Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009 4 Kvikmyndir H ugmyndir sem hafa sannað sig gróða- vænlega á tjaldinu, fá ekki að falla í gleymsku. Gott dæmi er myndbálk- urinn um Tortímandann – The Term- inator, sem stakk fyrst upp ófrýnilegum koll- inum fyrir aldarfjórðungi. Síðan gerðist fátt til 1991, þá var röðin komin að The Terminator 2: – Judgement Day, og kassarnir fylltust og fram- leiðendur kættust. Samt kom langt hlé; Term- inator 3: The Rise of the Machines, var ekki frumsýnd fyrr en 2003 og sú fjórða, Terminator Salvation er að hefja göngu sína í júní. Það sem á undan er gengið Bálkurinn, sem hefur tekið inn milljarð dala, hófst á B-mynd, sem kostaði litlar 6.4 milljónir. Hér var sjálfur James Cameron (Titanic), að gera sitt fyrsta stórvirki og ekki skemmdi fyrir að hann valdi lítt þekktan leikara í titilhlutverki - vöðvabúntið Arnold Schwarzenegger. Fyrr en varði skapaðist sterkt költ-fylgi í kringum myndina, og í kjölfar Salvation, er búið að ákveða fimmtu og sjöttu viðbótina. The Terminator, sú fyrsta og að margra dómi sú besta, fjallar um byltingarkenndan örgjörva, Skynet, sem er framleiddur af Cyberdyne- fyrirtækinu, sem verður alls ráðandi í fram- leiðslu á tölvum og tólum til hernaðar. Tölv- urnar þróast með ofurhraða og ákveða að út- rýma mannkyninu í stríði sem lýkur árið 2009, og kostar milljarða mannslífa. Síðan víkur sög- unni til 2004, drápstólið Tortímandinn (Schwarzenegger), er sendur aftur í tímann til jarðar til að koma ófrískri konu fyrir kattarnef, þar sem John Connor, sonurinn sem hún geng- ur með, ógnar vélunum í framtíðinni. Á sama tíma er mennskur maður sendur af Connor aft- ur til fortíðar til að ráða niðurlögum Tortímand- ans Í annarri myndinni er T-1000, enn fullkomn- MYNDIR VIKUNNAR SÆBJÖRN VALDIMARSSON Að ragnarökum liðnum Terminator Salvation sver sig fullkomlega í ætt við fyrri myndirnar. Þrír nýir Tortímendur þokast nær Terminator Salvation (2009) | McG F yrir ekki svo löngu rakst ég á grein í virtu blaði vestan hafs þar sem menn veltu því fyrir sér hvað orðið hefði um hiphopið sem eitt sinn var annað vin- sælasta tónlistarform Bandaríkjanna (næst á eftir kántrýinu); voru rímnasmiðir búnir að syngja (kveða) sitt síðasta? Höfðu monthæns kafnað í eigin ýkjum? Gekk efnið frá and- anum? Sem betur fer eru margir þeir sem röppuðu um hórur og hólka þagnaðir, en eftir situr grúi rappara sem glímir við hinstu rök tilver- unnar og frumlegir taktsmiðir og upp- tökustjórar eru legíó. Gróskan er mest á jaðr- inum, oft í tilbrigðum af hiphopi sem seint ná almennri spilun, en frábær engu að síður. Rappfélagarnir AmpLive og MC Zumbi skipa tvíeykið Zion-I sem hefur verið starf- andi í rúman áratug. AmpLive er frá Texas og fékk snemma mikinn áhuga á rafeindatólum. Tónlistaráhuginn kom eitthvað seinna, en sem unglingur var hann þó farinn að spila á trommur og píanó í hverf- iskirkjunni. Vendipunktur í hans sögu var þegar faðir hans færði honum EPS-hljóðsmala og eftir það varð ekki aftur snúið. Eins og AmpLive rekur sögu sína var lítið um hiphop í Texas á hans uppvaxtarárum, en MC Zion var á kafi í hiphopi sem krakki, enda bjó hann í Kaliforníu. Hann hreifst þó ekki af takti og tónlist heldur var það glíman við orðin sem heillaði hann og bráðungur var hann farinn að etja kappi við aðra rímnasmiði. Þeir félagar kynntust svo í skóla í Atlanta, fjarri heimaslóðum, og þar varð sveitin Metufour til við fjórða mann fyrir átján árum. Sú náði svo langt að komast á samning hjá Tommy Boy, en ekki lengra í bili, því engin plata kom út úr þeim samningi. Þegar Tommy Boy svo sagði upp samningi við sveitina hélt Zion aftur heim til Kaliforníu, en AmpLive hélt sig í Atlanta um sinn, en fluttist síðan vestur og úr varð Zion-I. Þeir félagar sömdu við smáfyrirtæki, Ground Control Records, og gáfu út fyrstu smáskífuna fyrir rétt rúmum áratug. Fyrsta stóra platan kom út 2000 og síðan eru breið- skífurnar orðnar fimm og smáskífurnar ótelj- andi. Um daginn kom The TakeOver. Aðal Zion-I eru textar sem eru jákvæðir og djúpir og löðrandi í kímni, en líka fram- úrstefnulegar útsetningar sem eru þó gríp- andi og skemmtilegar. Það heyrist líka vel á þessari nýju skífu þar sem ótrúlegustu hljóð eru notuð, en stendur þó alltaf föstum fótum í grípandi hiphopi. arnim@mbl.is Á jaðrinum Rappteymið snjalla sem kallar sig Zion-I; MC Zumbi og AmpLive. PLÖTUR VIKUNNAR ÁRNI MATTHÍASSON Gróskan á jaðrinum The TakeOver | Zion-I Þ ýska plötufyrirtækið Kompakt er þekkt fyrir sitt naum- hyggjutechno og ýmsir skipa eflaust sænska tónlistarmanninum sem kallar sig The Field á þann bás. Á nýrri skífu hans má þó segja að hann gefi merkimiðanum langt nef, því þótt sumt sé naumhyggjulegt er annað uppfullt með fjör og flækjur. Axel Willner er á bak við listamanns- nafnið The Field, en hann hefur reyndar líka gefið út tónlist sem Lars Blek, porte, Cordouan og James Larsson. Fyrsta skífa hans var platan From Here We Go Sublime sem kom út fyrir tveimur árum og var ein ágætasta platan sem bar fyrir eyru manna á því ágæta ári. Fyrir stuttu kom svo út ný skífa hans, Yesterday and Today. Willner er lagið að gera mikið úr litlu, ef svo má segja, að teygja einn gítarhljóm svo langt að úr verður heilt lag og heldur þeim hætti á skífunni nýju. Í titillagi plötunnar leikur Battles-bóndinn John Stanier á trommur og gæðir það lag miklu lífi. Meira svoleiðis takk. Yesterday and Today | The Field Mikið úr litlu Kannski menn? POPPKLASSÍK ARNAR EGGERT THORODDSEN A ð undanförnu hafa Félag hljóm- plötuframleiðenda, Rás 2 og tonlist.is gengist fyrir leit að hundrað bestu plötum Íslandssögunnar. Sumar af þeim plötum sem nú fylla hundraðið hafa verið ófáanlegar um hríð og hefur Sena bætt nokkuð úr þeim málum, en nýverið kom út platan Álfar sem Magnús Þór Sigmundsson gaf út árið 1979 í gegnum Fálkann. Platan kom fyrst út á geisladisk árið 1991 en hefur ver- ið sjaldséð um árabil. Álfar er um margt giska merkileg plata. Magnús hafði verið á all- nokkru flandri er- lendis, eltandi frægðardrauma eins og lög gera ráð fyrir í Popplandi, með Change m.a. Álfar hljómar því dálítið eins og nokkurs konar heimkomu- og þroskaplata; skýjaborgirnar að baki en heilnæm jarðtenging komin þess í stað. Ja … ef hægt er að lýsa þemaplötu um álfa sem jarðtengdri. En að öllu gríni slepptu notar Magnús álfana og þeirra heim sem nokk- urs konar mótvægi við tilvist mannsins og velt- ir fyrir sér því sem aflaga hefur farið hér í raunheimum. Heimur álfanna er því nokkurs konar draumheimur, dæmi um hvernig hægt væri að haga hlutunum ef góðar og gegnar gjörðir stýrðu nú mannskepnunni. Textalega er platan því afar hippísk; umhverfisvernd er tekin traustatökum og djúpar andlegar pæl- ingar svífa um. Plötuna kannast efalaust flestir við vegna lagsins „Jörðin sem ég ann“ sem sló rækilega í gegn og er reglulega leikið í útvarpi enn þann dag í dag. Lagið „Álfar“, þar sem hinni merku spurningu „Eru álfar kannski menn?“ er varp- að fram, er einnig nokkuð vel kynnt. Restin af plötunni er hins vegar nokkuð ólík þessum „slögurum“; flókin og spunakennd lög sem bera íbyggin nöfn eins og „Gróðurþel“ og „Al- heimsþel“. Þrír Þursar sjá um undirleik og það heyrist vel, hljómafléttur og stígandi nokkuð í takt við það sem sú merkissveit var að pæla í á þessum sama tíma. Magnús átti svo eftir að hnykkja óbeint á boðskap Álfanna þremur árum síðar með plöt- unni Draumur aldamótabarnsins, þar sem m.a. er að finna hinn óopinbera þjóðsöng, „Ísland er land þitt“. Þemað þar er þó öllu óhlutbundn- ara en á Álfum, sem stendur í dag sem nokkuð einstakt síðproggrokksverk – með tveimur út- varpsslögurum. arnart@mbl.is Rogério Duprat hefur verið kall- aður George Martin Brasilíu, enda annaðist hann strengjaútsetningar á mörgum Tropicália-skífum, til að mynda hjá Os Mutantes, Gilberto Gil og Caetano Veloso. Hann kunni og vel til verka, hámenntaður í músíkfræðum frá evrópskum skól- um, en líkt og Martin var hann upp á sitt besta þegar hann var að liðsinna öðr- um tónlistar- mönnum. Það má heyra á þessari skífu hans, „A Banda Tro- picalista Do Rogerio Duprat“, sem kom út fyrir rétt rúmum fjörutíu árum og var endurútgefin á disk fyrir stuttu. Á plötunni glímir hann við blöðrupopp úr ýmsum áttum, bras- ilískt, bandarískt og breskt með aðstoð Os Mutantes. Skífan er merkileg í sögulegu samhengi, varpar ljósi á merkan kafla í tónlistarsögu Brasilíu, og músíklega líka vegna þess að Os Mutantes heldur plöt- unni á floti með frá- bærri frammistöðu. Duprat var nefnilega snjall tónlistarmaður án þess að vera nema miðlungi frumlegur. A Banda Tropicalista Do Duprat | Rogério Duprat George Martin Brasilíu Tónlist

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.