Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 B 5 Sala E Theo ehf. se heiminn. Fy áhugasaman fyrirtækisins v Helstu verkef  Sala og  Greinin  Uppby Hæfniskröfur  Reynsl  Brenna  Færni í  Metna  Frumkv  Gott va Umsóknir me meðmæla ska 11. janúar 20 Allar nánari u okkar www.th  og Mark rlendum M lur og markaðsse rirtækið óska aðila til þes íðsvegar í Evrópu ni: markaðsetning á g markaða og ste gging og viðhald v og eiginleikar: a af markaðssetn ndi áhugi til að n samkiptum og þæ ður og fagmennsk æði og sjálfstæð ld á ensku í rituð ð upplýsingum um l senda á netfang 09, merkt „Starfs pplýsingar um fy eo.is aðssetnin örkuðum tur vörur sínar v r að ráða dug s að markaðss og Norður Amerí erlendum mörku fnumótun iðskiptasamband ingu erlendis (kos á árangri gilegt viðmót a vinnubrögð u og töluðu máli menntun, starfs ið theo@theo.is f umsókn“ rirtækið er að fin g á íðsvegar um mikinn og etja vörur ku. ðum a tur) reynslu, auk yrir na á vefsíðu Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi Akraneskaupstaður, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Vest- urlandi, Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi og Akranes- deild Rauða kross Íslands gerðu með sér samkomulag í mars árið 2008 um rekstur endurhæfingarúrræðis fyrir öryrkja á Vesturlandi. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára. Markmiðið með starfinu er m.a. að skapa batahvetjandi stuðnings- úrræði fyrir fólk sem vegna veikinda eða annarra aðstæðna getur ekki tekið virkan þátt í samfélaginu og býr við skert lífsgæði. Jafn- framt að stuðla að því að rjúfa félagslega einangrun, ýta undir starfsvirkni og skapa vettvang fyrir einstaklinga til að auka færni sína við dagleg störf og tómstundaiðkun. Leitað er eftir fagaðila með menntun á sviði félags- og /eða heil- brigðismála og æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja stjórnun- arreynslu. Forstöðumaðurinn mun m.a. sjá um daglega starfsemi, vinna að markmiðsáætlunum með notendum þjónustunnar og skipuleggja starfið. Einnig vinnur hann að því að móta starfsemi staðarins í sam- vinnu með fagteymi sem og notendum staðarins. Fagteymi staðarins er skipað sálfræðing, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa sem eru allir með fasta viðveru á staðnum. Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að viðkomandi geti haf- ið störf hið fyrsta. Ef frekari upplýsinga er óskað skal hafa sam- band við Sveinborgu Kristjánsdóttur, félagsmálastjóra Fjölskyldu- stofu hjá Akraneskaupstað í síma 433-1000. Umsóknarfrestur er til 15. janúar nk. og skal skila umsóknum á Bæjarskrifstofuna á Akranesi, b/t Sveinborgar Kristjánsdóttur, Stillholti 16-18, 300 Akranesi. Hér er um að ræða mjög spennandi mótunarstarf á Vesturlandi. Endurhæfingarhúsið HVER auglýsir eftir forstöðumanni Fagaðili með menntun á sviði félags- og/eða heilbrigðismála óskast til að stýra og móta starf endurhæfingarúrræðis fyrir öryrkja á Vesturlandi staðsett á Akranesi M b l1 07 69 99 Verk- og ábyrgðarsvið: · Umsjón sjálfboðaliða, vinnubúða, námskeiða og annarra viðburða · Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila og alþjóðlega sjálfboðaliða · Fjáröflun og þróun nýrra hugmynda · Umsjón vefsíðu og fréttabréfs · Önnur tilfallandi skrifstofustörf · Ferðalög innanlands og erlendis Umhverfis- og sjálfboðaliðasamtökin SEEDS auglýsa lausa stöðu verkefnisstjóra í 60% starfshlutfall. Starfshlutfall verður endurskoðað seinna með tillit til verkefna. Skrifstofan er staðsett í Reykjavík. SEEDS, SEE beyonD borderS, eru frjáls félagasamtök sem eru rekin án hagnaðarsjónarmiða. Markmið þeirra er að stuðla að verndun umhverfisins, virðingu fyrir fjölbreyttri menningu og víðsýni í gegnum sjálfboðaliðaþjónustu, alþjóðlegar vinnubúðir og námskeiðahald. www.seedsiceland.org Umsóknum skal skila á bæði íslensku og ensku á seeds@seedsiceland.org. Viðtöl fara fram á íslensku og ensku. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2009. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar um starfið veitir Oscar Uscategui í síma 845 6178. Hæfnis- og menntunarkröfur: · Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi · Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi · Góð tölvukunnátta · Mjög góð færni í íslensku og ensku · Sveigjanleiki og hæfni til að vinna undir álagi · Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í alþjóðlegu umhverfi · Sveigjanleiki á vinnutíma Við bjóðum · Kraftmikið alþjóðlegt starfsumhverfi · Sveigjanlegt, skapandi og ábyrgðarfullt starf · Möguleika á þátttöku í alþjóðlegum fundum, námskeiðum og ráðstefnum Embætti forstjóra nýrrar þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga Laust er til umsóknar embætti forstjóra nýrrar stofnunar sem heyrir undir félags- og trygg- ingamálaráðuneytið skv. 2. gr. laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga nr. 160/2008. Forstjórinn starfar samkvæmt fyrir- mælum laga, reglugerða og erindisbréfs sem ráðherra setur honum. Menntunar- og hæfniskröfur  Háskólamenntun sem nýtist í starfi.  Þekking og reynsla sem nýtist á starfssviði stofnunarinnar og við stjórnun hennar.  Leiðtogahæfileikar.  Færni í mannlegum samskiptum.  Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti.  Góð tungumálakunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli.  Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulags- hæfni. Nánari upplýsingar um starfið veitir Lára Björnsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs í síma 545 8100. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um launakjör fer samkvæmt ákvörðun Kjararáðs. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast félags- og trygginga- málaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggva- götu, 150 Reykjavík, eða á netfangið: postur@fel.stjr.is eigi síðar en 19. janúar 2009. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 2. janúar 2009. Upplýsingafulltrúi óskast til starfa hjá Nýja Kaupþingi banka hf. Nýi Kaupþing banki leitar að öflugum einstaklingi til að gegna starfi upplýsingafulltrúa. Upplýsingafulltrúi heyrir undir skrifstofu bankastjóra. Við leitum að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og hefur metnað til að ná árangri. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: • Samskipti við fjölmiðla • Innri og ytri upplýsingagjöf Hæfniskröfur: • Háskólapróf eða sambærileg menntun • Reynsla af samskiptum við fjölmiðla skilyrði • Frumkvæði í starfi • Hæfni til nákvæmra og sjálfstæðra vinnubragða • Framúrskarandi samskiptahæfileikar Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2009. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fullum trúnaði er heitið. Nánari upplýsingar veitir Svali H. Björgvinsson, starfsmannastjóri, sími 444 6383, netfang: svali.bjorgvinsson@kaupthing.com. Umsækjendur sæki um starfið á vefsíðu bankans, www.kaupthing.is. Raðauglýsingar sími 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.