Morgunblaðið - 06.01.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.2009, Qupperneq 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 Jack Wilshereskrifaði í gær undir atvinnu- samning við enska knatt- spyrnufélagið Arsenal en þessi efnilegi leik- maður varð 17 ára gamall á ný- ársdag. Wilshere skráði nafn sitt í sögubækur Arsenal á síðasta ári með því að verða yngsti leikmaður í sögu félagsins sem spilar með því í úrvals- deildinni og í Evrópukeppninni.    Wilshere lék sinn fyrsta leik í úr-valsdeildinni gegn Blackburn í nóvember þegar hann kom inn á sem varamaður. Hann var í byrj- unarliði í fyrsta sinn í leik gegn Sheffield United í deildabikarnum tíu dögum síðar og skoraði þar sitt fyrsta mark. Þá hlaut Wilshere eldskírn í Meistaradeildinni þegar hann kom inná sem varamaður í leik gegn Dynamo Kiev í lok nóvember.    Forráðamenn norska knatt-spyrnuliðsins Rosenborg hafa á undanförnum dögum reynt að koma í veg fyrir að snjóþekja á þaki æfingahallar liðsins myndi skemma þakið. Það tókst ekki og lagðist dúk- urinn á Abrahallen saman um helgina. Abrahallen er frábrugðin mörgum knattspyrnumannvirkjum þar sem þak og veggir hallarinnar eru gerð úr dúk sem haldið er uppi með vírum og heitu lofti.    KantmaðurinnStewart Downing krafðist þess í gær að vera seldur frá enska knatt- spyrnufélaginu Middlesbrough. Síðdegis birtist síðan tilkynning á vef félagsins þar sem sagt var að beiðninni hefði verið hafnað, sem og nýju tilboði frá Tottenham. Middlesbrough hafnaði 6 milljón punda tilboði Tottenham í Downing um helgina en samkvæmt Sky Sports hækkaði Tottenham sig veru- lega og bauð 10 milljónir punda í leikmanninn.    Englendingurinn Phil Taylorsigraði á heimsmeistaramótinu í pílukasti sem fram fór í Alexandra Palace á Englandi um helgina. Tay- lor hafði betur gegn Raymond van Barnevald í úrslitaleiknum, 7:1. Þetta er í 14. sinn sem Taylor fagnar heimsmeistaratitlinum í greininni en hann er 48 ára gamall og er frá Stoke. Á ferlinum hefur Taylor unn- ið sér inn meira en 1 milljón punda í verðlaunafé og er hann fyrsti pílu- kastarinn sem nær þeim áfanga.    Petter Vaagan Moen, liðsfélagifimm Íslendinga hjá norska knattspyrnuliðinu Brann, byrjaði árið ekki vel. Hann fótbrotnaði á fyrstu æfingu liðsins á árinu í gær og verður frá keppni fram á vorið. Fólk sport@mbl.is Gunnar Valgeirsson, skrifar frá Bandaríkjunum. gval@mbl.is Óvæntir hlutir gerðust í deild- arkeppninni í ár að venju. Besti leikmaðurinn í deildinni, Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, meiddist illa á hné eftir að hafa leikið fáeinar mínútur í fyrsta leik liðsins. Við það riðlaðist styrk- leiki bestu liðanna, en Patriots eru þessa dagana ávallt taldir sig- urstranglegasta liðið í byrjun hvers leiktímabils. Í Ameríkudeildinni urðu meiðsl Bradys til þess að önn- ur lið hugðu sér nú gott til glóð- arinnar, enda erfitt fyrir flest liðin að skipta inn jafngóðum nýjum leik- stjórnendum fyrir stórstjörnur í þessari stöðu. Pittsburgh Steelers, New York Giants, Tennessee Titans, Indiana- polis Colts og San Diego Chargers voru öll lið sem gerðu sér vonir um gott gengi þegar keppnistímabilið hófst, en þegar á hólminn kom voru það Tennessee og Pittsburgh sem sýndu besta leikinn og þessi lið eiga bæði heimaleiki sem þau geta unnið í annarri umferðinni. New England sat eftir Þrátt fyrir hetjulega baráttu New England alla deildarkeppnina komst liðið ekki í úrslitakeppnina, þrátt fyrir að vinna ellefu af sextán leikj- um sínum, en San Diego Chargers laumaðist inn þrátt fyrir að vinna aðeins átta af sínum sextán leikjum. Sú staða kemur upp vegna þess að sigurvegararnir í öllum átta riðl- unum komast í úrslitakeppnina og tvö þau lið sem bestan árangurinn hafa að auki í deildunum tveimur. Í leikjum helgarinnar í Am- eríkudeildinni kom San Diego á óvart á heimavelli gegn Indianapolis Colts. Gestirnir voru taldir mun sig- urstranglegri, enda með leikmann deildarinnar, Payton Manning, sem leikstjórnanda. Í æsispennandi leik var það hinn ungi og knái bakvörð- ur, Darren Sproles, sem skoraði sig- ursnertimarkið í framlengingu leiksins eftir að hafa ruðst 23 metra með sporöskjulöguðu tuðruna í endamark. Lokatölurnar urðu 23:17 fyrir San Diego, sem nú flýgur þvert yfir heimsálfuna til Pitt- sburgh til að tapa í annarri umferð- inni. Í hinum úrslitaleiknum í Am- eríkudeildinni slökkti Baltimore Ra- vens loks í spútnikliði Miami Dolph- ins í baðstrandarborginni í Suður-Flórída. Baltimore er lið sem hefur styrkst með hverjum leik und- anfarið, mest vegna frábærs leiks varnarliðsins. Miami tapaði 15 af 16 leikjum sínum á síðasta keppn- istímabili, en með nýjan þjálfara og leikstjórnanda komust höfrungarnir í úslitakeppnina eftir að hafa unnið ellefu af sextán leikjum sínum og þar með sigurinn í austurriðli Am- eríkudeildarinnar. Gott braut- argengi Miami í deildarkeppninni var fyrst og fremst vegna góðs leiks leikstjórnandans Chads Penn- ingtons og agaðs leiks liðsins. Vörn Baltimore gerði Pennington lífið leitt og fimm sinnum tapaði Miami boltanum til Baltimore, en Dolphins hafði tapað knettinum sjaldnast allra liða í deildarkeppninni. Yf- irburðir Baltimore voru algerir og 27:9 sigur var sannfærandi. Balti- more ferðast nú suður til kántrí- borgarinnar Memphis og reynir að slá út sterkt lið Tennessee Titans um næstu helgi. Vonbrigði hjá Giants Í landsdeildinni var það New York Giants sem var talið sig- urstranglegast fyrir deildarkeppn- ina og liðið olli ekki vonbrigðum. Risarnir unnu sterkan austurrið- ilinn sannfærandi með tólf sigra af sextán mögulegum, en Carolina Panthers vann suðurriðilinn með sama árangri. Þessi tvö lið verða að teljast sigurstrangleg í annarri um- ferðinni um helgina. Í fyrstu umferð landsdeildarinnar vann Arizona Cardinals loksins sig- ur í úrslitakeppninni í Phoenixborg eftir góðan sigur á Atlanta Falcons, en liðið hafði ekki náð heimaleik í úrslitakeppninni í 61 ár! Spútniklið landsdeildarinnar í ár var Atlanta, en það hefur nú vaknað af langvar- andi dvala eftir að hafa fengið leik- stjórnandann Matt Ryan í háskóla- valinu síðastliðið sumar. Ryan virðist framtíðarstjarna fyrir Atl- anta, en heimamenn komust inn í tvær sendingar hans í leiknum og það gerði útslagið í leiknum, sem Arizona vann 30:24. Fæstir sérfræð- ingar bjuggust við þessum sigri Ari- zona, en liðið tapaði fjórum af síð- ustu sex deildarleikjum sínum. „Við heyrðum frá sérfræðingum að við værum versta lið sem nokkurn tíma hefði komist í úrslitakeppnina og við notuðum það sem lyftistöng í leikn- um,“ sagði Ken Whisenhunt, þjálf- ari Arizona, í leikslok. Westbrook þræddi vörnina Í hinum úrslitaleik landsdeild- arinnar tóku Víkingarnir í Minne- sota á móti Philadelphia Eagles á sunnudag. Eftir hnífjafnan leik lengst af sendi Donavan McNab, hinn leikreyndi leikstjórnandi Eag- les, góða sendingu á bakvörðinn snjalla Brian Westbrook, sem þræddi í gegnum varnarmúr Vík- inganna 71 metra í mark um miðjan lokaleikhlutann og gerði þar með út um leikinn, sem Philadelphia vann sannfærandi, 26:14, í lokin. Það verður því Philadelphia sem sækir meistarana New York Giants heim og Arizona sem heimsækir Carolina Panthers í undanúrslitum landsdeildarinnar um helgina. Í átta liða úrslitunum verða heimaliðin að teljast mun sig- urstranglegri, en Tennessee gæti átt í erfiðleikum með Baltimore, sem er með besta varnarliðið í deild- inni. Átta lið eftir í baráttunni  Meiðsli Toms Bradys, leikstjórnanda New England Patriots, settu áætlanir liðsins úr skorðum í NFL-deildinni  Atlanta spútnikliðið  Giants hefur titil að verja ÁTTA lið berjast nú um meistaratitil NFL-ruðningsdeildarinnar eftir lok fyrstu umferðar úrslitakeppninnar um helgina. Tvö bestu lið hvorrar deildar sitja hjá í fyrstu umferðinni, þannig að fjörið í úrslitakeppninni byrjar venjulega ekki fyrr en í annarri umferð sem fer fram um næstu helgi. New York Giants hefur titil að verja í keppninni en liðið hafði betur, 17:14, gegn New England Patriots í Of- urskálarleiknum í fyrra. AP Tilþrif Jared Allen, t.v., varnarmaður Minnesota Vikings, stöðvar hér Donovan McNabb, leikstjórnanda Phila- delphia Eagles, í viðureign þeirra 4. janúar í Minneapolis. Eagles hafði betur 26:14. Í HNOTSKURN »Það eru 32 lið í NFL-deildinni, 16 lið í Am- eríkudeildinni og 16 lið í landsdeildinni. »Deildunum tveimur er síð-an skipt upp í fjóra riðla þar sem fjögur lið eru í hverj- um riðli. »Ofurskálarleikurinn ferfram í Tampa Bay hinn 1. febrúar. Sigurliðið úr þeim leik er meistari NFL- deildarinnar. KEVIN Garnett, lyk- ilmaður meistaraliðs Boston Celtics, var ekki sáttur eftir 100:88-tap liðsins gegn New York Knicks í NBA-deildinni í fyrrinótt. Garnett telur að Boston þurfi að styrkja sig í titilvörninni og sagði miðherjinn að hann gæti vel hugsað sér að fá tækifæri til þess að leika með Steph- on Marbury á ný. Marbury er launahæsti leikmaður New York en hann hefur ekkert leikið með liðinu á undanförnum mánuðum vegna deilna við forsvarsmenn og þjálfara liðsins. Garnett og Marbury voru liðs- félagar í Minnesota Timberwolves í hálft þriðja tímabil áður en Marbury var sendur til New Jersey Nets. „Ef það hjálpar liðinu til að verða betra að fá Marbury þá er ég samþykkur því. All- ir leikmenn eru velkomnir ef þeir skilja það sem við erum að gera saman sem lið og ef þeir gera liðið betra,“ sagði Garnett. Marbury hefur á undanförnum misserum deilt harkalega á þjálfara New York Knicks og nú er svo komið að Mike D’An- toni, þjálfari liðsins, hefur ekki áhuga á að vera með hann í liðinu. seth@mbl.is Garnett og Marbury samherjar á ný? Kevin Garnett GUÐJÓN Þórðarson stjórn- ar liði Crewe í fyrsta sinn í ensku 2. deildinni í kvöld þegar liðið tekur á móti Bri- stol Rovers. Guðjón var í fyrsta sinn við stjórnvölinn hjá Crewe á laugardaginn þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Millwall á útivelli í 3. um- ferð ensku bikarkeppninnar og liðin mætast að nýju á Alexandra Stadium, heima- velli Crewe, í næstu viku. Sigurliðið úr þeim leik mætir annað hvort Newcastle eða Hull á útivelli í fjórðu umferðinni. Crewe situr á botni 2. deildarinnar með 16 stig úr 23 leikjum en Bristol Rovers er með 26 stig og er í 16. sætinu. Með sigri í kvöld næði Crewe að komast úr neðsta sætinu en fjögur neðstu liðin falla og liðið er sjö stigum á eftir fimmta neðsta liðinu, Swindon Town. Guðjón var ánægður með leik sinna manna gegn Millwall sem er í þriðja sæti 2. deild- arinnar. Hann sagði á vef félagsins í gær að lið sitt yrði líklega óbreytt fyrir leikinn í kvöld, enda hefðu allir staðið sig vel. Ellefu leikmenn vantaði vegna meiðsla og veikinda þegar hann fór með liðið í leikinn við Millwall og fjórir þeirra voru í gær sagðir leikfærir á nýjan leik. gummih@mbl.is Fyrsti deildaleikur Guðjóns í Crewe Guðjón Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.