Árroði - 08.11.1939, Síða 3
ÁRROÐI
♦----------------------------|
Á R R O Ð I
Málgagn Félags ungra jafn-
aðarmanna í Reykjavík.
Ritstjóri: Ág. H. Pétursson.
Áskriftargjald: Kr. 1,50 árg.,
en í lausasölu 15 aura ein-
takið.
Utanáskrift: F. U. J.
Reykjavík.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
I----------------------------1
STOFNUN F. U. J.
Frh. af 1. síðu.
— myndað sín eigin samtök. Nú
voru kraftar alþýðuæskunnar
sameinaðir í einu félagi, er
vinna átti að skipulagningu
starfseminnar í framtíðinni.
Eftir að svo var komið, var það
vitað mál, að ekki myndi reyn-
ast eins auðvelt fyrir íhalds-
öflin i landinu að liggja á mál-
efnum æskunnar.
Eins og vænta mátti var eitt
af aðaláhugamálunum að fá því
til leiðar komið, að kosningar-
rétturinn væri miðaður við 21
árs aldur. Og eftir mjög harða
og stranga baráttu alþýðuæsk-
unnar og Alþýðuflokksins tókst
að bera það mál fram til sigurs
á Alþingi.
Það æskufólk, sem þarna
hófst handa og stofnaði fyrstu
samtökin á meðal ungra jafn-
aðarmanna, má sannarlega
kalla brautryðjendur. í starfi
sínu sýndi það mjög mikinn á-
huga, dugnað og fórnfýsi, er
því mun seint verða fullþakk-
að.
Og hin íslenzka alþýðuæska
kunni að meta þetta brautryðj-
endastarf að verðleikum. Á
næstu árum á eftir flykktist
hún svo inn í raðir ungra jafn-
aðarmanna, að félagatalan
skipti brátt hundruðum.
Áhugi alþýðuæskunnar fyrir
hagsmunamálum æskulýðsins í
landinu var vakinn, og nú vildi
hún ekki lengur standa álengd-
ar sem áhorfandi, heldur taka
virkan þátt í því starfi, sem ver-
ið var að vinna henni sjálfri og
alþýðunni allri til heilla.
Fundarstarfið í Félagi ungra
jafnaðarmanna var í fyrstunni
mjög mikið. Voru umræðufund-
ir haldnir með stuttu millibili
og voru að jafnaði margir ræðu-
menn og umræður þar af leið-
andi miklar og á köflum all-
snarpar, enda varla við öðru að
búast, þar sem hér átti hlut að
máli æskufólk, er ræddi sín
brennandi áhugamál.
Margir umræðufundir voru
haldnir með andstæðingunum,
og urðu endalok þeirra jafnan
þannig, að ungir jafnaðarmenn
máttu vel við una.
Alþingishátíðarárið 1930 fóru
fram bæjarstjórnarkosningar,
og voru það fyrstu kosningarn-
ar eftir félagsstofnunina. í
þeirri kosningabaráttu unnu
ungir jafnaðarmenn með svo
miklum dugnaði, að þess verð-
ur ávalt minnzt, er um samtök
þeirra verður rætt eða ritað. Þá
gaf félagið út sitt fyrsta kosn-
ingablað, er var dreift út um
bæinn í þúsundum eintaka og
félagarnir unnu á allan hátt að
sigri Alþýðuflokksins. Mun ó-
hætt að fullyrða, að Félag
ungra jafnaðarmanna hafi átt
stóran þátt í þeim kosninga-
sigri, er Alþýðuflokkurinn
vann þá.
Það má segja, að starfsemi
F.U.J. hafi fyrstu árin aðallega
beinzt að hinu raunverulega út-
breiðslustarfi. Mjög mikil á-
herzla var lögð á það, að félag-
ið yrði sem allra fjölmennast,
án tillits til þess, hvernig hinni
innri félagsbyggingu væri hátt-
að, og að ekki hafði verið lagð-
ur traustur grundvöllur undir
fræðslustarf félagsins í fram-
tíðinni. Enda kom það brátt í
ljós, er árin liðu, að þessi starfs-
aðferð var ekki sú rétta, er fé-
laginu bar að vinna eftir á kom-
andi tímum. Þes$ vegna hefir
nú hin síðari ár verið unnið all-
mikið að því að breyta innri
starfsemi félagsins.
Er nú lagt allt kapp á að
skapa sem flestum félögum á-
kveðið hlutverk við þeirra hæfi.
Og með auknum starfshópum
má teljast víst, að takast megi
að skapa hverjum einasta fé-
laga ákveðið þroskandi verk-
efni til að vinna að.
Þegar félagsstarfinu er þann-
ig fyrir komið, má óefað telja,
að félagið sé á góðri leið með
að verða sá félagsmálaskóli al-
þýðuæskunnar, er hinir hug-
djörfu stofnendur þess sáu
hylla undir í framtíðarfyrir-
ætlunum sínum.
Á þessum tímmótum í sögu
Félags ungra jafnaðarmanna,
er það nú í dag fyllir 12. árið,
á ég enga betri ósk því til handa
en að það verði hinn raunveru-
legi félgsmálaskóli alþýðuæsk-
unnar, er verði þess megnugur
að ala upp þá starfskrafta, er
koma mega að gagni í barátt-
unni fyrir bættri afkomu og
menningu alþýðu í landinu.
| Nýstárleg bók j
|j Förumenn, I. bindi, jj
Dimmuborgir j;
eftir
Elínborgu Lárnsdóttur j;
;; Bókin lýsir íslenzku !;
fólki í íslenzkri sveita- jl
!; byggð — högum þess ;;
!| og háttum á síðari '1
;! hluta 19. aldar. Inn í frá- ;;
;; sögnina fléttast þjóð- !;
;! trúin samhliða hinum ;!
;; sérkennilegu og harla !;
1! ólíku myndum föru- ; 1
;; manna. Þetta er bókin, !;
sem allir þurfa að lesa ;!
;; og eiga. ;|
Áoæt tæbifærisgjöi. jj
Munið árshátíð F.U.J. í kvöld.