Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009 8 LesbókKVIKMYNDIR Gunnar Eggert Thoroddsen gunnaregg@gmail.com F yrir unnendur jaðarmynda úr hryll- ings- og fantasíuheimum er sér- staklega áhugavert að komast á slík- ar hátíðir, þar sem hægt er að upplifa það helsta sem er í gangi hverju sinni og fá nokkurs konar sneiðmynd af helstu straumum samtímans. Hátíðin var sjálf með tvo sérflokka: „Anarchy in the UK“, sem beindi sjónum að nýrri öldu harðneskjulegra hryllingsmynda frá Bret- landseyjum, og „Brave New Worlds“, sem taldi vísindaskáldsögulegar myndir sem léku sér á frumlegan máta með veruleikamörkin. Minna var um sératburði í ár, enda minna um fjárráð í kreppunni, sem kom fyrst og fremst niður á því að enginn heiðursgestur gat bless- að okkur með nærveru sinni (síðustu gestir hafa verið stór nöfn á borð við Tim Burton, Terry Gilliam og Roger Corman). Ég vil lýsa tveimur þemum sem ég þóttist sjá skína í gegn á hátíðinni og fjalla stuttlega um myndir sem sköruðu þar fram úr. Ógeðsleg börn Börn hafa alltaf átt fastan sess í heimi hryll- ingsmynda, a.m.k. eftir að Regan litla varð fyrst andsetin af djöflinum í The Exorcist (1973). Síðan þá hafa ýmsar „barnamyndir“ notið vinsælda, þar sem börn eru á einn eða annan hátt í aðalhlutverkum, bæði sem skrímsli (It’s Alive, 1974 og The Omen, 1976) og sem söguhetjur (Poltergeist, 1981 og Child’s Play, 1988). Börn voru sérstaklega áberandi á hátíðinni í ár – eða öllu heldur ótti við börn, þar sem uppruni hryllingsins liggur í afkvæmum okkar. Það er þekkt minni að hryll- ingsmenning ólíkra tímabila endurspeglar gjarnan helsta ótta hvers tíma, en erfitt er að koma auga á slíkt nema í ákveðinni tíma- fjarlægð og því vil ég ekki endilega koma með yfirlýsingar um að samtímahryllingsmyndir séu innbyggðar ótta við komandi kynslóðir (þ.e. framtíðina) – en engu að síður er áhuga- vert hvað ég kynntist mörgum hryllilegum börnum á þessum sjö dögum. Helst ber að nefna The Children (2008), skuggalega mynd um tvær fjölskyldur sem eyða jólahátíðinni saman í sveitinni. Smátt og smátt fara börnin að haga sér undarlega, þau gerast ofbeld- ishneigð og að lokum hefjast þau handa við að myrða allt fullorðna fólkið. Myndin spilar sig grafalvarlega í gegn og tekst að ná fram blóð- kaldri stemningu, þar sem foreldrarnir þurfa að drepa börnin sín til að lifa af. Barnadráp eru líklega það eina sem enn er heilagt í heimi hryllingsmynda – að drepa barn á skjánum er litið stórvöxnu hornauga – og ég get ekki ann- að en dáðst að leikstjóranum Tom Shankland fyrir djörfung og hug. Grace (2009) segir frá konu sem hefur lengi reynt að eignast barn og er loksins orðin ólétt þegar hún lendir í bílslysi stuttu áður en hún á að eiga. Eiginmaðurinn deyr og samkvæmt læknum er barnið líka dáið. Engu að síður ákveður móðirin að eignast barnið og öllum að óvörum fæðist það lifandi. Í fyrstu virðist barnið vera heilbrigt, en það hafnar móð- urmjólkinni og vill ekki borða neitt. Það græt- ur stöðugt og virðist laða til sín flugur í massa- vís. Þegar Grace litla fer að sjúga blóð úr brjóstum móður sinnar er augljóst að hún þarf á öðruvísi næringu að halda en flest önnur börn. Mamman þarf nú að redda barninu sínu blóði og til að flækja málin er hún sjálf harð- svíruð grænmetisæta. Þannig tekst leikstjór- anum að velta fram alls kyns siðferðislegum hnútum og fjalla um móðurástina á frumlegan hátt með persónulegri, jafnvel hugljúfri sögu um móður og uppvakning. Af öðrum barna- hryllingsmyndum má nefna japönsku manga- myndina Tamami – The Cursed Baby (2007), þar sem unglingsstúlka þarf að horfast í augu við vanskapaða og smávaxna tvíburasystur sína, og bresku myndirnar Donkey Punch (2008), þar sem hópur spilltra unglinga gengur of langt í kynlífstilraunum, og Eden Lake (2008), þar sem ungt uppa-par í tjaldferð lend- ir í stríði við unglingagengi á svæðinu og fest- ist í stigvaxandi ofbeldisöldu sem ferðast langt út fyrir velsæmismörkin. Kynferðislegt últra-ofbeldi Og varðandi velsæmismörk, þá voru nokkrar myndir sem gengu lengra en flestar, hvað varðar tengsl kynlífs, dauða og ofbeldis. Nauðgunarmyndir vekja reglulega athygli á kvikmyndahátíðum og eiga sinn undirgeira í hryllingsheimum (nauðgunar/hefndarmyndir – sú frægasta er líklega I Spit On Your Grave, 1978). Ein slík – I’ll Never Die Alone (2008) – kemur nú frá Argentínu og segir frá fjórum vinkonum sem er hrottalega nauðgað á ferða- lagi og þurfa að kljást við árásarmennina úti í villtri náttúrunni til að leita hefnda. Myndin er erfið áhorfs og gerir sitt allra besta til að láta áhorfendum líða raunverulega illa. Önnur nauðgunarmynd (sem ég sá samdægurs) er af allt öðrum toga og tekst á sinn eitursúra og of- urýkta hátt næstum að gera umfjöllunarefnið fyndið. Someone’s Knocking at the Door (2009) fjallar um hóp bandarískra ungmenna sem vekja óvart upp raðmorðingjapar – mann og konu – sem myrða fórnarlömb sín með því að nauðga þeim til dauða með ofvöxnum kyn- færum. Líkamar eru tættir í sundur í grótesk- um stíl og með brjáluðu myndmáli sem gerir að verkum að áhorfendur vita ekki hvort þeir eiga að (eða mega?) hlæja eða ekki. En þetta er grínmynd, þrátt fyrir allan viðbjóðinn, og þó að fólk hafi gengið út af sýningunni var upplif- unin vel þess virði. Að lokum vil ég nefna furðuverkið Deadgirl (2008). Tveir ungir menn brjótast inn í yfirgefið geðsjúkrahús í bænum sínum og finna lifandi-dauða konu, hand- járnaða við borð í kjallaranum. Þeir dragast inn í furðulega atburðarás þar sem annar þeirra missir stjórn á valdafíkninni og gerir konuna að kynlífsþræl sínum. Kynlíf með lif- andi dauðu líki býður upp á ógrynni af subbu- legum atriðum og leikstjórarnir nýta sér sögu- efnið til hins ýtrasta. Í grunninn er þetta zombíu-mynd, en fyrst og fremst er Deadgirl hugleiðing um algjört vald og algjört frelsi, þar sem ungmennin skapa sinn eigin myrka heim í dimmum kjallaranum. Myndin er gerð fyrir lítinn pening og mun vonandi ekki festast í b-mynda-hrúgunni í ár, því Deadgirl er ein sjaldséðra hryllingsmynda sem tekst samtímis að vera virkilega ógeðsleg og reglulega áhuga- verð og á sér langt framhaldslíf fyrir höndum. Ótti og óbeit í Amsterdam Árleg hátíð fantasíu- og hryllingsmynda var haldin nýverið í Amsterdam. Hátíðin er hluti af stærra neti evrópskra fantasíuhátíða en hver hátíð velur sína bestu mynd. Í lok árs keppa þær allar um aðalverð- launin: Hinn gyllta Méliès. Greinarhöfundur var viðstaddur hryllingshátíðina í Amsterdam. Nánari upplýsingar um evrópsku fantasíuhá- tíðirnar má finna á www.melies.org Barnadráp eru líklega það eina sem enn er heilagt í heimi hryllingsmynda – að drepa barn á skjánum er litið stórvöxnu hornauga. Óöruggt kynlíf Hópur spilltra unglinga gengur of langt í kynlífstilraunum í kvikmyndinni Donkey Punch. Upp að eyra Uppa-par lendir í stríði við unglingagengi á svæðinu og festist í stigvaxandi ofbeldisöldu. Börnin Tvær fjölskyldur eyða jólahátíðinni saman í sveitinni. Smátt og smátt fara börnin að haga sér undarlega. Höfundur er kvikmyndafræðingur. U ppruni hryllingsmynda er jafnan rakinn til áhrifa frá þýska expressjónismanum, sem blómstraði sem hreyfing í kvik- myndagerð í Þýskalandi snemma á þriðja ára- tug síðustu aldar. Myndirnar flokkuðust ekki undir jaðarmyndir í Þýskalandi þótt þær þættu róttækar og framúrstefnulegar og voru mynd- irnar sýndar í almennum sýningum í kvik- myndahúsum. Ýktur leikur, brengluð sviðs- mynd og leikur með skugga voru einkenni myndanna sem hentuðu því vel til að miðla ýmiskonar óhugnaði og dulúð til áhorfenda. Frægasta mynd þýska expressjónismans er án efa Das Cabinet des Dr. Caligari (1920) eft- ir Robert Wiene sem átti eftir að hafa mikil áhrif á kvikmyndasöguna. Uppgangur hryll- ingsmynda hófst til að mynda í Bandaríkjunum eftir að myndin var sýnd þar vestra ári eftir að hún kom fyrst út. Hljóðið jók á óhugnaðinn Kvikmyndafyrirtækið Universal varð fljótt fremst í flokki í framleiðslu hryllingsmynda þar vestra og hryllingurinn fékk svo byr undir báða vængi þegar þýskir leikstjórar fóru að flytjast til Hollywood vopnaðir áhrifum frá þýska expressjónismanum. Myndir á borð við The Hunchback of Notre Dame (1923) og The Phantom of the Opera (1925) gáfu áhorfendum forsmekkinn af því sem koma skyldi í þessum geira. Óhugnað- urinn varð svo áþreifanlegri eftir tilkomu hljóðsins og myndir á borð við Dracula (1931) og Frankenstein (1931) fengu hárin til að rísa á höfði bíógesta. Með tilkomu hljóðsins óx hryll- ingsmyndunum fiskur um hrygg í Hollywood en margar þessara mynda þættu þó lítið hrika- legar í dag. Taka þurfti tillit til bíógesta sem enn voru að slíta barnsskónum í þessum efn- um. Auk þess vildi svo til að einmitt á sama tíma, í byrjun þriðja áratugarins, var umræða um hvers kyns ritskoðun á kvikmyndum afar hávær í Hollywood. Meðal annars vegna nokk- urra hneykslismála innan geirans þótti nauð- synlegt að grípa í taumana og bjarga orðspori hinnar nýju listgreinar sem kvikmyndalistin var með því að banna allan óhugnað, kynferð- islegar tilvísanir og annað sem gæti spillt sið- gæði áhorfenda. Tvíræðni jókst því til muna í kvikmyndagerð og leikstjórar nýttu sér myndmál og hljóð til að gefa til kynna það sem ekki mátti sýna. birta@mbl.is Hryllingsmyndir verða til Hryllingur Uppgangur hryllingsmynda hófst í Bandaríkjunum eftir frumsýningu Das Cabinet des Dr. Caligari þar í landi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.