Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.2009, Page 1
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009
STOFNUÐ 1925
14. TBL. 85. ÁRGANGUR
LESBÓK
ELFRIDA ANDRÉE Spáð góðri
framtíð seint og um síðir 9
Morgunblaðið/Heiddi
Húmanímal
„Það var djókur innan hópsins að við
ættum ekki að kalla þetta dansverk.
Því þá myndi enginn koma“ 3
Brandari í bænum:
Íslensk nýbylgju-
tónlist vorið 1982
6Siðleysi stjórnmála:Saga Evu Joly og hlið-stæður á Íslandi
9Kundera áttræður:Útdráttur úr óútkominni grein
É
g hitti mann í vikunni. Hann minnti
mig á þá óþægilegu staðreynd að
eftir mesta góðæristímabil í íslensku
þjóðlífi er menningarstigið enn ekki
komið á það stig að í safnaflóru landsins sé
alþjóðlegt samtímalistasafn. Hér er ekki
einu sinni safn helgað innlendri sam-
tímalist. Við eigum m.ö.o. engar innistæður
á þessu sviði nú þegar kreppan er sest að.
Þegar Safn Péturs Arasonar lokaði dyr-
um sínum fyrir nokkrum misserum lauk
eftirtektarverðri tilraun. Tilraun sem dró til
sín um 20 þúsund gesti á ári – Íslendinga
og útlendinga um það bil til helminga.
Ef einungis er horft til ávinningsins af
slíku samtímalistasafni fyrir íslenskt mynd-
listar- og menningarlíf ber fyrst að nefna
að erfitt er að gefa raunsanna mynd af ís-
lenskri myndlist nema setja hana í sam-
hengi við umheiminn. Íslenskir samtíma-
listamenn eru engin eylönd; þeir hafa bæði
numið og unnið erlendis. Tengsl þeirra við
alþjóðlegar stefnur og strauma; við kollega
sína í öðrum löndum eru ekkert minni en
tengsl Laxness við verk Hamsuns, Sinclairs
eða Brechts á sínum tíma. Skilningur okkar
á Kristjáni Guðmundssyni er dýpri ef við
þekkjum Donald Judd, á Kristni Hrafns-
syni ef við höfum séð Lawrence Weiner –
og á þeim báðum ef við horfum á verk
Hreins Friðfinnssonar. Þannig mætti lengi
telja.
Þjóðin er stolt ef íslenskir myndlist-
armenn selja verk sín til erlendra safna eða
safnara. Samt safna íslensk söfn engum
myndlistarverkum annars staðar frá. Þeim
örfáu hugsjónamönnum hér á landi sem það
hafa stundað hefur ekki staðið margt til
boða vilji þeir deila verkum sínum með
þjóðinni, án þess að kosta til þess eigin
fjármunum – auk þess að leggja fram verk-
in. Þarf ekki að vinna í þessum málum?
fbi@mbl.is
Hugsunarháttur eyþjóðarinnar
ORÐANNA HLJÓÐAN
FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR
Erfitt er að gefa raun-
sanna mynd af íslenskri
myndlist nema setja
hana í samhengi við um-
heiminn.