Tuðran - 01.04.2006, Síða 12
Kvennabolti á uppleið!
Þaö er mikið að gerast í
kvennaboltanum á Selfossi en undan-
farin ár hefur markvisst verið unnið að
því að hafa hér öflugt starf í kringum
yngri flokka kvenna. Það er farið að
skila árangri og núna er knattspyr-
nudeildin með sex kvennaflokka .
Flokkarnir eru: 7. 6. 5. 4. 3. og 2. fl. kvk.
en sá síðast nefndi var einmitt stofnaður
nú í febrúar. Þar eru að æfa stelpur sem
hafa einmitt æft fótbolta upp alla yngri
flokkana svo það vonandi styttist bara í
meistaraflokk kvenna að nýju áður en
langt um líður!
Margir af þessum flokkum hafa verið
að gera mjög góða hluti í vetur og oftar
en ekki er Selfoss með lið í úrslitum sem
segir okkur að við erum að taka skref í
rétta átt í kvennaboltanum.
Nýstofnaður 2.flokkur er skráður í
íslandsmótið, 3.flokkur er á leið til útlan-
da í æfingaferð, 5.flokkur fer til
Siglufjarðar að keppa og allir flokkar
hafa í nógu að snúast bæði í æfingum
og leikjum.
Ef við höldum áfram á sömu braut er
engu að kvíða með kvennaboltann,
hann er kominn til að vera. Stöndum
með stelpunum okkar og segjum
ÁFRAM SELFOSS- ÁFRAM
STELPUR!!!
ÞJÁLFARAR STELPNANNA ERU SEM
HÉR SEGIR
2. flokkur kvenna:
Laufey Guðmundsdóttir
3. flokkur kvenna:
Guðmundur Sigmarsson
4. flokkur kvenna:
Guðmundur Sigmarsson
5. flokkur kvenna:
Laufey Guðmundsdóttir
6. flokkur kvenna:
Ásdís Björg Ingvarsdóttir
7. flokkur kvenna:
Ásdís B. Ingvarsdóttir
Sjá má æfingartíma flokkanna á
öðrum stað í blaðinu og að sjálfsögðu
eru allar nýjar stelpur velkomnar að
koma að æfa. Eins eru að hefjast æfin-
gar fyrir börn fædd 2000-2001 en það
verður aulýst síðar.
Laufey Guðmundsdóttir, þjálfari.
5. flokkur kvenna Selfoss.
Með boltakveðju, Laufey
Guðmunsdóttir, þjálfari.
Stuðningsmannaklúbbur knatt-
spyrnudeildar var stofnaður í október-
mánuði 2004 og er því kominn vel á
annað starfsár. Klúbburinn hefur aðal-
lega unnið að því að styðja við bakið á
þjálfara og leikmönnum meistaraflokks
með ýmsum hætti. Eins hefur hann
staðið fyrir uppákomum fyrir félags-
menn og á síðasta sumri komu félags-
menn að vinnu á leikdögum á
Selfossvelli m.a. með gæslu að
ógleymdri þeirri skemmtilegu umgjörð
sem þeir bræður og klúbbfélagar
Kjartan og Einar ,,EB“ Björnssynir stóðu
fyrir með tónlist og ógleymanlegum
kynningum.
Sífellt er unnið að því að bæta við
félagatöluna en núna eru félagsmenn
vel rúmlega hundrað. Betur má ef duga
skal og því hvetjum við alla sem ekki
hafa nú þegar skráð sig að gera það hið
fyrsta, stjórnarmenn klúbbsins verða
með skráningareyðublöð á heima-
leikjum félagsins í sumar og eins er
hægt að nálgast nánari upplýsingar um
klúbbinn og skráningu á heimasíðu
Knattspyrnudeildar www.selfossfc.com
Gleðilegt knattspyrnusumar
Áfram Selfoss!
Stjórnin.
www.arvirkinn.is
Viö styðjum
Selfoss
12