Ísland - 12.05.1928, Blaðsíða 4
f S L A N D
Kosning
eins manns í síldarútflutnings-
nefnd hefir nú farið fram. Ásgeir
Pétursson, Akureyri, var kos-
inn með 125 atkv., Sveinn
Benediktsson, stud: jur. i Rvík
fékk 72 atkv., Morten Ottesen,
Rvík 58 atkv., og nokkrir enn
þá færri. — Varamaður var
kosinn Jóhann Þorsteinsson
með 88 atkv,
Aðalfundur
Sögufélagsins hefir nýlega
verið haldinn hér i bæ. Stjórn-
in var endurkosin.
Prestskosning
í Möðruvallaprestakalli fór
þannig, að Sigurður Stefánsson
cand tbeol. hlaut 138 atkv.,
séra Guðbrandur Björnsson
103, séra Páll Þorleifsson 53,
séra Stanley Melax 13. Kosn-
ingin er ólögmæt.
Um Kvennabrekku
í Dölum hafa þeir sótt:
ólafur ólafsson cand. theol.
og Tryggvi Kvaran prestur.
Kosningu er lokið, en úrslitin
ókomin.
Slys.
Bjarni Þorsteinsson, aldrað-
ur maður úr Bolungarvik,
fanst fyrir skömmu örendur
við brimhrjótinn á ísaflrði.
Stúlka að nafni Lovísa Guð-
jónsdóttir fanst nýlega látin i
Vestmannaeyjahöfn. Kvað hún
hafa gengið út seint um kvöld-
ið með unnusta sínum, en
kom ekki heim aftur og fanst
morguninn eftir örend.
Pórður Sveinsson
læknir á Kleppi hefir verið
sæmdur prófessorsnafnbót af
konungi.
Konungur
hefir samþykt lög síðasta
þings.
Slysið á Breiðamerkurjökli.
Hið mikla slys á Breiða-
merkurjökli, er Jón Pálsson
frá Svínafelli í Öræfum, féll
niður í jökulsprungu, er
mönnum vafalaust ekki úr
minni liðið. Lík hans hefir nú
fundist, sömuleiðis póstsend-
ingarnar og hestarnir, sem féllu
i sprunguna.
Um heilbrigðismál Rvlkur
urðu nýlega snarpar umræð-
ur í bæjarstjórninni.
Magnús Kjaran var fram-
sögumaður og deildi mjög á
fyrirkomulag heilbrigðismál-
anna. Gat hann þess, að kostn-
aðurinn af mjólkursölu væri
178 þúsund krónum hærri en
hann þyrfti að vera. Vill hann
að mjólk sé að eins seld á 18
stöðum í bænum (nú er hún
seld á 55 stöðum). Eftirlitið
sagði hann að væri mjög lé-
legt; t. d. hafi heilbrigðisfull-
trúi ekki skoðað hjá Mjólkur-
félagi Reykjavíkur í 5 ár. Þá
átaldi hann og mjög hina svo-
kölluðu »pinklasmjörsölu«. —
Það smjör væri oft óþrifalegt
og svikið, og þyrfti nauðsyn-
lega að koma á lögboðnu
smjörmati.
Flestir bæjarfulltrúarnir voru
honum sammála, en borgar-
stjóri reyndi að berja í brestina.
Claes
þýsku Prjónavélar eru í
notkun nálega í hverjum
hrepp á íslandi, þær hafa
reynst afbragðsvel enda hafa
þær marga kosti umfram
aðrar prjónavélar.
Ef þér hafið í
hyggju að eign-
ast Prjónavél,
þá er nauð-
synlegt að vera vandlátur með val hennar, en
Claes prjónavélar
eru uppáhald hinna vandlátustu.
Hefi ennfremur ágætar Hringprjónavélar.
Nálar og aðrir varahlutir í prjónavélar oftast til.
CKA.J
. r*
<
■r
M
■B
n
m
m -’i
- V, ,/ -
Vmr
fr-.si
Félag útvarpsnotenda
á íslandi.
Fyrir skömmu voru útvarps-
notendur boðaðir á fund bér í
bænum, til þess að ræða um
stofnun félags útvarpsnotenda.
Var félagið þegar stofnað, og
nefnist það: »Félag útvarpsnot-
enda á íslandi«. Félagsskapur
þessi nær yfir alt landið, en
aðalstjórn hans situr í Reykja-
vík. Stofna má sérstakar deild-
ir út um land, í þeim bæjum
eða béruðum, þar sem 7 félagar
eða fleiri eiga heima. Peir mega
hafa sina eigin stjórn, er verður
að senda aðalstjórninni skýrslur
um starísemi sfna.
Tilgangur þessa félags er, að
glæða áhuga landsmanna á út-
varpi, og auka þekkingu þeirra
á útvarpi og útvarpstækjum, að
efla heilbrigða samvinnu á milli
útvarpsnotenda og útvarpsrek-
enda, að útvega útvarpsnotend-
um betri kjör á kaupum og við-
gerðum útvarpstækja, og láta
yfirleitt öll þau mál taka til sín,
er snerta útvarp og útvarpsnot-
endur hér á landi.
í félagið gengu þegar um 300
menn. Flestir voru úr Reykja-
vík, en nokkrir úr Hafnarfirði,
Stykkishólmi og Akranesi.
I stjórn voru kosnir: Jakob
Möller, eftirlitsmaður, Ágúst H.
Bjarnason, prófessor, Friðrik
Hallgrimsson, prestur, Jón ívars,
bókari Landssímans, Gunnar
Bachmann, símritari, Ottó B.
Arnar, fyrv. útvarpsstjóri, og
Forsteinn Porsteinsson, skipstj.
Útvarpið er eitthvert mesla
menningarmál nútímans. Og hér
í fámenninu, er nauðsynlegt að
hafa útvarp. Er þaö i sannleika
gleðilegt, að jafn almennur á-
hugi er um þetta mál, eins og
fundur sá, sem nú hefir verið
nefndur, bar vott um.
Erlendar fréttir.
Flug og flugvélar.
Nobile er kominn til Spitz-
bergen. Hann flaug frá Stolz
til Vadsö í Noregi. Tafði hann
þar dálitla stund, þar eð veð-
urhorfur voru slæmar við
Svalbarða.
Þýskur verkfræðingur hefir
bygt mótorlausa flugvél, sem
notar rakettur sem hreyfiafl.
Á flugvél þessi aðallega að fást
við veðurrannsóknir í þúsund
metra hæð, einkanlega til
Atlantshafsflugs í þessari hæð.
Reynsluflug er ráðgert í þess-
um mánuði.
Frá Kina.
Japansmönnum og Kinverj-
um hefir lent saman í Tsinan
i Kina. Orsök þessarar styrj-
aldar er talin sú, að nokkrir
Japanar voru drepnir í þessu
héraði. Japanskir hermenn
komu þegar á vettvang, Jap-
önsk herskip komu frá Shang-
hai o. s. frv. Japansmenn skutu
suma liðsforingja þjóðernis-
sinna en handtóku aðra, og
hófust þá alvarlegar skærur.
Japanar hafa sent Kínverj-
um úrslitakosti, þar sem þess
er krafist, að þjóðernissinnar
yfirgefi Tsinan, að 7 mílna
belti meðfram járnbrautinni til
Tsingtao verði friðað, og að
liðsforingjum þeim verði refs-
að, er bera sök á morðum
japanskra ríkisborgara.
Kinverjar neituðu að verða
við kröfum þessum.
Hófust þá bardagar milli
liðssveita Japana og Kínverja,
Japanar tóku þegar járn-
brautarstöðina og simastöðina
í Tsinan og sprengdu púður-
forðabúr í loft upp,
Vatnavextir
hafa verið miklir f Svíþjóð.
DELTA-
sláttuvélar
höfum við
nú um
nokkurra
ára skeið
selt í flest-
ar sveitir
landsins og hafa þær hvarvetna reynst framúrskar-
andi vel. Seljum einnig brýnslutæki með þeim.
Verðið hið lægsta. — Varahlutir fyrirliggjandi.
Bændur sendið okkur pantanir yðar sem fyrst.
Sturlaugur Jónsson & Co.
Reykjavík. Sími 1680.
m
m
m
m
i
I
i
m
m
i
JjÍ
1
m
m
ol
‘o4ko3|03t°3
L0JE.0ik04E0]E0lE0<(0 j
t0JÍ.®JL0jC0Í
□
□
EJ
□
□
□
□
□
B
'ENDIÐ ullyðar
til »Alafoss«.
pav fáið þér hana
unna bezt og fljót-
ast. — Ný sýnis-
hovn fyviv ávið 1928
evu send út. Talið
við umboðsmenn
»Álafoss«, eða skvifið til klæðaverksmiðjunnar
„ÁLAFOSS“.
REVKJA VÍK
Pósthólf 404. Laugaveg 44. Sími 404.
Brunatryggingar
sími 254.
Sjóvátryggingar
sími 542.
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON,
Reykjavík.
Bankastræti 12.'
Sími 1007.
Annast allskonar gull- og silfursmíði.
Vörur sendar gegn póstkröfu út um alt land.
MILLUR og
alt til upphluta
af bestu tegund,
ódýrast hjá
Jóni Sigmuíidssyni,
gullsmiði.
Simi 383.
Laugaveg 8.
Reykjavík.
Mikil hlaup hafa komið í Dale-
elven og Klareelven. Isjakar og
timbur hefir sumstaðar stiflað
Klareelven, svo að hún flæðir
yfir bakka sína. — Víða hafa
bændur orðið að flýja írá
heimilum sínum i bili.
Fasteignastofan
Vonarstræti 11 í Reykjavik.
Hefir altaf til sölu smá og
stór íbúðar- og verslunarhús
í Reykjavík og Hafnarfirði.
Skifti á góðum jörðum í
nærsveitum oft hugsanleg.
Jónas H. Jónsson.
Sími 1327 og 327.
Lögfræðisráðunautur „And-
vöku“ er Dr. Björn Þórðarson
hæstaréttarritari.
PrentsmiCjan Gutenbcrg.