Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Qupperneq 4
N ý mynd eftir Roland Emmerich vekur jafnan væntingar hjá þeim bíógestum sem gaman hafa af spennumyndum þar sem heimsendir vofir yfir. Þessi þýski leikstjóri og handritshöfundur hefur gert ófá verk af þessum toga, flest þeirra með þeim bestu, því ættu kvikmyndafíklar að bíða vongóð- ir eftir frumsýningardegi 2012, sem er nafn nýju Ragnarakamyndarinnar hans Emmerich og sækir nafn sitt í trúarbrögð Maja-indjána. Ástæðan augljós, tímatal þessarar fornu menn- ingarþjóðar endaði á þessa ártali, sem nú er rétt hinu megin við hornið. Emmerich er í góðri æfingu við að sprengja í tætlur menningu og mannvirki, um það bera bestu myndirnar hans vitni, hágæða-hamfara- myndir sem skipa sér í flokk með toppunum. Það verður sannarlega forvitnilegt að sjá hvernig hann spáir í tímatal Majanna. Í rauninni koma engir spádómar fram í menn- ingararfleifð Maja, um að heimsendir sé yfirvof- andi á þessu herrans ári, tímatalið þeirra endar þar aftur á móti, mjög svo snubbótt og af ástæð- um sem enginn þekkir lengur. Nýaldarpostular hafa gripið þessa staðreynd á lofti sem óbrigðult merki um yfirvofandi gjöreyðingu og Hollywood- framleiðendur tekið því fagnandi. Ekki síst þeg- ar Roland Emmerich var á lausu. Ekki skorti fé í jafn útgjaldasamt verkefni, og er álitið að kostn- aður við gerð og auglýsingaherferð 2012 nálgist 350 milljónir dala áður en öll kurl koma til graf- ar. Roland hefur sjálfur látið hafa eftir sér að hann elski heimsendamyndir, og kemur það ekki beint á óvart. Hann lét einnig hafa eftir sér að hann væri hættur að fást við slíka eyðilegging- arstarfsemi (í kjölfar mistakanna 10.000 B.C.), en þá kom þetta einstaka tækifæri og útilokað að sjá á eftir þvílíku dekurverkefni í hendur ein- hverra minniháttar spámanna. Nú á að gera stærstu og flottustu brellumynd sögunnar og þeir sem hafa skoðað sýnishornið á alnetinu eru hreint ekki frá því að svo geti verið. Jörðin bein- línis tortímist fyrir augum manns, heilu borg- irnar rísa og hrynja, flóðöldur skapa ógnvænlega eyðileggingu, jarðeldar, nefndu það, einu ham- farirnar sem bregður ekki fyrir er bankahrunið. En myndin er ekki um eyðileggingarmátt af manna völdum heldur náttúrulegum, en af risa- vaxnari stærð en áður hefur sést. Sögur af tor- tímingu eru margar aftan úr forneskju, okkur kristnum mönnum kemur að sjálfsögðu fyrst í KVIKMYNDIR Ragnarök Íbúar Jarðar eru nánast ekkert upplýstir um skelfinguna sem lúrir innan seilingar, hrikalegar nátt- úruhamfarir sem engu munu eira. Heimur á heljarþröm 2012 (2009) | Roland Emmerich SÆBJÖRN VALDIMARSSON MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009 4 Kvikmyndir Í talska söngkonan Cecilia Bartoli hefur lengi átt gríðarlegum vin- sældum að fagna. Nú í október gefur Decca út nýja plötu með henni sem er sérstæð á allan hátt. Sacrificium heitir platan, eða Fórn- in, og á henni syngur Bartoli aríur sem samdar voru í Napólí á seinni hluta sautjándu aldar og fram á þá átjándu. En Fórnin geymir ekki bara einhver verk eftir einhver tónskáld. Öll verkin voru á sínum tíma samin fyrir castrati-söngvara, eða geldinga, og sungin af þeim. Aðeins eitt verk- anna hefur verið gefið út áður. Platan er því einstök heimild um þá líflegu flóru tónlistar sem þessar horfnu stjörnur söngsins skemmtu ítölskum aðli með. En platan ekki einungis plata, því henni fylgir vegleg 150 síðna efnismikil bók með textum allra verk- anna, fjölda mynda og ítarefni um tíma geld- inganna, æviágripum þeirra þekktustu í þeirra röðum, eins og Farinellis og Caffarellis, og greinum um líkamlega, lækn- isfræðilega og félagslega þætti geld- ingatímans. Fórnin er því saga þeirrar gríðarlegu fórnar sem um fjögur þús- und ítalskir drengir voru skikkaðir til að færa á hverju ári í þágu tónlistar- innar, fórnar sem kostaði þá mann- dóminn. Aríurnar á plötunni eru eftir nokk- ur þekktustu tónskáld geldingatím- ans, Nicola Porpora, Antonio Caldara og fleiri. Á bónusplötu eru svo þrjár af þekktustu aríum þessa tíma, líka samdar fyrir geldinga, Ombra mai fu eftir Händel er ein þeirra. Það þarf svo sem ekki að fjölyrða um söng Ceciliu Bartoli. Hún syngur af miklu öryggi og rennir sér í gegn- um blúnduverk söngflúrsins af miklu listfengi. Hér syngur hún með einni þekktustu barrokksveit Ítala, Il Giar- dino armonico, en sú hljómsveit spilaði með henni á frábærri plötu með verk- um eftir Vivaldis fyrir nokkrum árum. Þótt óperurnar, sem geyma aríurn- ar sem Bartoli syngur hér, séu flestar löngu gleymdar eru aríurnar margar stórbrotnar. Þetta voru „vinsælustu lögin“ og söngvararnir með drengs- raddirnar voru súperstjörnur. Aríurnar eru þó ekki bara tómar flugeldasýningar, því á meðal þeirra eru líka hægar og ljóðrænar aríur, sannarlega „bel canto“-aríur, þar sem fegurð söngraddarinnar, frekar en fimi, fær að njóta sín til hins ýtrasta. begga@mbl.is Cecilia Bartoli Hún syngur af miklu öryggi og rennir sér í gegnum blúnduverk söngflúrsins af miklu listfengi. PLÖTUR VIKUNNAR BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR Fórnin til dýrðar tónlistinni Sacrificium | Cecilia Bartoli S aga geldings – Carestini er plata sem rímar afar vel við útgáfu Cecilu Bartoli. Þar syngur franski kontratenorinn Phil- ippe Jaroussky aríur sem ítalski geldingurinn Giovanni Carestini söng, snemma á átjándu öld. Ca- restini var í metum sem einn mesti geldingssöngvari sinnar tíðar og átti glæstan feril. Fari- nelli, sem margir muna eftir úr mynd Gérards Corbiau frá 1994, þótti tæknilega fullkomnastur geld- ingssöngvaranna, en Carestini þótti hins vegar hafa tærustu og fegurstu röddina. Jaroussky rekur sögu Carestinis í söng og platan er því eins konar sýnisbók yfir það „repertoir“ sem söngvari á borð við Carestini hafði á valdi sínu. Þótt Jaroussky, eins og Cecilia Bartoli, beini athygl- inni að öðrum söngvurum, geldingunum, með efnis- valinu, þá er það með hann eins og hana, að hans eigin fagri söngur er það sem stendur uppúr. Óvænt og sérstaklega ánægjuleg upplifun að heyra þessa rödd. Carestini | Philippe Jaroussky Í sporum geldings Botnlaus fegurð POPPKLASSÍK ARNAR EGGERT THORODDSEN Þ að er leitun að jafn bölsýnu og miskunnarlausu verki í gervallri rokk- sögunni og reyndin er með aðra plötu Alice in Chains, Dirt. Einkum þegar tillit er tekið til þess að platan „sló“ í gegn, náði inn á vinsældalista og lög af henni glumdu reglubundið í útvarpi. Og gera enn. Platan kom út árið 1992 og er eitt af helstu þrekvirkjum gruggrokksins, er hægt að setja í flokk með Nevermind (Nirv- ana), Ten (Pearl Jam) og Badmotorfinger (So- undgarden). Allar komu þessar sveitir með ólík föng að borði; Nirvana einbeitti sér að ní- hílísku, pönkskotnu gruggi á meðan Pearl Jam sigldi um á klassískari rokkmiðum, voru undir áhrifum frá Rolling Stones og leikvangarokki áttunda áratugarins. Soundgarden uppfærðu hins vegar hljóm Led Zeppelin og Black Sab- bath fyrir X-kynslóðina. En hvar standa Alice in Chains þá? Af öllum þessum sveitum er hún sú langmyrkasta – en sá einkennandi þáttur stafar af textunum sem fjalla allir sem einn um eymd, svartnætti, sársauka og almenna öm- urð. Söngvarinn, Layne Staley, stríddi við heróínfíkn sem átti síðar eftir að draga hann til dauða og spil eru lögð miskunnarlaust á borð. Tónlistin er dúndrandi þungarokk, með kaldr- analegum, tíunda áratugs blæ en á sama tíma gat hún dottið niður í viðkæmnislegt og ægi- fagurt kassagítarplokk. Þessar andstæður byggja undir töfra sveitarinnar, Stayle gat t.a.m. rekið upp rífandi org á milli þess sem hann og Jerry Cantrell, hinn helmingurinn af öxlinum, sungu engilblíðan og náin samsöng. Platan ber með sér sterkan heildarsvip og yfir henni liggur nokkurs konar dauðaára. Þetta rokkar, þetta er fallegt en þetta er ekki beint ... stuð? Tékkið á hinu ótrúlega „Down in a Hole“ ef þið viljið taka stikkprufu. Tildrög þessara skrifa er að undanfarið hafa verið haldin heiðr- unarkvöld til handa sveitinni hér á landi við ótrúlegar undirtektir. Sódóma Reykjavík hef- ur verið stappfull af fólki sem hefur sungið með í hverju einasta lagi. Síðast í gær fór slíkt kvöld fram og þessi „uppgötvun“ mætti segja, því að ég átti hreinlega ekki von á því að sveitin hefði jafn víða skírskotun og raun er, hvatti mig til skrifa. En auk þess ætlaði ég að vera löngu búinn að setja niður nokkur vel valin orð um þetta magnaða verk. arnart@mbl.is Í hrifningu minni á nýuppgötv- uðum Jaroussky langar mig að benda á aðra plötu hans sem er ekki síður heillandi. Hún heitir Opi- um, og hefur að geyma lög eftir meistara franska ljóðasöngsins, Fauré, Chausson, Reynaldo Hahn, Debussy og fleiri. Þarna eru perlur eins og Nell og Automne eftir Fauré, Le temps de lilas eftir Chausson og Violons dans le soir eftir Saint-Saëns með þar sem fiðla fær unaðslegan mótleik við söngvara og píanó. Stóra spurningin er auðvitað sú hvort þessi mergjaða tónlist sé eitthvað sem kontraten- orar ráði við. Ó jú, Philippe Jaroussky syngur þessi lög und- urvel. Ekki skemmir að á plötunni eru mörg lög sem sjaldan heyrast í bland við þau þekktu. Philippe Jaroussky hef- ur sannarlega komið mér á óvart í þessari viku. Hann útskrifaðist með láði og verðlaunum í fiðluleik frá tónlistar- skólanum í Versölum, en sneri sér svo að pí- anóinu áður en hann fann sinn augljóslega rétta stað, í söngnum. Opium, melodies françaises | Philippe Jaroussky Franskar fínessur Tónlist

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.