Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.2009, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009 Lesbók 3DANS
Eftir Arnar Eggert
Thoroddsen
arnart@mbl.is
É
g og vinir mínir erum eins slags fjöl-
listahópur, skipaður fólki úr hinum og
þessum geirum listarinnar en þar er
að finna leikara, dansara, tónlistar-
mann og grafískan hönnuð. Um leið er um
vinahóp að ræða, innan hans eru pör, skyld-
fólk og æskuvinir, en hópinn skipa þau Álfrún
Helga Örnólfsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir,
Friðrik Friðriksson, Gísli Galdur Þorgeirsson,
Jörundur Ragnarsson, Rósa Hrund Krist-
jánsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Saga Sig-
urðardóttir og Friðgeir Einarsson.
Bygging Húmanímal er mjög afstrakt og í
sýningunni renna ólíkar listgreinar saman.
Þetta er ekki leiksýning, ekki danssýning.
Kannski myndlist? Eða tónleikar? Eða...
Vinnan að baki verkinu gat þá í raun af sér
annað verk, eins slags tilraun. Lýðræðið, og
samvinnan, var því höfð að leiðarljósi.Eitt-
hvað sem átti heldur betur eftir að reyna á...
Verk eftir alla ... og engan
Hópurinn var settur saman í tengslum við
þessa sýningu,“ segir Margrét Bjarnadóttir,
danshöfundur. „Það fyrsta sem varð til, rótin
að þessu öllu, var nafnið á verkinu. Húm-
anímal.“
Með Margréti eru þau Saga Sigurðardóttir
og Friðgeir Einarsson. Við sitjum saman á
kaffihúsi í Laugardalnum – öll á kafi í verk-
inu. Saga er einnig danshöfundur en Friðgeir
kemur fram í sýningunni auk þess að sinna
ýmsum verkefnum. Líkt og þær Margrét og
Saga. Fólk gekk þannig í það sem þurfti og
ólíkar nálganir og áherslur nudduðust saman
af krafti allt verkferlið. Eitthvað sem með-
limir glöddust yfir og græddu á en pirruðu sig
á og skelltu hurðum yfir á sama tíma.
Það er merkilegt að fylgjast með þríeykinu
tala saman um verkið, þar sem þau eru ekkert
endilega sammála um útgangspunkta og
áherslur. Nýjar hugmyndir spretta þá upp í
samræðunum, eins og verkið sé enn að verða
til, sé enn í mótun.
„Fæst okkar hafa unnið saman í svona
stórum hópi áður,“ útskýrir Margrét. „Þetta
varð því nokkurs konar tilraun í leiðinni, að
sjá hversu langt væri hægt að fara með þetta
lýðræði.Eins og ég upplifði þetta varð tíunda
manneskjan til – úr okkur öllum. Þessi sýning
er í raun eftir þessa manneskju – við getum
kallað hana Jón, til að jafna kynjahlutföllin í
hópnum!“
Þau segja verkið í raun nokkurs konar
mannfræðistúdíu. Það fjalli í grunninn um
hvatir mannanna, óhamdar og dýrslegar og
hvernig menn reyni um leið að bæla þær nið-
ur. Hið mikla návígi fólks við vinnslu verksins,
endalausar umleitanir og ákvarðanatökur,
höfðu þá rík áhrif á söguþráð þess.
„Verkið smitaðist óhjákvæmilega af þessu,“
segir Saga. „Pælingar um vald og yfirráð. Við
hefðum eiginlega átt að gera heimildarmynd
um vinnsluna, sem var ævintýri út af fyrir sig.
Hún hefði getað staðið sem sjálfstætt verk.
Aukaverk - sem enginn fær að sjá.“
Egóinu slátrað
Friðgeir segir að á meðan allir hafi unnið
jöfnum höndum að sama markmiði hafi nálg-
un hinna ólíku listamanna eðlilega verið afar
mismunandi. Þá var lögð áhersla á að afnema
einkaeignarréttinn yfir hugmyndum.
„Allar hugmyndir voru lagðar fyrir nefnd
og svo fóru þær í gegnum síu,“ segir Margrét.
„Hugmyndin gat endað sem eitthvað allt ann-
að en þú lagðir upp með í byrjun.Það verður
oft til krafa í svona hópi um að allir þurfi að
skilja hverja einustu hugmynd, sem getur
verið hættulegt og oft ómögulegt. Það gat því
brugðið til beggja vona. Stundum varð þetta
að útþynntri útgáfu að þinni hugmynd, að
þínu mati a.m.k.! Eða þá að hún varð enn
betri.“
Við sammælumst um að þessi vinnuaðferð
sé afskaplega óvestræn, sé eiginlega búddísk.
Sjálfið var skilið eftir við þröskuldinn og ein-
staklingarnir níu runnu eftir það saman í einn
og óeigingjarnan höfund.
„Þannig að, þó að hugmyndin kæmi frá þér
þá varðstu að gefa hana frá þér,“ segir Frið-
geir.
„Egóinu var slátrað. Sýningin er ekki eftir
neinn. Hún er eftir alla og engan. En svo kom
að því að einhver þurfti að stíga út úr hópnum
og stíma skútunni í land og það kom í hlut
Friðriks.“
Hvatir, bæling, kyneðli, þetta er það sem
hópurinn veltir fyrir sér, jafnt afstrakt sem
beinskeytt og bókstaflega.
„Við erum að skoða það hvernig það er að
vera maður með allan þennan kraft sem þarf
stundum að beisla,“ segir Margrét. „Eða öllu
heldur, hann þarf iðulega að beisla. Við vörp-
um upp myndum af þessu. Sýningin rennur
ekki línulega, hún er eiginlega eins og
skyggnusýning. Þetta eru afstrakt myndir;
ljóðrænar og opnar.“
Þegar hér er komið sögu er þríeykið aftur
farið að kasta á milli sín ólíkum skoðunum um
hvað verkið sé. Þau hlæja að ósamræminu.
„Þetta er eiginlega ljóðabók með teikn-
ingum og hljóðdæmum,“ segir Margrét og
horfir spyrjandi í kringum sig. „Er það ekki
bara?“ Og aftur brestur á með hlátri.
Ekki „bara eitthvað“
Að framansögðu er ekki nema rökrétt að ætla
þetta verk afar tilraunakennt. Eða hvað?
„Jú, að sjálfsögðu,“ segir Sara. „Hópurinn
er tilraun. Verkið er uppfullt af tilraunum.“
Friðgeir áréttar.
„En um leið er þetta á einhvern hátt að-
gengilegt. Þetta er ekki brotakennd skissa.
Þetta er ekki „bara eitthvað“. Við erum að
reyna að komast að einhverju, segja eitthvað,
hreyfa við fólki. Það er upphaf þarna og endir.
Það eru persónur þarna og samtöl. Að ein-
hverju leyti er þetta hefðbundið.“
Eða eins og ein Músíktilraunasveitin lýsti
sér: „Við erum tilraunakennd hljómsveit. En
samt alls ekki ... en samt...“ Þessi staðhæfing
blaðamanns vekur mikla kátínu.
„Við verðum eiginlega að stela þessari lýs-
ingu!“ segir Margrét og hlær. Saga bætir við
glúrinni athugasemd.
„Ef það hefði ekki verið búið að finna upp
orðið kvikmynd myndi ég lýsa verkinu sem
kvikmynd. Kvik-mynd.“
Vinirnir segja sýninguna standa a.m.k. til
aprílloka, hugsanlega eitthvað fram í maí.
Draumurinn sé svo að fara með hana út á
land – og jafnvel til útlanda.
En hvað næst? Hvað ætlar hópurinn að
demba sér í?
„Ég veit ekki,“ segir Margrét sposk. „Ég
veit hreinlega ekki hversu margir innan hóps-
ins hafa lyst á meira samstarfi af þessum toga
(hlær). Nú er allt á suðupunkti, nokkra daga
fyrir sýningu. Þessi orka og þessi spenna
setja sinn svip á sýninguna. Á jákvæðan hátt.
Það er kraftur í henni. Ég held að fyrsta
verkefni eftir sýningar sé einfaldlega bara að
setjast niður með kaffi og tala um eitthvað-
mallt annað – eins og við gerðum áður en við
lögðum í þetta. Þessi hópur stóð á mjög föst-
um vináttugrunni fyrir verkefnið og vináttan
hefur aldrei verið í hættu. En við höfum
óneitanlega farið í langt og strangt ferðalag
saman og átt mörg rifrildin. Ætli við höfum
ekki átt c.a. 70 fundi þar sem var farið yfir
stöðuna og hún endurmetin. Lýðræðið ... það
er ekkert lamb að leika sér við, get ég sagt
þér.“
Þessu niðurlagi fylgir stutt þögn ... og svo
einkar smitandi hlátur. Og þrátt fyrir tilfinn-
anlega spennu er um leið einhver léttir yfir
mannskapnum þar sem hann er loksins farin
að sjá til hafnar.
„Helst langar mig til að skrifa bók um þetta
tímabil,“ segir Margrét að lokum. „Þetta er
búið að vera ótrúlegt. Alveg ótrúlegt...“
Brotist undan bælingunni
Fjöllistahópurinn Ég og
vinir mínir frumsýnir
verkið Húmanímal í
Hafnarfjarðarleikhúsinu
í kvöld. Meðlimirnir níu
beittu einkar óhefð-
bundnum aðferðum við
vinnsluna. Listinni – og
vináttu meðlima – var
þar ýtt út á ystu nöf.
Morgunblaðið/Heiddi
Neind „Egóinu var slátrað. Sýningin er ekki eftir neinn. Hún er eftir alla og engan.“
ÁFRAM VEGINN...
Morgunblaðið/ÞÖK
HVERT? Margrét Bjarnadóttir ... dansar?
STAÐA nútímadansins hefur verið all-
nokkuð í umræðunni að undanförnu og
sumir eru farnir að finna lyktina af nokk-
urs konar umbyltingu. En þetta er snúið
mál. Er nútímadans staðnaður? Eða getur
form, sem á allt sitt undir framsækni og
tilraunastarfsemi, nokkuð staðnað? Er
hægt að tala um hefðbundna óhefð-
bundni?
Margrét hefur beitt sér markvisst að
því að skoða eigindi dansformsins í verk-
um sínum, t.a.m. útvarpaði hún dansi fyrir
tveimur árum. Og í Húmanímal er að finna
dans ... sem lítur kannski ekkert út fyrir að
vera dans.
„Í mínum huga er nútímadans eins og
tónlist; með alls kyns undirstefnum og
geirum; blæbrigðum og áherslum. Það var
grín innan hópsins að við ættum ekki að
kalla þetta dansverk. Því þá myndi enginn
koma. Nútímadans er eðlilega mjög vítt
hugtak, rétt eins og samtíma myndlist.
Mér finnst mikilvægt að vinna með
svona marga miðla, því þannig er nánast
hægt að lauma dansinum inn. Og þó að
flestir sjái eitthvað ekki sem dans, þá er
það dans í okkar huga. Ég kem úr dansi og
það er minn miðill, og mitt tjáningarform
og ef ég kýs að tjá mig með því að labba í
hringi í klukkutíma, þá er það dans. Það
koma hugmyndir eða tilfinningar sem
mann langar frekar að koma til skila með
tali eða einhverju öðru og þá hikar maður
auðvitað ekki við það. Það frelsi er sjálf-
sagt. Þó að mér finnist ekki þurfa að hólfa
hluti svona niður þá finnst mér mikilvægt
að kalla það sem ég geri dans, því honum
veitir ekkert af stærra hólfi með meira
andrými.
Að dansa ... án
þess að dansa ...
Þessi hópur stóð á mjög
föstum vináttugrunni fyrir
verkefnið og vináttan
hefur aldrei verið í hættu.
En við höfum óneitanlega
farið í langt og strangt
ferðalag saman og átt
mörg rifrildin.
Húmanímal er frumsýnt í kvöld kl. 21. Nánari
upplýsingar má nálgast á www.hhh.is,
www.midi.is og á Fésbókinni (sláið inn „Húm-
anímal“ í leit).
„Dansi, dansi ... eða hvað?“
VEFVARP mbl.is