Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Qupperneq 7
t hrein og tær einlægni“ 1. Ægifegurð Klettafjallanna Rammi úr einu fimm myndskeiða í verkinu sem Ragnar sýnir í Feneyjum. Davíð Þór Jónsson situr við flygilinn. 2. Leikstjórinn Ragnar vinnur með tökumanni í kanadísku Klettafjöllunum í vetur, við upptökur á myndbandsverkinu með þeim Davíð Þór. 3. Í frostinu Ragnar og Davíð Þór leika inn á eina mynd- og hljóðrásina. Ragnar segir hljómburðinn afar vandaðan, þrát fyrir aðstæðurnar. 4. Vinnustofan í Feneyjum Skissa eftir Ragnar; ljósmynd af salarkynnunum þar sem hann mun mála 180 myndir af Páli Hauki Björnssyni, eina á dag fram á haust, og gestir á Feneyjatvíæringnum geta fylgst með. Hann hefur teiknað sig inn á skissuna, málandi, Pál við gluggann og tómar bjórflöskur. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009 Lesbók 7 „RAGNAR er frjór og skapandi listamaður,“ segir galleristi hans hér á landi, Börkur Arn- arson í i8. Ragnar varð liðs- maður í i8 gallerínu eftir að hafa verið þátttak- andi á sumarsýningu nokkurra íslenskra listamanna í Tanya Bo- nakdar galleríinu í New York sumarið 2004. Eftir að Ragnar útskrifaðist úr Listahá- skóla Íslands hefur hann haldið tólf einka- sýningar í fimm löndum og tekið þátt í nær þrjátíu samsýningum víða um heim, síð- ustu árin í samstarfi við i8. Síðasta einka- sýning hans hér, Guð, í Nýlistasafninu, var tilnefnd til Sjónlistarverðlaunanna 2008. „Samband listamanns og gallerís hefur eflst og það hefur síðan verið frábært fyrir okkur að fara í samstarf við annað gallerí vestanhafs um listamanninn,“ segir Börkur. „Það er ánægjulegt að sjá aðra deila sann- færingu okkar um hæfileika Ragnars.“ Börkur segir að það sé eins og það hafi legið fyrir frá fyrsta degi að Ragnar væri listamaður. „Það er merkilegt að upplifa hversu óhræddur Ragnar er við að gera mynd- listina sína. Hann er það vel að sér, hrein- skilinn og opinskár að hann leyfir sér að gera mistök og að gera hluti sem hann sér síðar meir að hann getur lært af og nýtt sér á skapandi hátt. Verkin hans verða alltaf betri og betri.“ Óhræddur við myndlistina Börkur Arnarson. „ÉG tel að Ragnar Kjartansson verði mik- ilvægur og skær viti í framtíðinni, svo sann- arlega í íslenskum myndlistarheimi en einnig í alþjóðlegri per- formans- og vídeólist.“ Sá sem hefur svo miklar væntingar fyrir hönd Ragnars er Rol- and J. Augustine, ann- ar eigandi hins kunna LuhringAugustine gallerís í New York, en þar hefur Ragnar verið á mála síðustu misserin. „Ég er búinn að vera mjög spenntur fyrir verkefni Ragnars í Feneyjum,“ segir Augustine sem kemur að fjármögnun þess. „Við höfum í þessu ferli átt ein- staklega ánægjulegt og fagmannlegt sam- starf við kollega okkar í i8 galleríinu og við Christian Schoen, framkvæmdastjóra Kynningarmiðstöðvar íslenskrar mynd- listar. Ragnar er efnilegur listamaður og það er mikill heiður fyrir hann að vera fulltrúi þjóðar sinnar í Feneyjum. Ég hlakka til að sjá myndbandsverkið komið upp í Feneyjum, en ég tel það vera í góðu samræmi við leikræna þáttinn í list hans til þessa, og verkið inniheldur einnig tónlist eins og oft áður. Ég hlakka ekki síður til að sjá performansinn þar sem Ragnar málar módelið í vinnustofunni. Um útkomuna treysti ég mér hins vegar ekki til að tjá mig fyrr en ég hef séð þetta. Þetta er djarft og ævintýralegt verkefni. Ég fagna því þegar listamenn ráðast í viðamikil verk sem eru ekki söluvæn í eðli sínu. Við höfum nú unnið með Ragnari í eitt ár, eða síðan sýning með íslenskum lista- mönnum var sett upp hér í galleríinu, og ég hef virkilega notið þess að vinna með honum,“ segir Augustine. „Mikilvægur og skær viti“ Roland J. Augustine Ragnar Kjartansson segir frá sýningu sinni á Feneyjatvíæringnum. VEFVARP mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.