Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.2009, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009 Lesbók 7
að
seg-
með
tar-
allar
m
m
n þó
ar
ar
n.“
unn-
m
m
t þó
ssu
álinu
Joly
auk
ynd
ar
dur
ti
það
lsins
r og
s
æli.
a,
efur
því
r
tta
ns-
ðri
og
u
rinn
ki
s á
ð.
s-
aldi,
m
æti.
m
eig-
risa-
ás í
,
hug-
tni
ti
á
nni
skylt að innleiða þær á grundvelli EES-
samningsins. Við hefðum átt að standa öðru-
vísi að málum, vera gagnrýnni í hugsun,
standa við okkar sannfæringu. Við verðum öll
að draga lærdóm af mistökum fortíðarinnar
og tryggja að öðruvísi verði staðið að málum í
framtíðinni og ganga í þeim efnum hreint til
verks.“
Hér kveður við annan tón en í setning-
arræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á
landsfundi Samfylkingar, en þar taldi hún ein
helztu mistök kratanna hafa verið þau að sitja
í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og þá
að mér skildist sem einhvers konar bandingi
eða samfylgdarmenn án samvizku!
Á þessari afstöðu er mikill munur og vekur
athygli, þegar haft er í huga að banka-
málaráðherrann var samfylkingarmaður og
bar því hvað mesta ábyrgð á ferlinu, enda axl-
aði hann þá ábyrgð, þegar hann sagði af sér
ásamt þeim fjármálaeftirlitsmönnum sem
lentu í þessum hremmingum.
Það var pólitískur hælkrókur.
En hann er að vísu á leið inn á Alþingi aft-
ur, ásamt fjölda þingmanna sem ábyrgð bera
og hafa ekki beðizt afsökunar á neinu (t.a.m.
þessum 13%).
En það var ekki þessi kafli um ábyrgðina
sem vakti mesta athygli mína, þegar ég hlust-
aði á Geir halda ræðu sína í Laugardalshöll,
heldur það sem hann sagði um hina dreifðu
eignaraðild og vitnað er í hér að framan.
Það gefur augaleið að einkavæðingin hefði
átt að leiða til stofnunar almenningshluta-
félaga um bankana eins og til var ætlazt í stað
þess að afhenda þá auðmönnum, og vísa ég til
þess að á sínum tíma boðaði Morgunblaðið
þetta hlutafélagaform sem valkost í stað sósí-
alisma á erfiðum kaldastríðstímum, þegar
svonefnd félagshyggja, blandað hagkerfi eða
jafnvel þjóðnýting voru efst á baugi.
En í Baugsmálinu hafa ókostir almennings-
hlutafélagakerfisins því miður komið í ljós
með afdrifaríkum hætti, því að þessi leið getur
boðið upp á alls kyns brask eins og sýndi sig í
Baugi. Þar notuðu aðaleigendurnir og stjórn-
endur fjárframlög almennings til eigin nota,
lánuðu sjálfum sér og svífust einskis. Þeir
mökuðu krókinn fyrir sjálfa sig og almennir
hluthafar höfðu ekkert um það að segja, fengu
kannski einhverja dúsu og þögðu.
Það er semsagt engin trygging fyrir því að
svonefnd dreifð eignaraðild hefði komið í veg
fyrir þann glannaskap sem þarna átti sér stað
fyrst eftirlitskerfið var ekki burðugra en raun
ber vitni.
Eða sparisjóðirnir, hvernig er komið fyrir
þeim? Og hvað segir það okkur?
Sem svar við ummælum Geirs H. Haarde
sagði Davíð Oddsson í sinni beinskeyttu,
fyndnu og sögulegu landsfundarræðu, að
hann hefði viljað 3-8% eignaraðild við einka-
væðinguna eins og fram kom í þinginu, en
Samfylkingin verið því andvíg.
Og nú má spyrja: Á Samfylkingin svar við
þessu?
Davíð drap á fleira, m.a. fjölmiðlalögin og
tengsl Baugs við áróðursmaskínu auðhrings-
ins sem sveifst einskis.
Samfylkingin fékk sinn skerf og kom eng-
um á óvart.
Hitt kom aftur á móti á óvart hvernig höf-
undar endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokks-
ins urðu fyrir breiðum spjótum formannsins
fyrrverandi, en hann kallaði hana „hráslaga-
leg“ vinnubrögð og pappírinn í hana vonda
nýtingu skógræktar!
Vilhjálmur Egilsson skýrsluformaður taldi
þetta ómaklegt, en mátti búast við því að lítt
yrði af setningi slegið, ef miðað er við aðdrag-
andann. En hann svaraði ekki meinhæðinni
ásökun Davíðs um tengsl við Baug og útrás-
arvíkinga fyrr en eftir fundinn og þá með sín-
um hætti. Og skiptir svo sem ekki máli.
En það varð kúnstpása á landsfundinum!
2
Í lokin má svo vitna í það sem Eva
Joly sagði á nýlegum blaðamanna-
fundi með dómsmálaráðherra, þegar
hún var ráðin til starfa til að upplýsa
bankahrunið. Um það segir svo í frétt rúv:
„Eva Joly segir markmið vinnu sinnar vera
að leiða þá sem hafi gerst brotlegir fyrir ís-
lenskan rétt og sakfella þá.“
Og ennfremur í sjónvarpinu: „Ég tel að al-
varlegir glæpir hafi verið framdir og afleið-
ingar þeirra heimta þunga dóma. Ég held að
það sé tími til kominn fyrir venjulegt fólk að
sætta sig ekki lengur við svona lagað, að það
gangi fram fyrir skjöldu og segi frá því sem
það veit. Með þeirra hjálp gengur starf okkar
mun skjótar fyrir sig og það skilar einnig
betri árangri.“
Skyldu ný Baugsmál vera í uppsiglingu!
(Sjá fleiri greinar, Á vígvelli siðmenningar,
á matthias.is, en þar var útrásin gagnrýnd frá
upphafi.)
1
Í tæpitungulausri, yfirgripsmikilli og
hreinskilinni setningarræðu Geirs H.
Haarde á 38. landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins komst hann m.a. svo að
orði, að sögn Morgunblaðsins:
„En stærstu mistök okkar sjálfstæð-
ismanna sem tengjast bankakerfinu og hruni
þess voru gerð við einkavæðingu bankanna
fyrir rúmlega sex árum. Með því að falla frá
þeirri stefnumörkun sem ákveðin hafði verið
um dreifða eignaraðild urðu okkur á mikil
mistök. Þegar eigendur bankanna gerðust
umsvifamiklir í atvinnulífinu og eignatengsl
milli viðskiptablokka urðu gríðarlega flókin og
ógegnsæ var stöðugleika bankakerfisins ógn-
að. Hefðum við sjálfstæðismenn haldið fast
við okkar upphaflega markmið um dreifða
eignaraðild eru líkur á því að bankarnir hefðu
ekki verið jafn sókndjarfir og áhættusæknir
og raunin varð,“ sagði Geir.
Hann sagði að það breytti ekki öllu um
ábyrgð sjálfstæðismanna á mistökum við
einkavæðingu bankanna að eftirlit með óeðli-
legum viðskiptaháttum og skaðlegum eigna-
tengslum hefði verið á höndum annarra flokka
frá árinu 1991.
„Það breytir heldur ekki öllu um ábyrgð
okkar að aðrir flokkar gerðu lítið sem ekkert
þegar Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að sporna
gegn óeðlilegum áhrifum auðhringja í ís-
lensku samfélagi, og sumir þeirra lögðust
reyndar á árarnar með stórfyrirtækjunum í
þeim átökum (leturbr. mín MJ ). Það breytir
heldur ekki öllu um okkar ábyrgð að við
sömdum ekki þær leikreglur sem bankarnir
og önnur fyrirtæki fóru eftir heldur var okkur
Ný Baugsmál?
Morgunblaðið/RAX