Morgunblaðið - 08.03.2009, Side 4
4 B SUNNUDAGUR 8. MARS 2009 MORGUNBLAÐIÐ
Sölumaður
Innflutningsfyrirtæki í byggingarvörum óskar
eftir sölumanni.
Hæfniskröfur: Umsækjendur hafi góða
þekkingu á byggingarvörum og reynslu í sölu á
byggingarvörum. Góð íslensku- og ensku-
kunnátta í tali og riti.
Áhersla er lögð á fagmennsku, skilvísi í vinnu-
brögðum, þjónustulipurð, mannleg samskipti
og metnað til árangurs í starfi.
Umsóknir sendist á innfluttningur@gmail.com
Rannsóknarstöður
við Háskólasetur Háskólans
á Hólum á Blönduósi
Sérfræðingur á sviði strandmenningar
og hafíss á Norðurslóðum
Sérfræðingnum er ætlað að sinna rann-
sóknum í nánum tengslum við Hafíssetrið á
Blönduósi og önnur fræðasetur á svæðinu.
Því er lögð áhersla á rannsóknir á sviði
vistfræði og lífríkis Norðurslóða.
Umsækjandi skal hafa lokið meistara- eða
doktorsprófi á sviði náttúru- og/eða um-
hverfisvísinda. Nauðsynlegt er að
umsækjandi sé framtakssamur, hafi góða
samstarfshæfileika og sé líklegur til að geta
stuðlað að framgangi Háskólaseturs á
Blönduósi og Hafísseturs. Stefnt er að því að
sérfræðingurinn muni fljótlega taka að sér
að leiðbeina nemendum á háskólastigi og
væri því æskilegt að umsækjandi hefði
nokkra reynslu af kennslu.
Sérfræðingur á sviði textílfræða
Sérfræðingnum er ætlað að sinna
rannsóknum á sviði textílfræða, íslensks
heimilisiðnaðar og textílhefðar í nánum
tengslum við fræðasetur á svæðinu.
Umsækjandi skal hafa lokið meistara- eða
doktorsprófi í sérgrein sinni og helst hafa
sérhæft sig í rannsóknarefnum er lúta að
textílfræðum og með góða þekkingu á
íslenskri textílhefð og textíllistum.
Nauðsynlegt er að umsækjandi sé framtaks-
samur, hafi góða samstarfshæfileika og sé
líklegur til að geta stuðlað að framgangi
Háskólaseturs á Blönduósi og vinni í nánum
tengslum við fræðasetur á svæðinu. Stefnt
er að því að sérfræðingurinn muni fljótlega
taka að sér að leiðbeina nemendum á
háskólastigi og væri því æskilegt að
umsækjandi hefði nokkra reynslu af kennslu.
Störfin eru bæði staðsett á Blönduósi.
Ráðningin er til þriggja ára með möguleika
á fastráðningu. Fyrstu sex mánuðir í starfi
skoðast sem gagnkvæmur reynslutími.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf sem þeir
hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
vottorð um námsferil sinn og störf. Með
umsókninni skulu send þrjú eintök af
vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum
og óbirtum, sem umsækjandi óskar eftir að
metin verði. Að auki má senda umsagnir
tveggja eða þriggja dómbærra manna á
vísindasviði umsækjanda. Einnig er nauð-
synlegt að í umsókn komi fram hvaða verk-
efnum umsækjendur hafa unnið að og
hverju þeir vinna að núna.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi BHM við
Háskólann á Hólum.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2009 og skal
umsóknum og umsóknargögnum skilað í
þremur eintökum til Háskólans á Hólum,
Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkrókur eða í
tölvupósti (skuli@holar.is).
Öllum umsóknum verður svarað og
umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun
starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir rektor Háskólans á
Hólum, Skúli Skúlason, skuli@holar.is
Starf á
rannsóknarstofu
Málning óskar að ráða starfsmann á
rannsóknarstofu
Starfssvið: Prófanir af ýmsu tagi einkum
tengdar vöruþróun, framleiðslueftirliti o.fl.
Um fjölbreytt starf er að ræða.
Hæfniskröfur: Stúdentspróf af raungreina-
braut, reynsla af hliðstæðum störfum æskileg.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfang
jon@malning.is fyrir 11. mars næstkomandi.
Málning hf.
Dalvegi 18,
201 Kópavogi.
www.malning.is
Yfirlæknir
Hrafnista í Hafnarfirði
Hrafnista Hafnarfirði auglýsir stöðu yfirlæknis
lausa til umsóknar. Leitað er að metnaðar-
fullum einstaklingi sem hefur áhuga á
málefnum aldraðra. Jafnframt þarf viðkomandi
að hafa mjög góða stjórnunar- og samskipta-
hæfileika.
Um er að ræða 45% starf sem er laust frá
1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræði-
menntun í öldrunarlækningum, heimilis-
lækningum eða almennum lyflækningum.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Sigurðsson í
síma 585-9501 / 693-9501.
Umsóknarfrestur er til 20 mars nk. og skal
umsóknum skilað til Hrafnistu Laugarási, 104
Reykjavík.
Frekari upplýsingar um Hrafnistuheimilin má
finna á: http://www.hrafnista.is
Skrifstofustjóri/
fjármálastjóri
og námsráðgjafi
Laus er til umsóknar staða skrifstofu-
stjóra/fjármálastjóra við Framhalds-
skólann í Mosfellsbæ.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í
viðskiptafræðum eða sambærilega mennt-
un. Einnig er æskilegt að umsækjendur hafi
reynslu af fjármálastjórn.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjara-
samningi viðkomandi stéttarfélags.
Einnig er laus til umsóknar 50% staða
námsráðgjafa við skólann.
Umsækjendur skulu hafa lokið minnst
fjögurra ára háskólanámi og þar af eins árs
námi í náms- og starfsráðgjöf.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjara-
samningi Kennarasambands Íslands og
stofnanasamningi skólans.
Leitað er að starfsmönnum sem eru
leiknir í mannlegum samskiptum og
sjálfstæðir í vinnubrögðum.
Ráðið verður í stöðurnar frá 15. maí
2009.
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ kennir sig við auðlindir og um-
hverfi í víðum skilningi. Skólinn er framhaldsskóli með
áfangasniði þar sem í boði verða stúdentsbrautir, styttri
starfsnámsbrautir og almennar brautir. Helstu áherslupunktar í
kennsluháttum skólans verða fjölbreyttar verkefnamiðaðar
kennsluaðferðir og margs konar námsmat með sérstakri áherslu á
leiðsagnarmat. Skólinn tekur til starfa í ágúst 2009.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf skulu hafa borist
Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í
netfangið gudbjorg@fmos.is eða í pósti:
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Þverholti 2,
270 Mosfellsbæ í síðasta lagi 24. mars 2009.
Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum
eyðublöðum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari í
síma 864 9729.
Skólameistari.
Forsætisráðuneytið auglýsir
embætti seðlabankastjóra
Seðlabanka Íslands
laust til umsóknar
Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra
Seðlabanka Íslands til fimm ára í senn, sbr. 1.
mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka
Íslands. Aðeins er hægt að skipa sama mann
seðlabankastjóra tvisvar sinnum.
Seðlabankastjóri skal fullnægja almenn-
um starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr.
70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins.
Seðlabankastjóri stýrir Seðlabanka Íslands og
ber ábyrgð á rekstri hans og fer með
ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem
ekki eru falin öðrum samkvæmt lögum um
Seðlabanka Íslands.
Umsækjendur skulu hafa lokið
háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum
og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á
fjármálastarfsemi og efnahags- og peninga-
málum. Gerð er krafa um stjórnunarhæfileika
og hæfni í mannlegum samskiptum.
Við skipun í embættið mun
forsætisráðherra, skv. 2. mgr. 23. gr. laga um
Seðlabanka Íslands, skipa þriggja manna nefnd
er hefur það hlutverk að leggja mat á hæfni
umsækjenda um stöðuna. Verður einn nefndar-
maður skipaður samkvæmt tilnefningu sam-
starfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt
tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og
einn án tilnefningar og er hann formaður
nefndarinnar.
Í umsókn um embættið skal greina frá
nafni, kennitölu og heimilisfangi umsækjanda
auk þess sem veita skal ítarlegar upplýsingar
um menntun viðkomandi, starfsferil og
reynslu.
Um laun og önnur starfskjör fer eftir
ákvörðun bankaráðs Seðlabanka Íslands, sbr. b-
lið 28. gr. laga um Seðlabanka Íslands 36/2001,
með síðari breytingum.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2009.
Vinsamlega sendið umsóknir og starfsferilskrár
til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, eða á netfang ráðuneytisins
postur@for.stjr.is. Konur, jafnt sem karlar, eru
hvattar til að sækja um stöðuna. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
skipun í embættið hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri
forsætisráðuneytisins.
Í forsætisráðuneytinu, 5. mars 2009.