Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 3
Morgunblaðið/Ómar pmenn Tveir efstu menn í kjöri Íþróttamanns ársins, Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson, samherjar í íslenska landsliðinu í handknattleik. Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 Fjölmargirleikir fara fram í dag í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Án efa verður fylgst vel með því hvernig Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun leika gegn Preston. Gerrard var handtekinn aðfaranótt 29. desember vegna líkamsárásar á skemmtistað í nágrenni við Liver- pool. Fernando Torres verður í leik- mannahóp Liverpool en hann hefur ekkert leikið með liðinu vegna meiðsla undanfarnar vikur.    Carlos Boozer, framherji UtahJazz í NBA-deildinni, fer í að- gerð á hné á allra næstu dögum. Boozer hefur skorað 20,5 stig að meðaltali í vetur og tekið 12 fráköst en hann hefur misst af síðustu 20 leikjum liðsins vegna meiðsla. Gert er ráð fyrir að Boozer verði klár í slaginn eftir 4-6 vikur.    Charles Bark-ley var handtekinn dag- inn fyrir gaml- ársdag en Bark- ley er grunaður um ölvunarakstur í Phoenix. „Ég er vonsvikinn að hafa komið mér í þessa aðstöðu, lögreglan í Scottsdale er frábær og ég mun ekki tjá mig um þetta mál frekar,“ sagði Barkley í yf- irlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. Málið verður tekið fyrir hjá dómara síðar þegar niðurstöður úr blóðprufu sem tekin var af Barkley liggja fyrir. Barkley er 45 ára gamall og starfar sem körfuboltasérfræð- ingur í sjónvarpi en hann var á sín- um tíma í fremstu röð í NBA- deildinni. Hann lék í 16 ár í deildinni fyrir Philadelphia, Phoenix og Hou- ston. Hann keppti tvívegis með bandaríska landsliðinu á Ólympíu- leikum og árið 1993 var hann valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar.    Ásgeir ÖrnHall- grímsson er markahæstur ís- lensku hand- knattleiksmann- anna sem leika í dönsku úrvals- deildinni í hand- knattleik. Ásgeir Örn, sem leikur með GOG, er í 32. sæti með 60 mörk í 15 leikjum, sem gerir fjögur mörk að meðaltali.    Arnór Atlason er litlu neðar álistanum en hefur misst úr sjö leiki með FCK og er það skýringin á að hann er ekki hærri. Arnór hefur skorað 57 mörk í 11 leikjum eða rétt rúm fimm mörk að jafnaði í leik.    Samkvæmt frétt BBC í gær hafaManchester City og Chelsea komist að samkomulagi um kaup- verðið á Wayne Bridge. Enski landsliðsmaðurinn hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Chelsea í vinstri bakvarðarstöðunni. Talið er að Man City sé tilbúið að greiða 12 milljónir punda fyrir Bridge eða 2,1 milljarð kr. Chelsea keypti hann frá South- ampton á 7 milljónir punda árið 2003 eða tæplega 1,3 milljarða kr.    Slaven Bilic, landsliðsþjálfariKróatíu í knattspyrnu karla, hefur ákveðið að hætta með liðið þegar riðlakeppni heimsmeist- aramótsins lýkur í nóvember á þessu ári. Bilic er fertugur og lék hann á sínum tíma með Everton og West Ham. Samkvæmt netmiðlum hafa lið á Englandi áhuga á að fá hann til starfa. Fólk sport@mbl.is ferð á föstudaginn 9. júní í Skjern. Daginn eftir glímir það við Evrópumeistara Dana í Silkeborg og loks verður leikið við Bosníu/Hersegóvínu sunnudaginn 11. janúar í Randers. Verður það í fyrsta sinn með Ísland mætir Bosníu/Hersegóvínu í landsleik í karlaflokki í handknattleik. Mótið er haldið á vegum sænska handknattleiks- sambandsins sem er kennt við Staffan Holmqvist, fyrrverandi formann sænska handknattleiks- sambandsins og fyrsta forseta Handknattleiks- sambands Evrópu, (EHF), sem lést í júní 2007, 64 ára gamall. Holmqvist var formaður sænska hand- knattleikssambandsins frá 1979 til 1992, forseti EHF frá 1991-2003 og varaforseti Alþjóða hand- knattleikssambandsins frá 2000 og til dauðadags. iben@mbl.is ptum í Kristianstad HERMANN Hreiðarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er orðaður við skoska úrvalsdeildarliðið Rangers sem og ensku 1. deildar liðin Reading og Ipswich. Eins og Hermann greindi frá í samtali við Morgunblaðið á gamlársdag vill hann komst í burtu frá Portsmouth og mun félagið ekki standa í vegi fyrir honum fara en Eyjamaðurinn öflugi hefur lítið fengið að spreyta sig með bikarmeist- urunum á yfirstandandi leiktíð. Rangers er í öðru sæti deildarinnar með 43 stig að loknum 20 umferðum en grannaliðið frá Glasgow, Celtic, er í efsta sæti með 50 stig. Hermann þekkir vel til hjá Ipswich en þar lék hann í þrjú tímabil, 2000-2003. Fyrstu tvö tíma- bilin í efstu deild en liðið féll úr úrvalsdeild vorið 2003. Ipswich er sem stendur í 10. sæti deildarinnar með 35 stig. Hermann verður 35 ára gamall í júlí á þessu ári en hann hefur leikið með 6 liðum á Englandi. Crystal Palace, Brentford, Wimbledon, Ips- wich, Charlton og Portsmo- uth. Hjá Reading eru þrír ís- lenskir leikmenn. Ívar Ingi- mundarson og Brynjar Björn Gunnarsson hafa leikið stórt hlutverk með að- alliðinu á undanförnum misserum en Gylfi Sig- urðsson hefur leikið með vara- og unglingaliði Reading. gummih@mbl.is Hermann orðaður við Rangers Hermann Hreiðarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.