Árroði - 08.11.1939, Page 1
1
Stofnnn F. U. J. markaði tímamót
í sogu íslenzkrar alpýðuæskn.
Þann 8. nóvember 1927 var
halldinn fundur í Kaupþings-i
salnum í Eimskipafélagshúsinu.
Fundur þessi hafði verið boðað-
ur af nokkrum ungum jafnað-
armönnum.
Tildrög þessa fundar voru
þau, að um viku áður, höfðu
nokkrir ungir piltar og stúlkur
komið saman að Hótel Heklu.
Hafði þar verið rætt um, hvort
ekki væri tiltækilegt að stofna
til samtaka meðal þeirra ungra
manna og kvenna hér á landi,
er aðhylltust skoðanir jafnaðar-
stefnunnar og styðja vildu
verkalýðshreyfinguna í baráttu
hennar fyrir bættum kjörum
hins vinnandi lýðs.
Á samkomu þessari var að
lokum ákveðið að gangast fyrir
slíkum samtökum, og var í því
skyni kosin nefnd, er hafa skyldi
allar framkvæmdir á hendi.
Nefnd þessi starfaði síðan í
nokkra daga og ákvað svo að
boða til almenns fundar með
ungu fólki. Var hann síðan
haldinn, eins og áður segir,
þriðjudaginn 8. nóvember 1927.
Á þeim fundi var samþykkt
að stofna félag, er bæri nafnið
,,Félag ungra jafnaðarmanna11.
Eftir Matthias Guðmundsson
formann Fél. ungra jafnaðarm.
Og þar með var hafinn nýr
þáttur 1 sögu þjóðarinnar.
Unga fólkið, sem aðhylltist
skoðanir jafnaðarstefnunnar og
fylgdi Alþýðuflokknum að
málum, hafði gripið til vopna
Frh. á 3. síðu.
SIGURBJÖRN MARÍUSSON
Hvert beinist hugur þinn æska
Flestir æskumenn hafa þegar
í uppvexti sínum hugsað um
það, hvað þeir eigi fyrir sig að
leggja til þess að framtíð þeirra
geti orðið þeim til gagns og
gleði. Venjulega er það svo, að
þeir hugsa fyrst um sjálfa sig,
en eftir því sem þroski þeirra
vex, ber hugann einnig að heim-
ili, foreldrum, konu og börnum.
Vonir margra hafa oft brugð-
izt, þrátt fyrir það þótt þeim
hafi oft verið haldið lengi við
og . mikið gert til að láta þær
rætast. Menn hafa orðið að
byrja snemma að vinna sér fyr-
ir daglegu brauði og á annan
veg, en þeir hafa óskað sér, og'
þess vegna ekki notið þeirrar
vinnugleði, sem þeir hefðu hlot-
ið af verki, sem væri við þeirra
ósk og hæfi.
En ástæðan fyrir því að svona
hefir gengið til um áratugi er
sú, að fjöldinn allur af æsku-
mönnum er að pukrast með
vandamál sín í einrúmi. Reynsl-
an hefir þó sýnt með svo mörg-
um óhrekjandi dæmum að
„samtök er máttur“. Því ætti
þá íslenzkur æskulýður ekki að
bindast svo sterkum samtök-
um, að. fyllsta tillit sé tekið til
áhugamála hans?
Við eigum að taka við þjóð-
félaginu til uppbyggingar af