Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.2009, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009 Lesbók 11
Draugasetrið Stokkseyri
Draugar fortíðar,
hljóðleiðsögn og sýning
Opið allar helgar frá kl. 14-18
Opnum fyrir hópa á öðrum tímum
www.draugasetrid.is
draugasetrid@draugasetrid.is
sími 483-1600 895-0020
Icelandic Wonders
Safn um álfa, tröll og norðurljós
Opið allar helgar frá kl. 14-18
www.icelandicwonders.com
info@icelandicwonders.com
sími 483 1600, 895 0020.
Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16
mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík
og nýjasta margmiðlunartækni.
Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni.
Opið alla daga frá kl. 10-17.
www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Endurfundir – fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna!
Þrælkun, þroski, þrá? Ljósmyndir af börnum við vinnu.
Leiðsögn á íslensku alla sunnudaga kl. 14.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17.
Aðgangur ókeypis fyrir börn.
www.thjodminjasafn.is
Söfnin í landinu
Görðum, 300 Akranes
Sími: 431 5566 / 431 1255
www.museum.is
museum@museum.is
Listasafn:
Það sem gerðist, ný verk Huldu
Vilhjálmsdóttur.
Bátasafn: 100 bátalíkön
Bíósalur: Verk úr safneign
Opið virka daga 11.00-17.00,
helgar 13.00-17.00
Ókeypis aðgangur
reykjanesbaer.is/listasafn
LISTASAFN ASÍ
Bjargey Ólafsdóttir
Stungið af til Suður-Ameríku
og
Keiko Kurita
tree/sleep
Sýningarnar opna
laugardaginn 4. apríl kl. 15:00
Opið 13-17 alla daga nema mánud.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
SKART OG SKIPULAG
Danska skartgripaskrínið
Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir
Hveragerði – nýr miðbær
Fyrirlestur í dag kl. 13
Elísabet V. Ingvarsd.
OPIÐ: fim. – sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
Hveragerði
NOKKRIR VINIR 13.2.-3.5. 2009
DIETER ROTH – PUZZLE Heimildarmynd Hilmars Oddssonar
um myndlistarmanninn Dieter Roth er sýnd í sal 2.
KÚLAN - hönnun og húsgögn frá tímabilinu 1957-62 til sýnis í kaffistofu
SES - design: Kynning á hönnuðinum Sigríði ELfu Sigurðardóttir í Safnbúð
LEIÐSÖGN Sun. kl. 14-15 í fylgd Ólafs Inga Jónssonar forvarðar
Hádegisleiðsögn þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10-12.40
Opið kl. 11-17 alla daga, lokað mán. Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR.
www.listasafn.is
P
latan sem á hug minn allan þessa dagana
er samnefnd frumraun New York-
sveitarinnar The Pains of Being Pure at
Heart, en aðgengilegt og melódískt indírokkið
hitti mig beint í mark við fyrstu hlustun.
Með árunum hefur tónlistarsmekkur minn
breyst mikið. Áður fyrr gat ég velt mér upp úr
plötum dögum saman og sett mig í stellingar til
að pæla í hinum og þessum tónsmíðum, en sá
tími er liðinn. Þessi plata uppfyllir einfaldar
kröfur mínar; hún er skemmtileg, töff og mel-
ódísk. Sumarfílingurinn allsráðandi.
Áhrifavaldar hljómsveitarinnar leyna sér heldur ekki. Sveitin er
greinilega undir sterkum áhrifum frá bresku indírokki frá níunda
og tíunda áratug síðustu aldar og má þar helst nefna sveitir eins
og The Smiths, My Bloody Valentine, Blur (frá þeim tíma þegar
drengirnir gátu eitthvað), Ride og Stone Roses. Ekki ónýt blanda
það!
Önnur plata sem mig langar að nefna er þriðja hljóðversplata
frönsku sveitarinnar Phoenix sem heitir því skemmtilega nafni
Wolfgang Amadeus Phoenix. Ég hef verið að hlusta aðeins á plöt-
una að undanförnu og hún lofar góðu. Skemmtilegt og melódískt
rafpopp, þá sérstaklega lagið „1901“ sem ég hef á tilfinningunni að
verði mikið spilað í sumar, að minnsta kosti í partíum heima hjá
mér! Svo má minnast á væntanlega plötu Doves frá Englandi, The
Kingdom of Rust, sem lofar góðu, en sú sveit er í miklu uppáhaldi
hjá mér. Já og svo hlusta ég á lagið „Mykonos“ með Fleet Foxes
nokkrum sinnum á dag, því mér finnst það eitt flottasta lag í heimi!
HLUSTARINN | Ægir Þór Eysteinsson
Þessi plata uppfyllir ein-
faldar kröfur mínar; hún er
skemmtileg, töff og mel-
ódísk. Sumarfílingurinn
allsráðandi. Höfundur er fréttamaður hjá RÚV.
Ég fór í Kolaportið um síðustu helgi. Þar var
maður að selja DVD-safnið sitt. Renndi í
gegnum bunkann, þessi hafði greinilega góð-
an smekk. Hann var með mikið af góðum
myndum, eiginlega bara góðar myndir.
Allavega keypti ég og hef verið að skoða;
Body Double / Brian De Palma – eldist vel, en
hann hefur fengið mikið frá Hitchcock, samt
meðvitað. The Samaritan Girl / Ki-duk Kim –
mjög áhugaverð mynd um stelpur í Kóreu
sem fara að selja sig, en eins og oft áður
meika þessar asísku myndir ekki nógu mikinn sens fyrir okkur
sem erum alin upp í Evrópu. Trading Places / John Landis, hún er
ennþá fyndin, Eddie Murphy eins og hann gerist bestur. Hanky
Panky / Sidney Poitier – of mikil steypa, hún er allavega ekki
fyndin í dag. The Boston Strangler / Richard Fleischer, óvenjuleg
mynd með flottum pælingum. Keypti líka en á eftir að horfa á
þessar; Ben Hur / William Wyler – hestvagnaatriðið situr enn í
mér frá því ég sá hana fyrst, er smá kvíðinn, það gæti skemmt
minninguna að sjá hana aftur. Less than Zero / Marek Kanievska
– ég á von á klassík þar.
Í lokin langar mig að mæla með heimildarmynd sem ég sá um
daginn í London; Anvil! The Story of Anvil, sem fjallar um kan-
adíska rokkhunda sem eru ekkert á því að gefast upp þótt ekkert
gangi upp hjá þeim. Snilld.
Í sjónvarpinu get ég nefnt fjóra þætti sem ég missi ekki af;
Silfur Egils, Kiljan, Little Britain USA og 60 minutes.
Hestvagnaatriðið situr enn
í mér frá því ég sá hana
fyrst, er smá kvíðinn, það
gæti skemmt minninguna
að sjá hana aftur.
GLÁPARINN | Júlíus Kemp
Höfundur er kvikmyndagerðarmaður.
Það vill svo skemmtilega til að ég er að lesa nýju
bókina hans Johns Perkins sem ber þann rosa-
lega titil The Secret History of the American
Empire: The Truth About Economic Hit Men, Jac-
kals, and How To Change the World. Og John
Perkins er einmitt væntanlegur til landsins í
næstu viku til að vera viðstaddur frumsýningu á
kvikmyndinni Draumalandið. Ég var búin að bíða
lengi eftir þessari bók en hún hefur ekki verið fá-
anleg á Íslandi fyrr en núna.
Ég las fyrri bók hans, Confessions of an Econmic Hit-Man, þegar
hún kom út fyrir nokkrum árum. Sú bók hafði mikil áhrif á mig og sat
lengi, lengi í mér. Síðan hef ég alltaf sagt að hún ætti að vera skyldu-
lesning fyrir hvert mannsbarn. Þegar ég las þessa bók fyrst þurfti ég
að lesa hana í áföngum af því að ég varð svo reið eftir hvern kafla.
Bókin segir frá persónulegri reynslu Perkins sem „economic hit
man“ en þeirra starf er að finna land eða ríki sem býr yfir nátt-
úruauðlindum sem amerísk stórfyrirtæki sækjast eftir. Þeir plata
stjórnmálamenn til þess að taka risastór lán, svo stór að löndin geta
alls ekki borgað þau til baka, en peningurinn fer aldrei til landsins
heldur til stórfyrirtækjanna sem standa fyrir framkvæmdum í land-
inu og tryggja þannig greiða leið að ódýrum náttúruauðlindum.
Það er nauðsynlegt að rifja þessa bók upp núna þegar Ísland er á
hausnum. Kárahnjúkavirkjun, stærsta framkvæmd Íslandssögunnar,
átti að skila okkur svo miklum hagvexti og mala gull. En þjóðin er of-
urskuldsett, Kárahnjúkavirkjun skilar tapi og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn farinn að stjórna landinu. Hljómar kunnuglega eftir að hafa
lesið John Perkins.
En svo til að vega upp á móti óréttlæti heimsins er ljóðabókin Hid-
den Music eftir persneska skáldið og súfistann Rumi aldrei langt
undan og ég les eitt ljóð nánast á hverjum degi. Það er nauðsynlegt
að hafa smá súfisma í lífinu.
LESARINN | Hanna Björk Valsdóttir
Þegar ég las þessa bók
fyrst þurfti ég að lesa hana
í áföngum af því að ég varð
svo reið eftir hvern kafla.
Höfundur er menningar- og fjölmiðlafræðingur.