Morgunblaðið - 06.01.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.01.2009, Blaðsíða 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 GunnleifurGunn- leifsson, lands- liðsmarkvörður í knattspyrnu úr HK, og Linda Björk Lár- usdóttir, frjáls- íþróttakona úr Breiðabliki, voru í gærkvöld útnefnd íþróttamaður og íþróttakona ársins 2008 í Kópavogi. Gunnleifur var í hópi bestu leik- manna Íslandsmótsins 2008 og vann sér sæti í landsliði Íslands um haustið. Linda er einn albesti sprett- og grindahlaupari landsins og á fast sæti í landsliði Íslands. Hún varð Íslands- og bikarmeistari í alls sjö greinum utan- og innan- húss á árinu.    Þorsteinn Gunnlaugsson hefurgengið til liðs við Breiðablik á ný eftir eins og hálfs árs fjarveru og mun hann leika með úrvalsdeild- arliði félagsins í körfuknattleik út leiktíðina. Þorsteinn er framherji og hóf hann leiktíðina í herbúðum Skallagríms í Borgarnesi.    Sævar ÞórGíslason knattspyrnumað- ur úr Selfossi og Katrín Ösp Jón- asdóttir, fim- leikakona úr Sel- fossi, voru útnefnd íþrótta- maður og íþrótta- kona Árborgar 2008. Sævar varð markakóngur 1. deildar og átti drjúgan þátt í óvæntri velgengni Selfyssinga. Katrín var í lykilhlut- verki í hópfimleikaliði Selfoss sem stóð sig mjög vel á Íslandsmótinu og varð í níunda sæti í Evrópukeppni.    Daði Berg Grétarsson er geng-inn til liðs við ÍR í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik, en hann hefur síðasta eitt og hálft árið leikið með FSu. Daði Berg er ÍR-ingur að upp- runa og er því kominn á æskuslóðir á nýjan leik. Hann lék um tíma með Fjölni áður en hann gekk í raðir FSu.    Þórarinn Ingi Valdimarsson, 18ára gamall knattspyrnumaður úr ÍBV, er þessa dagana á æfingum með belgíska liðinu Mechelen sem er í æfingaferð í Tyrklandi. Að því er fram kemur á heimasíðu ÍBV buðu forráðamenn Mechelen Þór- arni með í ferðina en þeir hrifust af honum þegar hann var til reynslu hjá félaginu síðastliðið haust. Þór- arinn lék 19 leiki með Eyjamönnum í 1. deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim 2 mörk, og hann hef- ur spilað með yngri landsliðum Ís- lands.    Haukur Pálsson, körfuknatt-leiksmaður úr Fjölni, stóð sig mjög vel með ítalska liðinu Stella Azzurra í Junior Euroleague- mótinu sem fram fór í Róm á Ítalíu milli hátíðanna. Haukur var í byrj- unarliði í öllum fjórum leikjum liðs- ins, sem endaði í fimmta sæti. Hann var besti maður vallarins í leiknum um fimmta sætið og átti fína leiki fyrir ítalska liðið. Hann kom í fyrsta leikinn beint af flugvellinum, sneri sig aðeins á ökkla í þeim leik en lét það ekki aftra sér frá því að leika hina þrjá leikina, enda kominn alla leið frá Íslandi til að sýna sig.    Emiliano In-súa, 19 ára leikmaður Liver- pool, verður frá keppni næsta mánuðinn, þar sem hann leikur með U20 ára landsliði Argentínu á næstu vikum. Fólk sport@mbl.is ÓLAFUR Stefánsson, landsliðs- maður í handknattleik, hugsaði sig óvenju vel um áður en hann svaraði spurningum fréttamanna eftir kjörið á íþróttamanni ársins sl. föstudag. Hann ætlaði sér ekki að fara á flug líkt og í eftirminnilegu sjónvarps- viðtali við kappann í þætti Evu Mar- íu á RÚV. Ólafur hitti að mínu mati naglann á höfuðið þegar hann hvatti unga íslenska afreksmenn til þess að leggja allt í sölurnar til að ná ár- angri í stað þess að eyða tímanum í vinnu við að standa í skilum með bílalánið eða aðra slíka hluti. Ólafur hvatti ungt afreksfólk til þess að setja sér háleit markmið og hafa þor til þess að vera „egóistar“ og hugsa vel um líkama sinn sem gæti orðið þeirra „fyrirtæki“ í nánustu framtíð. Það er lag fyrir foreldra „afrek- sunglinga“ að íhuga þessi orð íþróttamanns ársins 2008 og koma þeim áleiðis til barna sinna. Á dögunum var haldin ágæt ráð- stefna á vegum ÍSÍ þar sem fjármál hreyfingarinnar voru rædd. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, hélt þar fyrirlestur. Í máli Gunnars kom m.a. fram að „efnahagslægðir“ fyrri ára hefðu al- ið af sér afreksfólk í íþróttum og rannsóknir bentu til þess að vilji íþróttamanna til þess að komast út úr því ástandi væri meiri þegar kreppti að. Vésteinn Hafsteinsson frjálsíþróttaþjálfari sagði í viðtali við Morgunblaðið hinn 29. desember að það sem væri mikilvægast til þess að ná árangri væri að hafa vilja til að komast í fremstu röð. Vésteinn var á sínum tíma í fremstu röð í heiminum í kringlukasti og á ÓL í Peking fagnaði hann gullverðlaun- um með lærisveini sínum, Gerd Kanter frá Eistlandi, í kringlukast- inu. Vésteinn var spurður hvort hann hefði einhverja skýringu á því hvers vegna Íslendingar ættu ekki kastara í fremstu röð líkt og áður. Hann svaraði því til að líklegasta skýringin væri sú að bætt lífskjör á Íslandi hefði leitt til þess að ungt fólk fór að leggja meiri áherslu á aðra hluti en að æfa íþróttir. Viljinn til þess að ná árangri er mikilvægasti þátturinn í fari afreks- íþróttamannsins. Bílalánið má bíða. seth@mbl.is Bílalán eða vilji til þess að ná árangri? Á VELLINUM Sigurður Elvar Þórólfsson 31:29, þegar 50 sekúndur voru til leiksloka. Andy Schmid náði að skora tvívegis í lokin og jafna fyrir Sviss en það var ekki nóg til að ná efsta sæti móts- ins. Makedónía er á meðal þátttökuliða í úr- slitakeppni HM sem hefst í Króatíu 16. janúar en liðið sló Ísland einmitt út í umspilinu síðasta sum- ar. Liðið er í riðli með Þýskalandi, Póllandi, Rúss- landi, Túnis og Alsír og á því erfiðan slag fyrir höndum. Sádi-Arabar eru einnig með á HM í Kró- atíu en þeir virðast á uppleið miðað við úrslitin á mótinu. Þeir eru í riðli með Danmörku, Noregi, Egyptalandi, Brasilíu og Serbíu. Næsti leikur Íslands í undankeppni EM er ein- mitt í Makedóníu, 18. eða 19. mars, en liðin mætast síðan hér á landi 17. eða 18. júní í sumar. vs@mbl.is á móti í Sviss CHRIS Coleman, knattspyrnustjóri enska 1. deild- arliðsins Coventry, segir að nokkrir efnilegir leik- menn úr sínu liði verði undir smásjá liða úr ensku úrvalsdeildinni og þeirra á meðal sé íslenski lands- liðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson. ,,Aron Gunnarsson, Keiren Westwood, Dan Fox og Scott Dann munu verða orðaðir við stór félög. Þetta er mjög góðir leikmenn og verða betri og betri. En við munum ekki selja þá heldur erum við að byggja lið til framtíðar,“ sagði Coleman við BBC útvarpið í gær. Aron Einar, sem verður tvítugur í vor, gekk í raðir Coventry frá hollenska liðinu AZ Alkmaar í júní í fyrra. Hann hefur verið fastamaður í Cov- entry-liðinu á leiktíðinni og hefur spilað 26 leiki með liðinu í öllum mótum, þar af 25 leiki í byrj- unarliðinu. Aron hefur ekki náð að skora enn sem komið er en hann leikur oftast í stöðu varn- artengiliðs, einnig af og til sem hægri bakvörður, og hefur látið mikið til sín taka. Coventry er í 14. sæti af 24 liðum í ensku 1. deildinni og virðist því ætla að sigla þar nokkuð lygnan sjó í vetur. Deildin er hinsvegar jöfn og að- eins átta stig uppí 6. sætið, sem gefur rétt til að leika í umspili í vor, og þá eru níu stig niður í fallsæti deildarinnar. Þá er Coventry komið í 4. umferð bikarkeppninnar og dróst þar gegn utandeildaliðinu Torquay. gummih@mbl.is Coleman býst við ásókn í Aron Einar Aron Einar Gunnarsson ,,Ég vil óska ykkur til hamingju og það sem þið hafið gert á tímabilinu hefur fengið alla til að hafa gaman af fótbolta,“ sagði Maradona við leik- menn Katalóníuliðsins á æfingasvæð- inu en Maradona lék 58 leiki með Börsungum á árunum 1982 til 1984. Hann fór í fússi frá Barcelona og hafði ekki komið á Camp Nou síðan hann yfirgaf félagið fyrir 25 árum. ,,Barcelona-liðið er stórfenglegt. Það er að mínu mati besta liðið í heim- inum í dag og það spilar fótbolta að mínu skapi,“ sagði Maradona við Barcelona sjónvarpsstöðina. Eiður hvíldur gegn Atlético Madrid Barcelona hefur nú 11 stiga forskot á toppi spænsku 1. deildarinanr og byrjun liðsins í deildinni er sú besta í sögu félagsins. Í 17 leikjum hafa Börs- ungar unnið 14 leiki, gert 2 jafntefli og aðeins tapað einum leik. Börsungar verða í eldínunni á Vi- cente Calderón vellinum í Madrid í kvöld þegar liðið etur kappi við Atlé- tico Madrid í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum spænsku bik- arkeppninnar. Pepe Guardiola þjálfari Barcelona gerir töluverðar breytingar á leik- mannahópnum en sjö af þeim leik- mönnum sem byrjuðu inná gegn Mal- lorca verða ekki í hópnum í kvöld. Markvörðurinn Victor Valdés, Xavi, Eiður Smári og Samuel Eto’o verða hvíldir og þá eru Carles Puyol, Rafael Márquez og Aliaksandr Hleb allir meiddir. gummih@mbl.is Reuters Tveir góðir Þeir Diego Maradona og Johan Cruyff voru á meðal áhorfenda á leik Barcelona og Mallorca og eru hér að fá sér sæti. Þeir voru báðir í hópi bestu knattspyrnumanna heims á sínum tíma, báðir spiluðu með Barcelona, Cruyff 1973-1978 og Maradona 1982-1984, og Cruyff þjálfaði liðið í átta ár.  Maradona yfir sig hrifinn af liðinu  Mætti á leik og æfingu Barcelona ,,EF þið haldið áfram á þessari braut þá verðið þið meistarar,“ sagði Diego Maradona, argentínska goðsögnin sem nú stýrir landsliði Argentínu, við leik- menn Barcelona á æfingu liðsins á sunnudaginn en Maradona var á meðal áhorfenda á Camp Nou og sá Eið Smára Guðjohnsen leggja upp eitt mark í 3:1 sigri á Mallorca. „Barcelona er besta lið í heimi“ ÞAÐ verða Þór frá Akureyri og Magni frá Grenivík sem mætast í fyrsta mótsleik nýs keppnistímabils í knattspyrnunni á föstudaginn kem- ur. Það er fyrsti leikurinn í Norður- landsmótinu, eða Soccerademótinu eins og það heitir ár, og er hann leik- inn í Boganum á Akureyri eins og all- ir aðrir leikir mótsins. Akureyrarliðin KA og Þór hafa unnið mótið þrisvar hvort á þeim sex árum sem það hefur verið haldið. KA sigraði síðasta vetur, á betri marka- tölu en Þór og KS/Leiftur en liðin þrjú urðu öll jöfn að stigum. Tíu lið taka þátt í mótinu og hafa aldrei verið fleiri en þeim er skipt í tvo riðla sem eru þannig skipaðir: A-riðill: Þór, Magni, KS/Leiftur, Tindastóll og KA 2. B-riðill: KA, Dalvík/Reynir, Draupnir, Völsungur, Þór 2. Riðlakeppninni á að ljúka 8. febr- úar en dagana 13.-15. febrúar verður leikið til úrslita um öll sæti. vs@mbl.is Fótboltinn af stað á föstudag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.