Árroði - 08.11.1939, Síða 1

Árroði - 08.11.1939, Síða 1
1 Stofnnn F. U. J. markaði tímamót í sogu íslenzkrar alpýðuæskn. Þann 8. nóvember 1927 var halldinn fundur í Kaupþings-i salnum í Eimskipafélagshúsinu. Fundur þessi hafði verið boðað- ur af nokkrum ungum jafnað- armönnum. Tildrög þessa fundar voru þau, að um viku áður, höfðu nokkrir ungir piltar og stúlkur komið saman að Hótel Heklu. Hafði þar verið rætt um, hvort ekki væri tiltækilegt að stofna til samtaka meðal þeirra ungra manna og kvenna hér á landi, er aðhylltust skoðanir jafnaðar- stefnunnar og styðja vildu verkalýðshreyfinguna í baráttu hennar fyrir bættum kjörum hins vinnandi lýðs. Á samkomu þessari var að lokum ákveðið að gangast fyrir slíkum samtökum, og var í því skyni kosin nefnd, er hafa skyldi allar framkvæmdir á hendi. Nefnd þessi starfaði síðan í nokkra daga og ákvað svo að boða til almenns fundar með ungu fólki. Var hann síðan haldinn, eins og áður segir, þriðjudaginn 8. nóvember 1927. Á þeim fundi var samþykkt að stofna félag, er bæri nafnið ,,Félag ungra jafnaðarmanna11. Eftir Matthias Guðmundsson formann Fél. ungra jafnaðarm. Og þar með var hafinn nýr þáttur 1 sögu þjóðarinnar. Unga fólkið, sem aðhylltist skoðanir jafnaðarstefnunnar og fylgdi Alþýðuflokknum að málum, hafði gripið til vopna Frh. á 3. síðu. SIGURBJÖRN MARÍUSSON Hvert beinist hugur þinn æska Flestir æskumenn hafa þegar í uppvexti sínum hugsað um það, hvað þeir eigi fyrir sig að leggja til þess að framtíð þeirra geti orðið þeim til gagns og gleði. Venjulega er það svo, að þeir hugsa fyrst um sjálfa sig, en eftir því sem þroski þeirra vex, ber hugann einnig að heim- ili, foreldrum, konu og börnum. Vonir margra hafa oft brugð- izt, þrátt fyrir það þótt þeim hafi oft verið haldið lengi við og . mikið gert til að láta þær rætast. Menn hafa orðið að byrja snemma að vinna sér fyr- ir daglegu brauði og á annan veg, en þeir hafa óskað sér, og' þess vegna ekki notið þeirrar vinnugleði, sem þeir hefðu hlot- ið af verki, sem væri við þeirra ósk og hæfi. En ástæðan fyrir því að svona hefir gengið til um áratugi er sú, að fjöldinn allur af æsku- mönnum er að pukrast með vandamál sín í einrúmi. Reynsl- an hefir þó sýnt með svo mörg- um óhrekjandi dæmum að „samtök er máttur“. Því ætti þá íslenzkur æskulýður ekki að bindast svo sterkum samtök- um, að. fyllsta tillit sé tekið til áhugamála hans? Við eigum að taka við þjóð- félaginu til uppbyggingar af

x

Árroði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.