Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.2009, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.2009, Síða 9
Frá Unuhúsi til Áttunda strætis Louisa Matthíasdóttir (1917-2000) og Nína Tryggvadóttir (1913-1968) eru meðal fremstu listamanna tuttugustu aldarinnar hér á landi. Á fimmta áratug aldarinnar stunduðu þær báðar myndlistarnám í skóla Hans Hofmann í New York, ásamt fleiri nemendum. Sýningin hefur verk þeirra Nínu og Louisu í forgrunni, einnig verk frá því fyrir stríð þegar báðar voru tíðir gestir í Unuhúsi, en þar má einnig sjá verk eftir aðra nemendur Hans Hofmann. Á sýning- unni verða meðal annars verk eftir listakon- urnar sem ekki hafa verið sýnd opinberlega áður og leitast er við að gefa mynd af þró- un þeirra á listferlinum. Listasafn Reykjavíkur Kjarvalsstaðir Kyrralífsmynd Verk frá árinu 1973 eftir Louisu Matthíasdóttur. um toga, þar sem listamennirnir setja sjálfa sig í aftursætið til að vekja athygli á ákveðnu málefni en hér er treyst á samvinnu bæði listamanna og áhorf- enda. Vart þarf að taka fram að aðstandendur lista- mannahússins StartArt sem stendur fyrir gjörn- ingnum eru allir konur, en vert að geta þess að þeir listamenn sem taka þátt eru af báðum kynjum. Konur í galleríum og opinberu rými Auk þeirra sýninga sem sagt er frá í römmunum á þessum síðum má nefna að í Gallerí i8 opnar Hrafn- hildur Arnardóttir, sem býr og vinnur í New York, einkasýningu. Í Gallerí Ágúst opnar Guðrún Gunn- arsdóttir sýningu sína, í Listasafni ASÍ stendur yfir sýning Þóru Sigurðardóttur og Sólrúnar Sum- arliðadóttur og síðan tekur Aðalheiður Valgeirs- dóttir við. Á vegum Listahátíðar sýnir norska listakonan Marit Benthe Norheim skúlp- túra á götum Reykjavík- ur, undir titlinum Camp- ingkvinner. Framlag Natalie Jeremijenko til Listahátíðar er síðan mjög áhugavert en hún er ýmist kölluð hugmynda listamaður, nýsköpunarkona eða hönnuður. Hún vinnur verk sín í sýningarsal Orkuveitu Reykjavík- ur, við Reykjavíkurtjörn og víðsvegar um borgina. List þessara tveggja, Norheim og Jeremijenko fylgir þeim straumum í listum sem nefndir voru hér að ofan, þar sem þátttaka listamannsins í samfélag- inu er rauður þráður. Af ofantöldu er ljóst að í myndlistinni er mikið kvennavor í ár. En sé það svo að list kvenna blómstri hugsanlega á erfiðum tímum og að þær séu eftirsóttar til sýningarhalds, má líka spyrja sig að því hvað gerist þegar betur árar. Það er því eins gott að grípa gæsina á meðan hún gefst og nota tækifærið til að efla okkur konum dug og dáð. i Guðmundu S. Kristinsdóttur. Ekki er langt síðan ís- lenskar myndlistarkonur voru eins og þvottakon- urnar flestum ósýnilegar. Höfundur er rithöfundur og myndlistargagnrýnandi. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009 Lesbók 9 Olga Bergmann hefur á undanförnum árum vakið verðskuld- aða athygli fyrir list sína sem stundum minnir á rannsókn- arstofu vísindamanns. Hér sýnir hún myndbandsverk, skúlp- túra og fundna hluti og leitast í verkum sínum við að skoða og rannsaka hvað það er sem gerist þegar lífið tekur óvænta stefnu, hvort sem um er að ræða líf heils samfélags eða ein- staklinga. Listasafn Reykjanesbæjar Í húsi sársaukans Rannsókn Olga leggur safnið undir rannsókn á lífinu. Jónína Guðnadóttir (1943) er þekkt fyrir verk sín sem byggjast á grunni leirlistar. Allt frá því á sjöunda ára- tugnum hefur Jónína verið ein af frumkvöðlunum í vinnu sinni með leir sem frjálst listform. Sýning henn- ar heitir Vættir og vísar aftur í tímann jafnt og til sam- tímans. Guðný Guðmundsdóttir býr og starfar í Berlín, hún vinnur með samspil stórra teikninga, skúlpúra og rýmis í sýningunni Madame Lemonique & Madame Le- monborough. Sýningar þeirra eru valdar með það í huga að skapa samtal tveggja kynslóða sem mótaðar eru af ólíkum tíðaranda, hér kristallast það sem virðist vera þema vorsýninga í myndlistinni í ár. Hafnarborg Vættir Jónínu og maddömmur Guðnýjar Skúlptúr eftir Jónínu Sýningin er samtal tveggja kynslóða. Minnimáttarkenndarbakterían Verk Gabríelu Friðriksdóttur, en hún er í þeim hópi kvenna sem hlotið hafa viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu R. Kristinsdóttur. Möguleikar Í Hafnarhúsi við Tryggvagötu sýna mynd- listarkonur sem hlotið hafa viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu R. Kristinsdóttur. Þetta eru þær Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurðardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Þóra Þór- isdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir og Hulda Stefánsdóttir. Á sýningaropnun hinn 28. maí bætast tvær konur í hóp verðlaunahafa. Listasjóðurinn var stofnaður árið 1997 þegar Erró gaf andvirði íbúðar sem Guðmunda frænka hans arfleiddi hann að, en markmið sjóðs- ins er að styrkja konur sem skara fram úr á myndlistarsviðinu. Þær sem taka þátt hafa allar getið sér gott orð í myndlistinni, hópurinn er afar fjölbreyttur og má ætla hið sama um sýninguna. Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús Á Akureyri er einkasýning Huldu Há- konardóttur. Hulda hefur frá upphafi ferils síns vakið athygli fyrir sérstaka sýn á hvers- dagslegt umhverfi, en flestir þekkja bæði mannamyndir hennar og myndir af skrímslum og fuglum. Lágmyndir Huldu eru byggðar á lunknum tengslum orða og mynda, Hulda er sagnakona. Meðal verka á sýning- unni er hluti myndar af íslensku þjóðinni eins og hún leggur sig, aðrir hlutar verða sýndir í Reykjavík og í Vestmannaeyjum. Auk þess sýnir Hulda verk frá síðustu tveimur áratug- um, þetta er því einstakt tækifæri til að kynnast list hennar. Listasafn Akureyrar Lágmyndir Huldu Hákon Ádeila Hulda fjallar iðulega á gagnrýninn hátt um samfélagið í verkum sínum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.