Árroði - 08.11.1933, Qupperneq 1
Útg. Ásm.Jónsson W
frá Lyngum. A K K V Í) I
Kemur út 1—2 bl.
■ á mánuði.
1. ár.
Reykjavík, 8. nóv. 1933.
10. tbl.
Ég kem skjótt.
»Haltu fast því sem þú hefir,
svo enginn taki frá þér kórónu
þína«. (Opinb. 3, 11). — Enn-
fremur: »Alla þá, sem óg elska,
þá aga ég og typta. Yer því
kostgæfinn og gjör iðran. (Op.
6 og Jóh. 4, 19).
Ofanritaðar áminningar, ásamt
mörguin fleiri, eru skráðar í upp-
hafi Opinberana Jóhannesar post-
ula og guðspjallamanns, sem á-
minning til hinna nýstofnuðu
safnaða kristninnar á hans dög-
um.
Og þau ná einnig til vor á
þessum dögum, sem kristið nafn
viljum bera og eftirfylgja vorum
friðarhöfðingja og fræðimeistara,
herranum Jesú Kristi, sem sjálf-
ur opinberaði sínum sannkristna
lærisveini og trúa þénara hina
dýrðlegu hluti, er síðar meir áttu
fram að koma, er þá voru al-
menningi duldir.
Og svo mun líka vera á vor-
um dögum, að hinir háleitustu
og dýrmætustu helgidómar hans
eru alt of mörgum duldir, vegna
athugaleysis og þverúðar hjarta
vors. — Pví ætti hvers manns
innilegasta hjartans þrá að vera
að halda sem fastast í alt hið
góða og guðlega eðli sem hann
finnur innra hjá sér, frá inn-
blæstri síns góða hirðis og meist-
ara, og í annan máta vera kost-
gæfinn og gjöra iðrun og yfir-
bót á því, sem hann fyrir Guði
og sainvizku sinni liefir fund-
ið sig illa gjöra, — samkvæmt
kristindóms skyldu sinni.
Og enginn ætti að hugsa eða
tala svo, hvorki ungur eða gam-
all, að ekki þýddi að snúa sér
til hins guðdómlega föður mis-
kunnsemdanna, þó hann félli
frá vegi hans um stundarsakir,
að hann eigi ekki afturkvæmt
til hans.
Jú, sannarlega, elsku bræður
og systur. Fyrir hreina trú og
iðrun fáum vér fyrirgefningu
syndanna. — En herra! Auk þú
oss trúna, því án hennar er
ómögulegt Guði að þóknast.
Enginn örvænta skyldi,
þó iðrast hafi seint,
söm er Guðs sonar mildi,
sé anuars hjartað hreint.
Hvcrki við stað né stundir
stíluð er Drottins páð,