Tuðran - 01.01.2001, Page 11

Tuðran - 01.01.2001, Page 11
11 Mikilvœgt er að mœta á réttum tíma á œfingar IFyFDrihifflfgiiii® nnnétt ff gmmnmir 25 - 30 strákar, árgangur 1985 og 1986 frá Selfossi og nágrenni æfa með 3. flokki karla. Þeir taka þátt í íslandsmóti og Bikarkeppni, einnig Faxaflóamóti og HSK móti. Þar sem þessir strákar eru flestir orðnir vinnandi menn yfir sumarið, eru æfingarnar yfir- leitt kl. 20:00 á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtu- dögum. Þetta er stór og öflugur hópur og margir strákar sem hafa æft og spilað með Selfoss frá því í 7. flokki. Nokkur hluti hópsins mun einnig taka þátt í æfingum og keppni með 2. flokki í sumar. Þjálfarar 3. flokks karla eru Guðjón Þorvarðarson, Hlynur Bárðarson og Helgi Bárðarson. Guðjón er menntaður íþrótta- kennari frá Laugarvatni og hefur einnig lokið cand.mag gráðu á þjálfaralínu við íþróttaháskólann í Osló, með knattspyrnuþjálfun og í þ róttal ífeðlisf ræði sem aðalfög. Guðjón hefur þjálfað töluvert í gegnum tíðina, aðallega unglinga í 3. og 2. flokki, bæði á Selfossi og einnig hjá ÍR í Reykjavík. Helgi og Hlynur eru nemend- ur við Fjölbrautaskóla Suðurlands og leikmenn 2. og meistaraflokks. Þeir eru drengir góðir og hafa verið félaginu dýrmætir frá unga aldri sem dómarar og að- stoðaþjálfarar. Faxaflóamót utanhúss H.S.K. mót Selfossmót Byrjun júní Byrjun júlí Seinnipart sumars Æfíngatímar í sumar Dagar: Mánudagar Þriðjudagar Fimmtudagar Tími: kl. 10:30 10:30 10:30 Mikilvœgt er að mœta á réttum tíma á œfingar IFyD°np°IhtffljgD]i® nnnéít n sitnnnnaiir íslandsmót í allt sumar vikulega H.S.K. mót maí - júní Essómót á Akureyri 4-7. júlí Faxaflóamót ÞJALFARINN Sverrir Ingibjartsson er þjálfari hjá 7. og 5. flokki karla. Þetta er fjórða árið í röð sem hann þjálf- ar strákana sem nú eru á eldra ári 5. flokks. Sverrir er 36 ára Hvergerðingur, en hefur búið á Selfossi síðustu sex ár. Hann er íþróttakennari að mennt og hefur starfað við knattspymuþjálf un nær óslitið í 15 - 16 ár. Fyrst í Hveragerði, svo á Stokkseyri og að lokum hér á Selfossi. Æfíngatímar í sumar Dagar: Mánudagar Þriðiudagar Miðvikudagar Fiinmtudagar Tími: kl. 9:30 9:30 9:30 9:30 Æfíngatímar í sumar Dagar: Mánudagar Fimintudagar Föstudagar Sunnudapar Tími: kl. 16:30 16:30 14:30 18:00 Mikilvægt er að mœta á réttum tíma á œfingar Gylfi Sigurjónsson þjálfar 4. fl. karla og 3. fl. kvenna. Hann er 35 ára Selfyssingur. Stúdent frá FSU árið 1986 og íþróttakennaramenntun frá ÍKÍ árið 1989. Gylfi hefur þjálfað yngri flokka hjá U.M.F. Selfoss s.l. 13 ár. Markmiðið hér er einnig að efla tækni, leikskilning og sigurvilja. Það er ekki hægt að stytta sér leið til árangurs þvi að það er alltaf æfingin sem skapar meistarann. JFvirnirlhmgroi^ mméít n gtuinmD° Faxaflóamót utanhúss Mánaðarmót maí - júní Járnbendingsmótið í Kóp. Seinnipart júlí H.S.K. mót.................... íslandsmót í allt sumar Að sjálfsögðu reyna allir að standa sig eins vel og hægt er, en í þessum aldursflokki er öll áherslan lögð á að hafa gaman að því að spila fótbolta hvernig sem leikurinn fer. Keppnisdagur er alltaf hátíðisdagur og við látum óhagstæð úrslit ekki spilla fyrir því. Æfíngatímar í sumar Dagar: Mánudagar Þriðiudagar Miðvikudagar Fimmtudagar Tími: kl. 14:30 14:30 14:30 14:30 Mikilvœgt er að mœta á réttum tíma á œfingar FymflmpiiS) moiétt n gtmimaiir o Stefnan hjá 5. fl. karla er sett hátt í sumar, en það er að vinna okkar riðil í íslandsmótinu og komast í úrslitakeppnina. Við vitum þó að flest lið stefna að þessu og munu veita okkar harða keppni. Markmið sumarsins er að efla tækni, leikskilning og sigurvilja. Iðkandi góður, það er mikilvægt að þú leggir þig allan í það sem þú tekur þér fyrir hendur. Stundaðu íþróttina af kappi, mættu vel á æfingar og láttu vita ef þú forfallast. Faxaflóamót utanhúss Mánaðarmót maí - júní H.S.K. mót................... íslandsmót í allt sumar Heilræði oa hvatnina til iðkenda Það borgar sig að æfa vel og vera samviskusamur. Þeir sem stunda æfingamar af kappi og áhuga eiga eftir að standa sig vel seinna meir, því lengi býr að fyrstu gerð og síðan gamli frasinn “æfingin skapar meistarann!” Punktar frá þjálfurum Allir sem æfa knattspyrnu ættu að hafa það í huga að knattspyrna er íþrótt. Leikur sem á að hafa gaman af. Mikilvægt er að leggja sig fram, hafa gaman að því sem verið er að gera og vera jákvæður félagi. Góð hvíld og rétt mataræði eru einnig sérlega mikil- vægir þættir. Foreldrar og þjálfari þurfa að vera í góðu sambandi. Foreldrar þurfa að koma inn í starfið með ýmsum hætti, þ.e. í fjáraflanir fyrir mót, skipulagningu og svo þegar farið er á mót. Það gefur börnunum gríðarlega mikið og ýtir undir áhuga þeirra, ánægju og árangur ef foreldrar sýna iðkun þeirra áhuga.

x

Tuðran

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.