Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009 Lesbók 9FRAMTÍÐARFÓLKIÐ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Æ , ég get ekki lýst því hvernig píanó- leikari ég er. Ég veit það ekki. Ég tók mig aldrei neitt sérstaklega al- varlega vegna þess að ég hætti oft að spila á píanó, var í hljómsveit, lærði trommur og fannst ég aldrei vera þessi klassíska týpa. Þó fór ég á hverja einustu sinfóníutónleika þegar ég var unglingur, en mér fannst ég vera þar af öðrum ástæðum. Kannski hafði ég sömu rang- hugmynd sem mér finnst margir hafa, að klass- ísk tónlist væri bara fyrir einhverja sérstaka tegund af fólki. Ég hef haft djúpa ástríðu fyrir tónlist frá því ég man eftir mér. Um daginn vor- um við maðurinn minn að hlusta á aðra sinfóníu Mahlers, sem rúmar allan heiminn, og ég get ekki ímyndað mér að breyti ekki lífi allra sem hlusta á hana. Og þá sagði maðurinn minn: „Hugsaðu þér, sumum finnst þetta vera snobb!“ Já, ég reyndi oft að hætta að spila á píanóið, en byrjaði alltaf aftur. Ég bara varð að halda áfram þótt mér þætti þetta svona erfitt. Ég þjá- ist alveg ótrúlega mikið við píanóið en líka þegar ég er fjarri því. Þetta þarf ekki að vera svona mikið mál – alltaf upp á líf eða dauða þótt maður sé kannski bara að spila undir með sönglagi í af- mælisveislu. Ætli ég sé ekki bara svona drama- tísk. Og jú, rómantísk líka. Ég er búin í námi í bili og byrjaði að vinna við meðleik og píanókennslu við Tónlistaskóla Garðbæjar í haust. Ég lærði við Tónlistarskól- ann í Reykjavík og fór svo til Stuttgart í píanó- kennaranám og útskrifaðist 2007. Þá langaði mig að læra meira, en var komin með nóg af Þýskalandi í bili. Ég var einn vetur heima; mað- urinn minn var hér heima og við vorum búin að vera aðskilin í tvö ár. Eftir veturinn fór ég til Parísar, til kennara sem ég hafði kynnst á nám- skeiði. Ég hafði áður farið í einn tíma hjá henni og mér fannst hún ótrúlega andrík og góður listamaður. Hún heitir Thérèse Dussaut. Ég fór í nokkra tíma vorið 2008 og það var svo æðislegt að ég spurði hvort ég mætti ekki vera hjá henni um veturinn. Hún var til í það og ég var hjá henni í einkatímum allan síðasta vetur. Af því að þetta voru einkatímar bjó ég til mitt eigið loka- próf. Það voru tónleikar í Salnum í sumar. A nnars finnst mér ég aldrei vera búin að læra. Ég hlakkaði rosalega til að byrja að kenna í haust og fannst ég algjörlega tilbúin en ég er viðbúin því að ég eigi eftir að fara aftur út í tíma og spila fyrir Thérèse. Já, hún er mjög mikill listamaður, ótrúlega góður píanóleikari og öðru vísi en aðrir kennarar sem ég hef verið hjá. Það eru einhverjir fíngerðir og göfugir essensar í spilamennsku hennar, mjög franskir, en nálgunin er líka intellektúal. Það var gaman í Þýskalandi að fara á tónleika og í óperuna og hlusta á hljómsveitirnar þeirra. Það var öðru vísi þegar ég kom til Parísar. Þar var ég í miðju hruni og hafði ekki efni á að fara á tónleika eða í óperuna. Ég fékk engin námslán, en bjó frítt gegn því að passa litla íslenska stelpu. Ég fékk litla einstaklingsíbúð fyrir pöss- unina. Ég átti sjálf smápening og mamma sendi mér pening. Ég var algjör bóhem, borðaði bara baguette, drakk kaffi og æfði mig. Ég hafði ekki efni á neinu öðru. En í París er það allt í lagi vegna þess að það er svo rosalega gaman bara að ganga um göturnar. Jú, ég leyfði mér að fara á örfáa tónleika; bæði með Grigori Sokolov og svo með Önnu Sofiu von Otter. En ég fór aldrei í óperuna og það er auðvitað skandall. Í Þýska- landi var ég í skóla og fékk námsmannaverð; tíu evrur á fremsta bekk á allar óperusýningar og á tónleika með stærstu einleikurum og einsöngv- urum í dag. Það var geggjað. Þar fór ég stund- um oft í viku í óperuna. Jú, auðvitað; ég held að píanóleikari læri heilmikið af því að hlusta á söng og annars konar tónlist. Söngurinn er fyr- irmyndin að svo mörgu. Þótt píanóið sé ótrúlega ósönglegt hljóðfæri er maður alltaf að herma eftir söngnum þegar maður spilar laglínu, öllum litunum og blæbrigðunum. Mér finnst ópera vera krúna tónlistarinnar. Ef ég væri tónskáld myndi ég semja óperur. M aður er ekkert endilega bestur í því að spila þá tónlist sem maður elskar mest. Þegar ég fer á píanótónleika elska ég að hlusta á Schubert, langar Schubert-sónötur, Sriabin eða Beethoven. En það er ekki endilega það sem liggur best fyrir mér að spila. Mér er sagt að frönsk tónlist liggi vel fyrir mér og mér hefur alltaf þótt æðislegt að spila Mozart, sér- staklega á Íslandi. Ég var að hugsa um þetta þegar ég kom heim í sumar. Mér fannst svo geggjað á sínum tíma að komast til Þýskalands, inn í þessa hefð þar sem alltaf er fullt á tón- leikum og allir hafa vit á tónlistinni og eru alvar- legir á svipinn – vita ef eitthvað er gott og vita ef eitthvað er vont. Það er líka magnað að sitja í tónleikasölum þar sem maður veit að öll stóru tónskáldin hafa verið. Stundum fannst mér fólk samt heft og í fjötrum hefðarinnar. Þar er fólk að pæla í því að þarna hafi nú verið Mannheim crescendo en gleymir kannski að „njóta tónlist- arinnar“. Mér fannst ég vera mjög frumstæður tónlistarmaður þegar ég kom út, að skilja ekki allt sem lægi að baki hefðinni. Þar snýst allt um manninn og eðli hans, menninguna, tónlistina, bókmenntirnar og söguna. Svo kom ég heim. Var bara að labba heiman frá mér á Grenimel og niður í bæ. Ég varð upp- numin af því að hér væri sannleikurinn sem væri ofar manninum og menningunni. Þess vegna er svo gott að spila á Íslandi. Maður spil- ar allt öðru vísi hér. Já, þetta hefur allt með náttúruna að gera, þögnina og þetta kúltúrleysi. Þá meina ég ekki að hér sé ekki menning; held- ur erum við ekki föst í hefð. Hér er hefðin svo ung og maður er frjálsari. Ég er alltaf að fanta- sera um tónlistarhátíð, helst uppi á hálendi. Ef ég, litli listamaðurinn, fæ svona ótrúlega mikinn innblástur í íslensku náttúrunni og verð fyrir svo miklum áhrifum fyndist mér forvitnilegt að vita hvernig stóru listamennirnir, þessir heims- þekktu, myndu upplifa hana. Það er eitthvað hérna. Ég held að tónleikar á Íslandi séu sér- stakir og að hér spili fólk á sérstakan hátt. Þess vegna er auðveldara að spila Mozart á Íslandi. Mozart er eins og lækur. En ef maður er stöðugt að hugsa um hvernig á að spila Moz- art, svona sé hefðin, þessi spili svona og svona og hinn öðruvísi, svo komi þessi píanó til sög- unnar og þá eigi áslátturinn að vera hinsegin – þetta er auðvitað allt gott og gilt – en þá vantar eitthvað. Þetta er allt saman í okkur ef við erum eins og Mozart. Mozart er ást og ef við höfum hana í okkur gerum við hlutina rétt. Já, auðvitað er það ógnvekjandi að vera kom- in í fulla vinnu en það er samt mjög spennandi. Ég vona að ég standi mig. Ég hef haft svo ótrú- lega kennara og hef alltaf hlakkað til að fara sjálf að kenna og finnst það rosalega gaman. Það er það sem mig langar að gera. En ég stefni líka á að að geta spilað mikið og haldið tónleika. Ég sá aldrei fyrir mér að ég yrði píanóleikari; ég var bara að mennta mig í tónlist. Ég hefði al- veg eins viljað læra á fiðlu eða selló. Helst vildi ég vera óperusöngkona ef ég hefði rödd. Ég held að ég hafi allt í það að vera frábær óp- erusöngkona – nema röddina. Annars vil ég bara fyrst og fremst vera í tónlist og píanóið er frábært hljóðfæri til þess; það á fleiri meist- araverk en maður kemst yfir að spila um ævina og tónskáldin eru oft einlægust í píanótónlist- inni. Þar eru þau sjálf að spila. É g heyrði einu sinni þátt um Manuelu Wies- ler. Einn góðan veðurdag hætti hún alveg að spila og spilaði aldrei aftur. Hún sagði að það væri sama hvað maður gerði, legði mikið á sig og fengi mikið hrós fyrir, þá væri maður aldrei nógu nálægt fullkomnuninni og færi jafn- vel fjær og fjær. Það er klisja að segja að því meira sem maður læri því lengra sé í full- komnun, en mér finnst það samt áþreifanlegt. Maður veit alltaf minna og minna. Ég æfi mig fjóra tíma á dag, það er lágmark, en er alltaf með samviskubit því mér finnst að ég ætti að æfa mig meira. En svo gerist auðvit- að ýmislegt þegar maður situr ekki við píanóið. Maður hugsar og syngur inni í sér, allan daginn, og stundum á nóttunni líka. Það er svo margt sem mig langar að spila. Núna langar mig að spila Schubert-sónötur og Debussy. Mig langar líka að spila konsert með Sinfóníuhljómsveitinni og hver veit nema það gerist. Ég hef aldrei spil- að með hljómsveit. Ég tók próf á Facebook og þar var ég Grieg-konsertinn. Morgunblaðið/Kristinn Guðrún Dalía Salómonsdóttir „Það er klisja að segja að því meira sem maður læri því lengra sé í fullkomnun, en mér finnst það samt áþreifanlegt.“ Mozart er ást Hún þjáist við píanóið en þjáist líka þegar hún er fjarri því. Og þó að Guðrún Dalía Salómonsdóttir hafi oft hætt að spila byrjaði hún oftar aftur. Ég held ég hafi allt í það að vera frábær óperu- söngkona – nema röddina. „Ef maður er í vafa, þá flettir maður upp. Íslensk orðabók, Mergur málsins eftir dr. Jón Gunnar Friðjónsson og fleiri handbækur eru mjög gagnleg hjálpartæki. Ég talaði eitt sinn við mann sem hafði náð mjög langt í viðskiptalífinu, en var ekki lang- skólagenginn. Hann efaðist um hæfileika sína til þess að tjá sig í skrifuðu máli. Ég sagði honum að ég væri alltaf með orðabók. Hann varð steinhissa og spurði hvort það væri virkilega rétt. Ég sagði honum að ég notaði orðabók á hverjum einasta degi og stundum oft. Það er ótalmargt sem maður velkist í vafa um. Þetta er eins og að vitna í ljóð sem menn halda að þeir kunni. Svo sjá þeir að eitt orð er ekki eins og það á að vera, og vildu að þeir hefðu flett ljóðinu upp. Þetta henti mig nýlega. Ég fór rangt með ferskeytlu eftir Pál Ólafsson sem ég hélt ég kynni.“ Enskan í íslenskunni Eiður nefndi enskuslettur sem viðgangast víða í verslun og viðskiptum. Sjálfur er hann mikill enskumaður og segir ensku hafa verið sína eftirlætisnámsgrein í menntaskóla. Hann fékk verðlaun úr minningarsjóði Boga Ólafs- sonar fyrir frammistöðu í ensku á stúdents- prófi, en hafði þá aldrei farið til útlanda. Eft- ir stúdentspróf lauk hann BA-prófi í ensku. Þrátt fyrir dálæti á tungu engla og saxa geld- ur hann varhug við þeim sterku áhrifum sem enska hefur á öllum sviðum íslensks máls. „Það er skaðlegt þegar maður sér enskuna í íslenskunni. Maður sér enskuna líka í ýmiss konar aulaþýðingum. Ég vitna oft til þess sem David Gíslason bóndi á Svaðastöðum í Manitoba sagði, að móðir hans hefði sagt þeim bræðrum, að þeir yrðu að tala bæði ís- lensku og ensku, en ekki samtímis. Það þarf að halda málunum aðskildum. Fyrir langa- löngu skrifaði ég Rabb í Lesbókina um það hvað enskan er lævís og lipur. Við heyrum aftur og aftur sagt: „síðasta haust“ og „síð- asta föstudag“, en ekki „í fyrrahaust“ og „föstudaginn var“. Annað dæmi er nútíðar- nafnháttarsýkin: „við erum að sjá“ og „ég er ekki að skilja þetta“, í stað: „við sjáum“ og „ég skil þetta ekki“. Þetta hefur breiðst ótrú- lega hratt út, jafnvel inn á þing. Þegar svona vitleysur komast á kreik geta þær breiðst út eins og eldur í sinu. Ólafur Jóhannesson sem var forsætisráðherra fyrir langalöngu talaði gott mál, en átti það til að flytja áherslur af fyrsta atkvæði yfir á önnur. Þetta breiddist út, þannig að fleiri stjórnmálamenn voru farnir að tileinka sér þann framburð. Þetta hefur horfið aftur og maður heyrir því afar sjaldan bregða fyrir nú.“ Tískuorð og -orðatiltæki gera ekki manna- mun, og stjórnmálamenn rétt eins og aðrir eru fórnarlömb þeirra. „Með einum eða öðr- um hætti“ er sennilega eitt algengasta orðasambandið sem stjórnmálamenn nota, þegar þeir gætu hæglega sýnt hagkvæmni og notað betri orð, eins og „á einhvern máta“, „einhvern veginn“ eða „á ýmsa lund“, allt eft- ir aðstæðum og samhengi. Eiður segir sum þessara tísku-orðasambanda skammlíf, en önnur festist. Hann nefnir það sem við köll- um stofnanamál, og dæmið: „fjöldi ferða- manna stigmagnast“ þar sem réttara væri að segja einfaldlega: „ferðamönnum fjölgar“. „Þetta er bullmál,“ segir hann. Fleiri ánægðir Eiður segir að málfarspistlum hans hafi verið mun betur tekið en hann átti von á, og að undirtektirnar hafi að langmestu leyti verið jákvæðar. Sumir líti á þetta sem nöldur og sparðatíning, en þeir séu ánægjulega miklu fleiri sem þakki honum fyrir. „Sumum finnst ég of dómharður og það getur vel verið að ég sé það. Ég er ekki ís- lenskufræðingur og hef enga menntun í ís- lensku aðra en minn menntaskóla. Ég er ekki óskeikull og mér verður á í messunni eins og öðrum. Þegar Sjónvarpið var að byrja voru menn oft hræddir um að mismæla sig í við- tölum eða umræðuþáttum. Ég sagði þeim að hafa engar áhyggjur af því. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að mismæla sig, maður leið- réttir sig bara og heldur áfram,“ segir Eiður Guðnason. Hann saknar þess Morgunblaðið skuli ekki birta lengur pistla um íslenskt mál. „Lengi vel skrifaði Gísli Jónsson mennta- skólakennari þessa pistla, seinna Jón G. Frið- jónsson prófessor. Ég sakna þess að blaðið skuli ekki hafa vikulegan dálk eða pistil um mál og málnotkun. Ég er næsta viss um að ég er ekki sá eini sem sakna þessa efnis.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.