Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009 Lesbók 3TÓNLIST Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is S pot-hátíðin er norræn tónlistarhátíð sem haldin er árlega í Árósum. Það kemur væntanlega ekki á óvart að obbi hljómsveitanna 112 sé dansk- ur, en það er líka stöku hljómsveit frá hinum Norðurlöndunum, stundum enskar og franskar og þetta árið líka einhverjar belgískar. Óvenju mikið var af íslenskum hljóm- sveitum þetta árið, ein hljómsveit og fjórir stakir listamenn; For a Minor Reflection, Em- ilíana Torrini, Dísa, Ólafur Arnalds og Svavar Knútur Kristinsson. Hálfrokkuð tilraunamennska 112 hljómsveitir og flestar að spila popp eða rokk með ýmsum tilbrigðum. Íslendingarnir líka; Emilíana með sína tilraunakenndu róm- antík, Svavar Knútur söngvaskáld, síðrokks- sveitin For a Minor Reflection, Ólafur Arnalds með sveimkennda klifun og Dísa, tja, Dísa var eiginlega allstaðar – rómantísk brothætt þjóð- lagatónlist, hálfrokkuð tilraunamennska og svo lokalag hennar sem var eiginlega bara raddspuni, en þá sátu áheyrendur líka gapandi yfir snilldinni. Emilíana stóð uppúr, en hún var að leika á sínum stærstu tónleikum í Danmörku til þessa. Víst hafði hún ekki leikið á tónleikum í nokkurn tíma, var með hljómborðsleikara sem ekki hafði verið í sveitinni nema viku og að auki með glænýja tónleikadagskrá, en hún er komin svo miklu lengra en aðrir sem tróðu upp á Spot að þessu sinni, var komin þangað sem þeir stefna, alþjóðleg stjarna. Svo er hún með Sigtrygg á trommur. Eins og ég nefndi var erfitt að henda reiður á Dísu, sem var heillandi á sinn hátt, en hefði verið skemmtilegra með betra skipulagi, smá handriti. Hjóðfæraleikur var til að mynda ekki vel samstillur og slidegítarleikarinn óþarfur að mínu viti, en það sem hún gerði vel gerði hún frábærlega. Ólafur Arnalds var líka að spila á sínum stærstu tónleikum í Danmörku, þó ekki hafi hann náð að troðfylla stóra salinn eins og Em- ilíana. Svavar Knútur skráði sig í hóp norrænna söngskálda sem skipaður var auk hans dönsk- um, norskum og færeyskum lagasmiðum. Það bar þann góða árangur að lokalag tónleika hópsins, sálmur eftir Svavar, var líka hápunkt- ur þeirra. Danirnir stóðu fyrir sínu: viðlagapopp með The William Blakes, nýrómantískt diskó með When Saints Go Machine, nýgilt popp í boði Choir Of Young Believers, harðkjarnakrydd- aðan trega með Kellermensch, uppskrúfaða væmni að hætti The Green Lives, hátimbrað strengjapopp Ave, þjóðlagasull með Helene Blum & Harald Haugaard Band, fram- úrstefnulega raftónlist Mike Sheridan, strengjaharðkjarna A Kid Hereafter (Special Edition) og léttgeggjaða froðu frá Bodebrixen svo nokkur dæmi séu tekin. Finnarnir áttu sterkan leik með Joensuu 1685, sem spilar síð- rokkssýru, og Norðmenn lögðu til frábært band, Shining, sem leikur einhverskonar sam- suðu af harðkjarna og jazz; Agent Fresco á sterum sem endaði á geggjaðri útgáfu af 21st Century Schizoid Man og gladdi gömul eyru mín og félaga míns frá New York, enda höfð- um við báðir legið yfir In the Court of the Crimson King á sínum tíma (um 1970). Alheimsþorp í fleirtölu Á sínum tíma töldu margir að netvæðing heimsins myndi skapa heimsmarkað tónlistar, gera tónlistarmönnum kleift að keppa á jafn- réttisgrundvelli, fletja heiminn út og til yrði risamarkaður. Það hefur gengið eftir að vissu leyti, því auðveldara er fyrir listamenn að ná til fólks í gegnum netið, slá í gegn á MySpace, en að sama skapi virðist netvæðingin hafa orð- ið til þess að draga úr áhuga manna á innfluttri tónlist (maður finnur hana á netinu) og styrkja um leið innlenda tónlist. Þetta var í það minnsta mat Dirk Steenhaut, blaðamanns belgíska dagblaðsins De Morgen sem staddur var á Spot í fimmta sinn, og eins Henrik Friis, forsvarsmanns danska rokkráðs- ins, ROSA, á Spot. Þeir sögðu báðir að inn- flutningur á erlendir tónlist hefði dregist harkalega saman en að sama skapi yrðu þeir varir við það að áhugi fyrir innlendri tónlist hefði aukist. Henrik minnti mig á að ég hefði ekki verið ýkja hrifinn af því sem bar fyrir eyru á fyrri Spot-hátíðum, en nú væri gróskan öllu meiri. Það er satt, flestar dönsku sveit- anna voru í senn forvitnilegar og framsæknar og sumar frábærar; Choir Of Young Believers er með bestu hljómsveitum Norðurlanda nú um stundir. Að því sögðu þá var það merkilegt í sjálfu sér að allar hljómsveitir sem ég sá og heyrði á hátíðinni sungu á ensku, ef það var sungið á annað borð, nema Jooks. En hann misskildi þetta hvort eð er; hún vildi ekki rappara held- ur enskumælandi rokkara. „Hvad nu, spillemand?“ Annars voru Danir mjög uppteknir af þeim hörmungum sem ganga yfir danska tónleika- staði og var mikið rætt á ráðstefnu sem tengd- ist Spot. Undanfarin ár hafa danskir tónlist- arbúllueigendur nefnilega gengið að hluta fyrir fjárstyrk frá hinu opinbera enda fá þeir staðir sem bjóða upp á lifandi tónlist einskonar lífeyri. Það dugir þó ekki til, staðirnir hafa margir ekki staðið undir sér nema með harm- kvælum og nú syrtir í álinn; kreppan gerir að verkum að fólk mætir á tónleika og situr / stendur þurrbrjósta, eða það situr frekar heima með sinn bjór og hlustar á plötur (eða ekki neitt). Hvað er til ráða spurðu menn í ang- ist, Hvad nu, spillemand? Augljósa svarið var náttúrlega að gera ekki neitt, þeir staðir sem væru illa reknir myndu bara deyja og hinir lifa, en sú uppástunga mín hugnaðist mönnum ekki – betra væri ef hægt væri að kreista meira út úr ríkinu, nú eða breyta lögum um tónlistarhátíðir. Þær njóta nefnilega skattfríðinda með þeim skilyrðum að hagnaði af þeim sé varið í samfélagsleg verk- efni, sbr. Hróarskelduhátíðina sem er mikil peningamaskína, en mega ekki leggja fé í kráarekstur. Er það ekki samfélagslegt verk- efni að menn geti sest niður með bjór og hlust- að á smá rokk? spurði einn Daninn mig í hálf- kæringi að ég held. Kannski var honum alvara. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Stjarna Tónleikar Emilíönu Torrini á Spot voru stærstu tónleikar hennar í Danmörku til þessa, en 1.500 voru í salnum og nokkur hundruð urðu frá að hverfa. Sveitin var óstyrk fyrstu skrefin, en eftir það lék hún á als oddi. „Hun vil ha’ en rapper“ Svo rappaði Jooks í stóra tjaldinu fyrir tónlist- arhöll þeirra Árósinga; engan lúða sem hlustar á Neil Young og Gasolin’, nei takk, bara rappara í hlýrabol og strigaskóm. Spot er keppni í spretthlaupi; til þess að ná að sjá og heyra sem mest er maður á hlaupum. Sumt er þannig að ekki má missa af mínútu, en stundum er eitt lag eða tvö meira en nóg. Það besta:  Ave  Choir Of Young Believers  Dísa  Emiliana Torrini  Joensuu 1685  Kellermensch  Mike Sheridan  Ólafur Arnalds  Shining  Svavar Knútur  The State, The Market and the DJ  The William Blakes  Thee Attacks Á sprettinum Það besta á Spot 2009

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.