86, en þær kosta í búð P. Y.
kr. 84,48 fyrir félagsmenn.
A sumum vörutegundum er þó
meiri mismunur (frá búðarverðinu)
heldur en á öðrum. T. d. er mismun-
ur á hveiti 14 aurar, en á kaffipakk-
anum 10 aurar. Algengt er að keypt
er meira af hveiti eða korntegundum
en af krffi eða annari slíkri vöru, t. d.
maður, sem kaupir 10 kg. hveiti og
1 kg. kaffi, hann hagnast meira en sá
sem kaupir 10 kg. af kaffi og 1 kg.
af hveiti. Þarna kemur þá fram ágóði
sem ekki er tekinn til greina í út-
reikningnum, því þar er aðeins mið-
að við eina einingu af liverri tegund.
— En það verður líka að athugast, að
mismunurinn er ekki alltaf sá sami,
því verðlagið er breytilegt, einkum
heildsöluverðið en eins og verðið er
nú, er mismunurinn eins og áður
segir.
Með öðrum orðnm, þegar meðlimur
í P. Y. hefir verzlað fyrir 100 kr.
gegnum Pöntunarafgreiðsluna, þá hefir
hann innunnið sér fyrir kostnaðinum
við að ganga í félagið, sem er kr. 5,00
inntökugjald og kr. 10,00 vaxtahréf
eða kr. 15,00 í allt, og þar að auki
að ininnsta kosti kr. 10,00, auk afsláttar,
sem félagið veitir honum í öðrum
verzlunum.
Teljum svo að einn heimilisfaðir
verzli fyrir kr. 600,00 yfir árið eða
kr. 50,00 á mánuði við Pöntunaraf-
greiðslu P. V., þá hefir liann fengið
í Ifreinan ágóða kr. 150,00 af aðeins
eins árs verzlun, því að sömu vörur