Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Síða 1
LAUGARDAGUR 14. MARS 2009 STOFNUÐ 1925 11. TBL. 85. ÁRGANGUR LESBÓK Afbyggðar ofurhetjur Ófáar andlitslyftingar í gegnum árin 3 Bóklegt popp: Svíar hrista grípandi laglínur fram úr erminni 5 8Á vit glundroðans:Bók Ahmed Rashid semObama ætti að lesa 9Verkinu lýkur í spurn:Atli Heimir hefur „þróaðstíl sinn af djörfung“ T il er tvennskonar þögn. Önnur af því tagi að ekkert orð er sagt. Hin er þannig að jafnvel er beitt orðaflaumi. Sú ræða talar fyrir tungumáli sem læst er undir orðaflaumnum. Tungumáli sem stöðugt er vísað til. Ræðan sem við heyrum vísar til ummerkja þess sem við heyrum ekki. Í henni felst knýjandi þörf fyrir að koma sér hjá einhverju, ofbeldisfullt, slægt, angistarfullt, eða háðslegt sjónarspil sem heldur því sem undir býr í skefjum.“ Svona lýsir Harold Pinter þögninni. Ef skilgrein- ing hans er rétt getur þögnin sem sagt verið ærandi í orðsins fyllstu merkingu. Vinur minn sendi mér þessi orð fyrir nokkru og þau hafa knúið á með auknum þunga síðan. Ekki síst í tengslum við þá umhleypinga sem samfélagið hefur búið við á sviði stjórnmála. Svo virðist nefni- lega sem þær breytingar sem orðið hafa á öllum grunngildum samfélagsins hafi ekki náð til póli- tísku orðræðunnar. Þar er allt við hið sama og menn láta eins og ekkert sé – halda bara áfram að búa til sjónarspil með orðaflaumi sem óhjákvæmi- lega leiðir hugann að því sem ekki er orðað; því sem liggur í þagnargildi. Nú er prófkjörsbarátta í algleymingi og kosn- ingar framundan. Fæstir frambjóðendur tala þó um það sem brennur mest á almenningi. Þeir beita fyrir sig óræðum – og í þeim tíðaranda sem nú ríkir nánast merkingarlausum – frösum á borð við „end- urreisn samfélagsins“, „uppbyggingu atvinnulífs- ins“, „jöfnun tækifæra“, „hagsmunir heimilanna“, „verk að vinna“, jafnvel „aukið traust“. Allt hljómar þetta sannfæringarsnautt, enda eins og hannað til að komast hjá því að ræða þá kröfu er fyrir liggur. Áhrif tungumálsins eru mögnuð, en einungis ef fólk skynjar dýpt þess. Áttar sig á því að tungumál- inu tileyrir auk orðanna bæði þögnin, hrein og tær, og þá ekki síður allt það sem ekki er sagt en allir „heyra“ – hátt og snjallt. Tvennskonar þögn ORÐANNA HLJÓÐAN FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR Tungumálinu tileyrir bæði þögn- in, hrein og tær, og það sem ekki er sagt en allir „heyra“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.