Morgunblaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2009
N1.IS
100.000
vörunúmer.
1 símanúmer.
N1 440 1000
Nýttu þér framúrskarandi
þekkingu og þjónustu
ásamt úrvalinu á stærsta
varahlutalager landsins
fyrir allar tegundir bíla.
Gerðu vel við bílinn þinn!
bílar
Reynsluakstur á Porsche Cayman S.
"Í sókn á meðan flestir sækja í skjól" 4
Þrátt fyrir versnandi afkomu af
völdum þverrandi mótorhjólasölu
höfðu starfsmenn Harley-Davidson
verksmiðjanna ástæðu til að fagna í
byrjun ársins. Rann þá milljónasta
mótorhjólið úr smiðju fyrirtækisins.
Tímamótahjólið var af gerðinni
883L sportster, eða nánar tiltekið
Red Hot Sunglo Sportster 883L. Var
það framleitt í smiðju Harley í Kan-
sas City. Heiðurinn hlotnaðist ekki
einu af dýrari hjólum fyrirtækisins.
Sportsterinn á þó eftir að teljast
með mikilvægari hjólum Harley þar
sem hann hefur reynst traustur
þjónn í mótlæti undanfarinna miss-
era. Hjólið er mun ódýrara en mörg
önnur og hefur höfðað til breiðari
hóps kaupenda.
Reuters
Milljónasti
Harleyinn sér
dagsins ljós
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
F
ranski bílsmiðurinn
Citroën áformar að
kynna senn nýja bíla-
línu þar sem í far-
arbroddi verður end-
urgerð gyðjunnar DS sem Charles
de Gaulle gerði ódauðlega er hann
valdi hana sem forsetabíl sinn á
sjötta áratug síðustu aldar. Veðjar
Citroën á að ljúfsár söknuður lið-
inna tíma kveiki áhuga á endurgerð
DS, hleypi lífi í bílasölu þess og
bjargi fyrirtækinu úr greipum fjár-
málakreppunnar.
DS-bíllinn sló í gegn og fangaði
hug Frakka er hann var sýndur
fyrsta sinni á bílasýningunni í París
1955. Tókust fljótt ástir með bíla-
áhugamönnum og gyðjunni langt út
fyrir frönsku landsteinana og í sög-
unni er bíllinn fyrir margt löngu
goðsögn.
Úr vörn í sókn
Frönsk bílsmíði sem annarra
landa stígur krappan dans vegna
samdráttar í sölu. Með nýju línunni,
sem kynnt var við Champs-Elysées
breiðgötuna í París í gær, vonar
Citroën að snúa megi vörn í sókn.
Hugmyndabíllinn, sem sýndur var
fjölmiðlum í gær, er sagður gefa
góða mynd af endanlegri gerð
fyrsta bílsins í nýju DS-línunni.
Við sköpun afturgöngunnar, ef
svo mætti segja, hefur verið byggt
á hönnun og tækni DS-bílsins sem
þykir tákn dýrðardaga franskrar
hönnunar og tæknikunnáttu. Hann
þótti framúrstefnulegur úr hófi
fram er hann sá fyrst dagsins ljós
fyrir rúmlega hálfri öld. Strauml-
ínulögunin hreif og einnig nýstár-
legur fjöðrunarbúnaður. Ferðaþæg-
indin voru annáluð og líkt við flug á
töfrateppi, svo mjúklega leið bíllinn
áfram á gagnvirkri loftfjöðrun
sinni.
Goðsagnarímynd DS-bílsins var
innsigluð endanlega er de Gaulle
forseti slapp óskaddaður úr bana-
tilræði árið 1962. Skotheld bryn-
vörn bílsins skilaði tilætluðu hlut-
verki og á brott af vettvangi
tilræðisins komst bílstjórinn á
fleygiferð þótt tvö dekk færu undan
bílnum í tilræðinu.
Í kosningu um bíl aldarinnar árið
1999 varð DS-bíllinn í þriðja sæti, á
eftir Ford T-bílnum og Mini. Þótti
sú keppni endurspegla áhrifamestu
bílhönnun tuttugustu aldarinnar.
Alls voru smíðaðar 1,5 milljónir DS-
bíla á þeim 20 árum sem bíllinn var
framleiddur.
Í sölu á næsta ári
Mikil leynd hefur hvílt yfir verk-
efninu nýja af hálfu Citroën. Fyr-
irtækið hefur hvorki viljað staðfesta
né neita fregnum sem lekið hafa út
um það síðustu daga. Hermt er þó
að fyrirtækið hafi um allt að fimm
ára skeið verið að hanna bíl sem
byggðist á genum DS-gyðjunnar.
Ekki er beinlínis um endurgerð
goðsagnarinnar að ræða enda mikið
vatn runnið til sjávar hvað tækni og
smíðaefni varðar.
Sá fyrsti, DS3, er sagður það
langt kominn að hann muni verða í
almennri sölu snemma á næsta ári,
2010. Verður frumgerðin sýnd á
bílasýningunni í Genf í næsta mán-
uði. Næsta útgáfa, DS4, komi til
sögunnar ári síðar, eða 2011, og
stærsta útgáfan, DS5, á seinni
helmingi sama árs. DS-bílarnir
munu styðja núverandi C-línu
Citroën, C3, C4 og C5, en verða
dýrari í kaupum.
Auk bílsins mun ný útfærsla
verða kynnt af táknmerki Citroën,
síldarbeinsmynstrinu, sem tekur við
af þeirri gerð sem notuð hefur verið
frá 1985.
Endurkoma Nýr DS væntanlegur.
Gyðjan DS-bíllinn sló í gegn og fangaði hug Frakka er hann var sýndur fyrsta sinni á bílasýningunni í París 1955.
Vinsæll Í kosningu um bíl aldarinnar árið 1999 varð DS-bíllinn í þriðja sæti
Gyðjan
Citroën
DS gengur
aftur