Morgunblaðið - 08.03.2009, Qupperneq 1
SUNNUDAGUR 8. MARS 2009
atvinna
Gestir í vikunni 10.057 » Innlit 18.278 »
Flettingar 138.301 » Heimild: Samræmd vefmæling
Atvinna
mbl.is
Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði
Hjúkrunarfræðingar -
ljósmóðir
Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði auglýsir laus-
ar stöður hjúkrunarfræðinga og ljósmóður á
Patreksfirði.
Við leitum eftir starfsfólki sem getur unnið
sjálfstætt og er tilbúið að takast á við fjölþætt
verkefni.
Um er ræða störf á heilsugæslu- og sjúkrasviði
og gengið er út frá því að viðkomandi vinni á
báðum sviðum og taki bakvaktir.
Umsóknarfrestur í stöðurnar er til 24. mars
2009.
Til upplýsingar
Þjónustusvæði HSP er Vestur- Barðastrandarsýsla og íbúarnir eru um
1210 í þremur byggðarkjörnum (180) Bíldudal, (300)Tálknafirði, (640)
Patreksfirði og (90) aðliggjandi sveitum.
Á þjónustusvæðinu er rekin fjölbreytt opinber þjónusta: leikskólar,
grunnskólar, framhaldsdeild og tónskólar. Góð aðstaða er til
íþróttaiðkana: íþróttahús, íþróttavellir, sundlaugar og golfvellir.
Samgöngur eru að mestu í góðu lagi: flug 6 daga vikunnar Rvík- Bíld.
– ferjusamgöngur alla daga yfir Breiðafjörð, Brjánslækur- Stykkis-
hólmur en þjóðvegurinn landleiðina mætti vera betri.
Veðurfar er svipað því sem gerist á Vesturlandi. Landslag og náttúra
svæðisins fangar flesta enda er fjölbreytnin mikil.
Upplýsingar um störfin veita Sigríður
Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri, siggak@hsp.is,
gsm 893-4186 eða Úlfar B.Thoroddsen,
ulfar@hsp.is, sími 450 2000.
Forsætisráðuneytið auglýsir
embætti aðstoðarseðlabankastjóra
Seðlabanka Íslands
laust til umsóknar
Forsætisráðherra skipar aðstoðarseðla-
bankastjóra Seðlabanka Íslands til fimm ára í
senn, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka
Íslands. Við skipun í embættið nú skal
forsætisráðherra þó, sbr. 1. mgr. ákvæðis III til
bráðabirgða í lögum nr. 5/2009, skipa
aðstoðarseðlabankastjóra til fjögurra ára.
Aðeins er hægt að skipa sama mann
aðstoðarseðlabankastjóra tvisvar sinnum.
Aðstoðarseðlabankastjóri skal fullnægja al-
mennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga
nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins.
Aðstoðarseðlabankastjóri er staðgengill
seðlabankastjóra.
Umsækjendur skulu hafa lokið
háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum
og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á
fjármálastarfsemi og efnahags- og peninga-
málum. Gerð er krafa um stjórnunarhæfileika
og hæfni í mannlegum samskiptum.
Við skipun í embættið mun
forsætisráðherra, skv. 2. mgr. 23. gr. laga um
Seðlabanka Íslands, skipa þriggja manna nefnd
er hefur það hlutverk að leggja mat á hæfni
umsækjenda um stöðuna. Verður einn nefndar-
maður skipaður samkvæmt tilnefningu sam-
starfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt
tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og
einn án tilnefningar og er hann formaður
nefndarinnar.
Í umsókn um embættið skal greina frá
nafni, kennitölu og heimilisfangi umsækjanda
auk þess sem veita skal ítarlegar upplýsingar
um menntun viðkomandi, starfsferil og
reynslu.
Um laun og önnur starfskjör fer eftir
ákvörðun bankaráðs Seðlabanka Íslands, sbr. b-
lið 28. gr. laga um Seðlabanka Íslands 36/2001,
með síðari breytingum.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2009.
Vinsamlega sendið umsóknir og starfsferilskrár
til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, eða á netfang ráðuneytisins
postur@for.stjr.is. Konur, jafnt sem karlar, eru
hvattar til að sækja um stöðuna. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
skipun í embættið hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri
forsætisráðuneytisins.
Í forsætisráðuneytinu, 5. mars 2009.
MÁLFARSRÁÐUNAUTUR
Ríkisútvarpið ohf. auglýsir starf
málfarsráðunauts laust til umsóknar.
• Áskilið er að umsækjendur hafi
meistarapróf í íslensku eða sambærilega
sérþekkingu á málinu.
• Reynsla við fjölmiðla, útgáfu- eða
kennslustörf er áskilin.
• Helstu verkefni málfarsráðunauts eru
ráðgjöf um málfar, yfirlestur ritaðs máls,
faglegt eftirlit, fræðsla og þjálfun starfs-
manna í meðferð móðurmálsins.
Nánari upplýsingar veita Bjarni Guðmundsson
og Óðinn Jónsson í síma 515 3000.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og starfsreynslu sendist skrifstofu
útvarpsstjóra, Útvarpshúsinu, Efstaleiti 1,
103 Reykjavík eða á netfangið
starfsumsoknir@ruv.is fyrir 20. mars nk.