Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Blaðsíða 2
F rétt er frásögn af breytingum. Hún felur í sér nýjar upplýsingar sbr. enska orðið news eða danska orðið nyheder. Ég hef áður bent á það á þessum vettvangi að það er einn helsti vandi íslenskra fjölmiðla- manna að í okkar fámenna landi gerist oft býsna fátt og því frá litlu nýju að segja frá degi til dags. Því reynist það ábyggilega oft erfitt að fylla blöð og fréttatíma með efni sem talist getur fréttnæmt. Ekki síst sé horft til þess að í lýðræðisþjóðfélagi verður einnig að gera þá kröfu til fréttamiðla að fréttirnar sem þeir flytja séu ábyggilegar. Í íslenska fréttaleysinu höfum við vanist því að lesa og heyra sömu „fréttirnar“ aftur og aft- ur. Þannig er t.d. yfirleitt lítill munur á sjón- varpsfréttum Stöðvar 2 og RÚV eða fréttum Morgunblaðsins og Fréttablaðsins nema þá helst í framsetningunni. Sl. laugardag var því t.d. slegið upp með breiðri fyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins að nokkrir aðilar væru grun- aðir um auðgunarbrot. Í fréttinni sjálfri var greint frá því að embætti sérstaks saksóknara hefði gert húsleit á tólf stöðum til að fylgja eft- ir rannsókn á viðskiptum með hlutabréf í gamla Kaupþingi í aðdraganda hrunsins. Einnig kom fram að nokkrir hefðu nú rétt- arstöðu grunaðra í málinu og að búast mætti við að þeim fjölgaði. Með fréttinni lét Morg- unblaðið fylgja andlitsmyndir af þremur mönnum. Einn þeirra var saksóknarinn sem stýrir rannsókninni en hinir tveir eru kaup- sýslumenn sem tengjast málinu. Frétt Frétta- blaðsins af sama máli var hins vegar á annarri síðu blaðsins og henni fylgdu myndir af sak- sóknaranum og húsi Kaupþings. Þessi ólíka framsetning hefur hins vegar mögulega áhrif á túlkun lesandans á sömu frétt. Spyrja má hvers vegna Morgunblaðið kaus að setja andlitsmyndir af kaupsýslumönn- unum tveimur á forsíðuna, ásamt stjórnanda rannsóknarinnar. Samkvæmt fréttinni hafa fleiri réttarstöðu grunaðra en þó birtust ekki myndir af þeim né voru þeir nafngreindir. Sjálf dró ég ósjálfrátt þá ályktun, m.a. af stærð myndanna og letrinu á fyrirsögninni, að Morg- unblaðið vildi undirstrika ábyrgð mannanna tveggja jafnvel þótt málið væri enn í rannsókn. Blaðalestur í gegnum árin hefur kennt mér að það er óvenjulegt að röð andlitsmynda birtist á forsíðu Morgunblaðsins nema því aðeins að einstaklingarnir hafi verið formlega dæmdir eða látist af slysförum. Ég man þó t.d. eftir því að Morgunblaðið birti fyrir nokkru röð andlits- mynda af dómurum Hæstaréttar til að undir- strika vanþóknun sína á vægum dómum vegna kynferðisbrota gegn börnum. Í fréttaleysinu ganga stundum fréttir aftur. Ein slík er frá því í vikunni um að til stæði að stofna nýtt ráðuneyti efnahagsmála á grunni viðskiptaráðuneytisins og efnahagsverkefna forsætisráðuneytisins. Málið var sett fram eins og þetta hefði aldrei borið á góma áður. Ekki eru þó liðnar nema tæpar þrjár vikur frá því að þessi hugmynd var kynnt í fjölmiðlum sem lið- ur nýrrar ríkisstjórnar í breytingum á stjórn- arráðinu. Hér voru því engin ný tíðindi. Það sem var hins vegar nýtt í málinu var að rík- isstjórnin hefur nú tímasett breytingarnar og auðvitað hafa margir áhuga á hvernig þeim vindur fram. Þá hef ég tekið eftir að fréttamenn taka sér stundum það bessaleyfi að segja að eitthvað hafi gerst erlendis „í gær“ sem átti sér stað degi eða svo áður. Þetta er annað dæmi um villandi framsetningu fréttar því auðvitað skiptir máli að rétt sé greint frá því hvenær eitthvað gerðist. Fréttamenn vilja sjálfsagt ekki verða uppvísir að því að segja gamlar fréttir og nota því þetta orðalag til að breiða yfir að fréttin komst ekki fyrr að. stefosk@hi.is Framsetning frétta FJÖLMIÐLAR STEFANÍA ÓSKARSDÓTTIR Forsíður dagblaðanna Hefur ólík framsetning áhrif á túlkun lesandans á sömu frétt? Blaðalestur í gegnum árin hefur kennt mér að það er óvenjulegt að röð and- litsmynda birtist á forsíðu Morgunblaðsins nema því aðeins að einstakling- arnir hafi verið formlega dæmdir eða látist af slys- förum. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009 2 LesbókSKOÐANIR Ó hætt er að vekja athygli á einkar at- hyglisverðri kvikmynd sem sýnd verður í Sjónvarpinu annað kvöld. Myndin, sem er þýsk/tyrknesk, nefnist Auf der anderen Seite og í aðalhutverkum eru Nurgül Yesilçay, Baki Davrak, Tuncel Kurtiz og Hanna Schygulla. Leikstjóranum, Faith Akin, eru málefni innflytjenda í þýsku samfélagi afar hug- leikin og kemur togstreita á milli ólíkra menningarheima og trúarbragða fram í myndinni sem og fyrri verkum hans. Sjálf- ur er Akin fæddur og uppalinn í Þýska- landi, sonur tyrkneskra innflytjenda. Myndin var meðal þeirra sem kepptu um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2007 og vann til fjölda verð- launa á kvikmyndahátíðum víða í Evrópu. Auf der anderen Seite verður sýnd í Sjónvarpinu á sunnudagskvöld klukkan 21.50. birta@mbl.is Togstreita menningarheima MÆLT MEÐ Þýsk/tyrknesk verð- launamynd í Sjónvarpinu Æ tli sífelld end- urtekning skili miklum árangri þegar kynna á mikilvægi tiltekinna sjónarmiða? Undanfarið hefur Morg- unblaðið varið miklu plássi í að birta sjónarmið fólks tengds sjávarútvegi um áhrif fyrirhugaðrar fyrn- ingarleiðar. Flest segir það sömu söguna; fyrning- arleiðin mun leiða sjávarútveginn í þrot. Málið er brýnt en ég held þó að sífelld endurtekning á þessari staðreynd sé ekki áhrifarík til að kynna málið fyrir almenningi. Best gæti ég trúað að fáir lesi þetta og því missir umfjöllunin marks. Vandinn er að hinn almenni lesandi sér tæpast að sér komi málið við því fjarlægðin á milli höf- uðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar í menningarlegu og efnahagslegu tilliti fer síst minnkandi. Þessi fjarlægð kemur einnig t.d. fram í mun á afstöðu fólks í þéttbýli og dreifbýli til að- ildar að ESB. Hagsmunir sjávarútvegsins eru t.d. æ oftar í umfjöllun álitsgjafa kallaðir sérhags- munir sem stangist á við almannahagsmuni. Í því ljósi þykir lítið tiltökumál þótt kvóti sé innkall- aður þrátt fyrir að fullt verð hafi verið greitt fyrir hann. En hvað ef tapið fellur líka á höfuðborg- arbúann, því ekki búa hér tvær þjóðir? Jón og Gunna í Breiðholtinu hefðu áhuga á að heyra af því. stefosk@hi.is ÞETTA HELST Máttur endur- tekningarinnar? Sjómennskan Er ekkert grín. var milli kústskafta. Þeir fóru kurteislega fram á að trúbræðrum í Hare Krishna-hreyfingunni yrði sleppt úr fangelsum í Sovétríkjunum. Þarna biðu líka fleiri ljósmyndarar. Þar á meðal þessi jafnaldri minn sem stendur hjá mönnunum með áskorunina til leiðtogans. Hann heitir Börkur Arnarson og höndlar nú með myndlist. Við vorum 19 ára og lærðum lík- lega meira um fréttaljósmyndun á einni viku en við hefðum lært á skólabekk í heilan vetur. Ég var búinn að mynda fyrir stærstu erlendu fréttastofurnar þessa vikuna, og fréttatímarit að auki – og aðalmyndstjóri AP kenndi mér svo vel að mynda hús, með nokkrum vel völdum orðum, að því gleymi ég aldrei. Ég man hinsvegar ekki hvort ég náði mynd af Gorbachev þegar hann ók upp Ægisgarð. En ég á mynd af Reagan veifa í bíl í Lækjargötu. efi@mbl.is Beðið eftir valdinu Fyrir rúmum 22 árum vildu margir koma óskum og hugmyndum á framfæri við valdsmenn í Reykjavík Þ AÐ var ekkert smáræði sem gekk á þessa októberdaga fyrir tæplega 23 árum. Þetta var haustið 1986 og leiðtogar stór- veldanna höfðu boðað komu sína til landsins. Við að rekast á þessa gömlu mynd mína í myndasafni blaðsins rifjast upp bið efst á Æg- isgarði, við Reykjavíkurhöfn. Sovétríkin voru ennþá til og leiðtogi þeirra var um borð í snekkju sem lá bundin við garðinn. Ég beið með myndavélina og átti að ná mynd af Mikhail Gor- bachev er hann brunaði hjá á leið að Höfða, til móts við Ronald Reagan. Á borði leiðtoganna, undir portrettinu af Bjarna Bendiktssyni, lágu tillögur sem áttu eft- ir að marka endalok kalda stríðsins – og upp- lausn ríkisins sem maðurinn sem ég beið eftir stýrði. Fleiri biðu en ég. Þar á meðal góðlegir menn sem rúlluðu út léreftsstranga, sem strengdur Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi menningar Fríða Björk Ingvarsdóttir, fbi@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.