Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.2009, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009
2 LesbókSKOÐANIR
Í þessum dálki um
fjölmiðla hafa
dálkahöfundar síð-
ustu vikurnar fjallað
um nauðsyn stétta-
baráttu. Mikilvægi
hennar hefur ekki
verið mikið til um-
ræðu á síðustu ára-
tugum. Sérstaklega
ekki eftir að fréttir
fóru að berast frá
Sovétríkjunum,
Kína og Kambódíu um hvernig stéttabaráttunni
væri framfylgt. Hugtakið er komið frá Marx sem
sagði að hagsmunir öreiga og fjármagnseigenda
gætu aldrei farið saman. Undirrót vandans væri
einkaeignin og tilhneiging til auðsöfnunar. Eig-
endur framleiðslutækjanna (fyrirtækjanna)
rændu arðinum af vinnu verkamanna sem létu
það viðgangast vegna þess að þeir skildu ekki
hvernig í pottinn væri búið. Marx taldi samt að að
lokum myndi verkalýðurinn rísa upp, afnema
einkaeignina og koma á alræði öreiganna. Lenín
nennti hins vegar ekki að bíða eftir því að verka-
lýðurinn næði þeim þroska að hann yrði meðvit-
aður um ástandið. Byltingin gat ekki beðið. Með
vopn í hendi hrifsuðu byltingarsinnar til sín völd-
in, afnámu rétt manna til að eiga fyrirtæki og
land og jafnvel íbúðir sínar. Þeir sem mótmæltu
voru fangelsaðir eða drepnir. Löngu seinna tókst
fólki í Austur-Evrópu að hrista af sér hlekki
kommúnismans en hann lifir þó áfram í Kína í
sérkennilegum ríkiskapítalisma.
stefosk@hi.is
Á meðan lærið steikist í ofninum, kartöfl-
urnar sjóða í pottinum og lögð eru drög að
brúnu sósunni fyrir hádegismatinn á
sunnudögum er mjög heimilislegt að láta
útvarpsmessuna á Rás 1 hljóma í bak-
grunninum. Á morgun milli kl. 11 og 12
verður útvarpað frá guðsþjónustu í Linda-
kirkju í Kópavogi. Séra Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson prédikar og séra Guðni Már Harð-
arson þjónar fyrir altari.
Á pálmasunnudegi er fleira kristilegt á
dagskrá Rásar 1. Þeir sem eru árrisulir
geta hlustað á þáttinn Með pálma í hönd-
unum sem hefst kl. 8.05. Í honum ræðir
Jónas Jónasson við fjóra presta um skoð-
anir þeirra á pálmasunnudeginum og þýð-
ingu hans fyrir nútímann.
Klukkan eitt er þátturinn Passíusálma-
lögin – Upp upp mín sál og allt mitt geð á
dagskrá. Ingibjörg Eyþórsdóttir fjallar um
lögin sem sungin hafa verið við Pass-
íusálmana frá upphafi, og tónlist frá sam-
tíma Hallgríms Péturssonar. Tilvalið er að
hlusta á þennan þátt Ingibjargar þegar bú-
ið er að sporðrenna lærinu og ísinn og nið-
ursoðnu ávextirnir eru borin fram.
Munið síðan að þegar lagt er á borð á
hnífurinn að vera hægra megin en gaff-
allinn vinstra.
ingveldur@mbl.is
Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi menningar Fríða Björk Ingvarsdóttir, fbi@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent
TÍMINN upp úr 1980 var spennandi fyrir ungan rokkara. Eitthvað
gerðist og skyndilega var alls staðar verið að spila eitthvað hrátt
og ferskt. Það voru tónleikar hér og þar, á æskuslóðum suður
með sjó og á hinum enda puttaferðalaga í bæinn. Utangarðs-
menn, Þeyr, Purrkurinn, Jonee Jonee; reynt var að sjá þessar
sveitir, og fleiri, sem oftast.
Vitaskuld tilheyrði að fylgjast með líflegum hræringum í Bret-
landi og ein þeirra hljómsveita sem mest var fylgst með nefndist
Killing Joke. Vorið 1982 hafði hún gefið út tvær plötur sem mikið
var hlustað á. Það var þá sem forsprakkar banvæna brandarans
gerðu strandhögg á Íslandi.
Athyglisvert er að fletta dagblöðum frá vorinu 1982 og lesa
tónlistarfréttir. Bodies eru að gefa út plötu, Þursar nýbúnir að
gefa út Gæti eins verið og sveit sem hét Þrumuvagninn var kom-
in með nýjan samning. Svo má sjá frétt um að Jaz Coleman, for-
sprakki Killing Joke, og gítarleikarinn Geordie Walker hefðu verið
á landinu í níu daga og líklega léki hljómsveitin á tónleikum hér í
ágúst þetta sama ár. Eykst síðan skriðþungi fréttanna. Sprengi-
fyrirsögn í mars: „Jaz úr Killing Joke genginn til liðs við Þeysara.“
Síðar er fullyrt að hluti Þeysara muni starfa með Jaz undir nafn-
inu Iceland, og einhvers staðar má sjá að Birgir Mogensen verði
bassaleikari Killing Joke. Flækjurnar voru miklar; fyrir unga tón-
listarunnendur – og einnig innan hljómsveitanna.
Þetta vor var ég 15 ára fréttaritari Morgunblaðsins og var
spurður hvort ég hefði áhuga á að taka viðtal við þennan breska
rokkara, Jaz Coleman. Vitaskuld. Fullur lotningar sat ég skömmu
síðar yfir syfjuðum söngvara í risíbúð við Fálkagötu. Geordie svaf
uppi í sófa. Ég man ekki margt frá samtalinu, eitthvað um rokk,
Þeysara, erfiðleika, góðu hljómsveitina „Rombre“ – Vonbrigði.
Coleman endaði spjallið á því að setjast við píanóið. Þá tók ég
myndina. Hún er það eina sem lifir úr heimsókninni því filmurnar
týndust með veskinu mínu á tónleikum í Stapa skömmu síðar. Lít-
ið varð af samstarfi Þeysara og Colemans, annað en nokkur upp-
tekin lög með bandi sem kallaðist Iceland.
Killing Joke mun enn starfa, með þeim Jaz og Geordie.
efi@mbl.is
Brandari við Fálkagötu
Vorið 1982 ógnaði rokkarinn Jaz Coleman úr hljómsveitinni Killing Joke
jafnvæginu í íslenskri nýbylgjutónlist, er hann vildi vinna með Íslendingum
Morgunblaðið/Einar Falur
Jaz Coleman Söngvarinn bítur í vör og leikur rokk á píanó við Fálkagötu.
R
oðinn í austri hefði getað verið yf-
irskrif landsfundar Samfylking-
arinnar af sviðsmynd hans að
dæma. Ætli það hafi verið úthugsað
hjá ímyndasmiðum hennar að hanna svið-
myndina þannig að sósíalíska hefðina að
austan kæmi í hugann? En leiðtogar með
hendur á lofti, ýmist baðaðir í rauðu eða
appelsínugulu ljósi innan um austræna
skerma og framandi trjágróður, kölluðu
a.m.k. fram þessi hughrif í mínum huga.
Kannski var fréttamanni og ljósmyndara
Fréttablaðsins eins innanbrjósts ef marka
má forsíðu blaðsins síðasta laugardag.
Ómeðvitað hefur þeim e.t.v. fundist eins og
þeir væru komnir á samkomu þar sem fund-
argestir safnast saman til að hylla hinn
mikla leiðtoga líkt og alþekkt var í austræn-
um einræðisríkjunum þar sem persónu-
dýrkun leiðtoga hefur náð einna hæstu hæð-
um á síðustu áratugum. Nægir að nefna
dæmi frá Kína, N-Kóreu og Sovétríkjunum
sálugu.
En kannski var Fréttablaðið bara að gera
grín af leiðtogaskiptunum í Samfylkingunni
því Jóhanna Sigurðardóttir hafði með mikl-
um semingi fallist á að taka við formennsk-
unni þegar enginn annar fékkst til þess.
A.m.k. var myndin algjör brandari. Hún
sýndi Jóhönnu, í Búddarauðum jakka, lúta
höfði líkt og í djúpri lotningu fyrir Ingi-
björgu Sólrúnu sem reis hátt fyrir ofan
hana úr rauðum ræðustóli. Stólinn virtist að
auki í þann veg að hefja sig til lofts líkt og
hann stefndi af hinu jarðneska sviði.
Mistökin með sviðsmyndina komu glögg-
lega fram í sjónvarpsfréttum á sunnudags-
kvöld þegar sýnt var úr ræðum nýkjörinna
formanna Samfylkingarinnar og Sjálfstæð-
isflokksins. Tæp þrjátíu ár skilja að for-
mennina tvo, þau Jóhönnu og Bjarna. Þessi
mikli aldursmunur var enn betur rammaður
inn með sólarlagsstemmingunni á sviðinu í
Smáranum. Þar var sem sól væri að hníga
til viðar og nóttin löng að taka við. Jóhanna,
sem þó býst við að vera formaður til næstu
áratuga lofaði í kraftmikilli lokaræðu sam-
félagi jöfnuðar og því að Ísland gengi í
ESB, hönd í hönd með VG. Fyrir það upp-
skar hún mikið lófaklapp.
Davíð Oddsson fékk líka mikið lófaklapp
á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um síð-
ustu helgi. Mörgum er hlýtt til kappans
sem lengi hefur staðið í eldlínunni. Ekki
síst var síðasta ár honum mjög mótdrægt
sem og Íslandi auðvitað öllu. Í lok fund-
arhalda á laugardegi, rétt áður en gestir
gerðu sig klára fyrir landsfundarball, hélt
hann beitta ræðu. Inntak hennar var að
stjórnmálamenn hefðu sofnað á verðinum
og látið viðgangast að völdin færðust á
hendur fárra auðmanna sem höfðu örlög
Íslands í hendi sér. Í ræðunni var engum
hlíft hvorki Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu
né forystumönnum atvinnulífsins og sárn-
aði því ýmsum enda oft hátt reitt til höggs.
Ekki líkti hann sjálfum sér við Krist eins
og haldið var fram í fréttum Stöðvar 2
heldur sagði „að þegar verklausa minni-
hlutastjórnin hengdi þrjótinn Davíð“ lét
hún sig hafa það að hengja líka tvo strang-
heiðalega menn honum til samlætis.
Brandaranum var vel tekið eins og öðrum
sem hann kastaði fram. Það þekkja þeir
sem hlustað hafa á tækisfærisræður hans
að Davíð er einn fremsti grínisti Íslands.
En í bland við grínið var auðvita mjög al-
varleg ádeila á íslensk stjórnmál og ráða-
leysi stjórnmálamanna gagnvart sterkum
hagsmunaöflum og áróðri þeirra. Og eins
og fyrri daginn setti Davíð mál sitt fram á
afar afgerandi hátt. Þessa ræðu, og allar
aðrar sem fluttar voru á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins um síðustu helgi, má
hlusta á í gegnum www.xd.is. Landsfundur
Samfylkingarinnar er ekki varðveittur
með þessum hætti og því getur almenn-
ingur ekki kynnt sér umræðurnar sem þar
fóru fram. stefosk@hi.is
Útúrsnúningar
MORGUNBLAÐIÐ/ÓMAR
Samfylkingin Samkoma „þar sem fundargestir safnast saman til að hylla hinn mikla leiðtoga líkt og alþekkt var í austrænum einræðisríkjunum [...]“?
FJÖLMIÐLAR
STEFANÍA ÓSKARSDÓTTIR
En í bland við grínið var
auðvita mjög alvarleg
ádeila á íslensk stjórnmál
og ráðaleysi stjórnmála-
manna gagnvart sterkum
hagsmunaöflum og áróðri
þeirra
ÞETTA HELST
Stéttabarátta
Kína Land
ríkiskapítalismans.
Heilagur
sunnudagur
Útvarpsmessa kl. 11
MÆLT MEÐ